TM gert að greiða VBS 1,8 milljarð króna, grunur um markaðsmisnotkun

Hæsti­réttur dæmdi á fimmtu­dag Trygg­inga­mið­stöð­ina (TM) til að greiða þrota­búi VBS rúman 1,8 millj­arða króna. Málið snýst um fléttu sem hófst snemma árs 2008 með pen­inga­mark­aðsinn­lánum sem nota átti til að halda uppi verði hluta­bréfa í FL Group og end­aði með því að þá ógjald­fær VBS fjár­fest­inga­banki gerði upp umrædd pen­inga­mark­aðsinn­lán við TM eftir hrun. Eftir að VBS fór í þrot fór slita­stjórn hans fram á riftun þess upp­gjörs á grund­velli þess að það hafi mis­munað kröfu­höfum, enda mjög lítið af eignum eftir inn í VBS þegar bank­inn fór loks í þrot í mars 2010. Á þetta félst Hæsti­réttur.

[quote font="0" align="right"]Þaðan fór málið til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara sem er með það til rann­sóknar.[/quote]

Slita­stjórn VBS telur einnig að kaup VBS á hluta­bréf­unum í FL Group í byrjun árs 2008 sé skýr mark­aðs­mis­notkun og vís­aði mál­inu til frek­ari rann­sóknar hjá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu (FME). Þaðan fór málið til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara sem er með það til rann­sóknar.

TM, sem er skráð félag, þarf þó ekki að greiða þessa 1,8 millj­arða króna til VBS. Áður en félagið var skráð á markað ákváðu fyrrum eig­endur TM, Stoðir, sem áður hétu FL Group, að trygg­inga­fé­lagið yrði skað­laust að þess­ari kröfu. Það verða því eig­endur Stoða, sem eru fyrrum kröfu­hafar þess fræga félags, sem bera þennan kostnað. Á meðal þeirra er Lands­bank­inn, sem er í 98 pró­sent eigu íslenska rík­is­ins.

Samkomulag um að halda uppi verði hlutabréfa í FL


Samkvæmt gögnum tengdum mál­inu sem Kjarninn hefur undir höndum gerðu þeir Jón Þórisson, þáver­andi for­stjóri VBS fjár­fest­inga­banka, og Jón Ásgeir Jóhann­es­son, þáver­andi stjórn­ar­for­maður og aðal­eig­andi FL Group, með sér sam­komu­lag um að FL Group myndi leggja inn í VBS pen­inga­mark­aðsinn­lán snemma árs 2008. Þau átti síðan, sam­kvæmt sam­komu­lag­inu, að nota til að kaupa hluta­bréf í FL Group. Í lok jan­úar og í byrjun febr­úar 2008 lagði FL Group síðan inn 1,5 millj­arða króna hjá VBS.

[caption id="attachment_13783" align="alignnone" width="624"] Samkvæmt gögnum tengdum mál­inu sem Kjarninn hefur undir höndum gerðu þeir Jón Þórisson, þáver­andi for­stjóri VBS fjár­fest­inga­banka, og Jón Ásgeir Jóhann­es­son, þáver­andi stjórn­ar­for­maður og aðal­eig­andi FL Group, með sér sam­komu­lag um að FL Group myndi leggja inn í VBS pen­inga­mark­aðsinn­lán. Þau átti síðan, sam­kvæmt sam­komu­lag­inu, að nota til að kaupa hluta­bréf í FL Group.[/caption]

Líkt og nú liggur fyrir, en var alls ekki opin­ber­lega við­ur­kennt á þeim tíma, var staða FL Group veru­lega slæm þegar sam­komu­lagið var gert. Félagið þurfti að fá pen­ing­ana sem það not­aði í þennan snún­ing til baka. Því var ákveðið að dótt­ur­fé­lag FL Group, TM, myndi taka við fjár­mögn­un­inni á hluta­bréfa­kaup­unum. Í febr­úar 2008 lagði TM inn í VBS rúma 2,3 millj­arða króna í pen­inga­mark­aðsinn­lánum. Hluti þeirrar upp­hæðar var not­aður til að end­ur­greiða FL Group og afgang­ur­inn not­aður til að kaupa enn fleiri bréf í FL Group. Til­gang­ur­inn var að skapa falska eft­ir­spurn eftir hluta­bréfum í FL Group og halda uppi hluta­bréfa­verði.

Samkvæmt gögnum sem Kjarninn hefur undir höndum þá gengu við­skiptin þannig fyrir sig að tveir miðl­arar VBS sáu um hluta­bréfa­kaupin. Til­gangur þeirra, sem kemur skýrt fram í gögn­unum, var að halda gengi FL Group yfir tíu krónum á hlut. Það tókst ekki til lengdar.

VBS átti ekki að geta tapað


Áður en lagt var í þessa veg­ferð var skrifað undir skað­leys­is­yf­ir­lýs­ingu, sem í fólst að FL Group myndi verja VBS fyrir öllu mögu­legu tapi vegna við­skipt­anna. Því var dótt­ur­fé­lag Baugs, sem stýrt var af áður­nefndur Jón Ásgeiri, látið kaupa öll hluta­bréfin í FL Group sem VBS keypti fyrir pen­inga­mark­aðsinn­lán TM. Mark­aðsvirði þeirra var þá um 1,4 millj­arðar króna og ljóst að mikið tap hafði mynd­ast á við­skipt­unum. Kaupin voru gerð með lánsfé frá VBS. Bæði Baugur og dótt­ur­fé­lagið, Styrkur Invest, urðu síðan gjald­þrota árið 2009 og efndu því ekki gerða samn­inga. VBS tap­aði þess vegna 2,2 millj­örðum króna á þátt­töku sinni í flétt­unni.

[quote font="0" align="right"]For­svars­menn TM, meðal ann­ars Sigurður Við­ars­son sem enn er for­stjóri TM, hafa ávallt neitað því að hafa vitað að pen­inga­mark­aðsinn­lánin hafi verið notuð með þeim hætti sem þau voru.[/quote]

For­svars­menn TM, meðal ann­ars Sigurður Við­ars­son sem enn er for­stjóri TM, hafa ávallt neitað því að hafa vitað að pen­inga­mark­aðsinn­lánin hafi verið notuð með þeim hætti sem þau voru.

VBS fékk 26,4 millj­arða króna fyr­ir­greiðslu frá íslenska rík­inu snemma árs 2009 til að halda áfram starf­semi, þrátt fyrir að aug­ljóst hefði verið að bank­inn væri óstarf­hæfur á þeim tíma. Þann aukna líf­tíma sem sú fyr­ir­greiðsla veitti bank­anum not­uðu stjórn­endur hans meðal ann­ars til að greiða upp 2,5 millj­arða króna pen­inga­mark­aðs­skuld sína við TM að mestu. Það var gert með því að láta 5,1 pró­sent hlut VBS í MP Banka og fast­eigna­fé­lag­inu Hraun­bjargi til TM auk þess sem hluti greiðsl­unnar var í reiðufé.

VBS fór loks form­lega í þrot í á vor­mán­uðum 2010 og þá kom í ljós að bank­inn hafði verið ógjald­fær frá því í febr­úar 2008, eignir bank­ans voru stór­lega ofmetnar og óveð­tryggðir kröfu­hafar myndu ein­ungis fá mjög lítið upp í kröfur sínar. VBS hafði notað aukna líf­tím­ann sem ríkið færði bank­anum til að gera upp við valda kröfu­hafa. Á meðal þeirra var TM.

Slitastjórn höfðar riftunarmál


Slita­stjórn sem skipuð var yfir VBS höfð­aði rift­un­ar­mál vegna þeirra gjörn­inga. Hæsti­réttur kvað upp dóm í mál­inu gegn TM. Hluti af málsvörn TM var sú að félagið vildi skila hluta­bréf­unum sem félagið hafði fengið í upp­gjör­inu við VBS, í MP banka og Hraun­bjargi ehf., en þau eru verð­laus í dag. Hæsti­réttur hafn­aði því og sagði að TM ætti að greiða þá fjár­hæð sem eign­irnar voru metnar á í upp­gjör­inu milli VBS og TM til baka í þrotabú fyrr­nefnda bank­ans.

Í dómi Hæsta­réttar segir að skil­yrðum laga fyrir riftun hluta þeirra ráð­staf­anna sem fólust í upp­gjör­inu séu upp­fyllt, enda hefði VBS orð­inn ógjald­fær þegar upp­gjörið var gert. „Þessar ráð­staf­anir töld­ust jafn­framt hafa verið T [TM] til hags­bóta á kostnað ann­arra lána­drottna V [VBS]“.

[quote font="0" align="right"]Dómurinn komst því að þeirri nið­ur­stöðu að TM ætti að greiða VBS eigna­safni 1.118 millj­ónir króna ásamt vöxtum, drátt­ar­vöxtum og máls­kostn­aði. TM þarf sam­kvæmt þessu að greiða rúmar 1.800 millj­ónir króna til VBS.[/quote]

Dómurinn komst því að þeirri nið­ur­stöðu að TM ætti að greiða VBS eigna­safni 1.118 millj­ónir króna ásamt vöxtum, drátt­ar­vöxtum og máls­kostn­aði. TM þarf sam­kvæmt þessu að greiða rúmar 1.800 millj­ónir króna til VBS. Hæsti­réttur vís­aði hins vegar frá kröfu VBS eigna­safns um riftun á greiðslu skuldar við TM með veð­skulda­bréfi.

TM er skráð í Kauphöll Íslands og þurfti því að senda frá sér til­kynn­ingu vegna dóms­ins. Þar segir: „Eins og áður hefur komið fram, t.d. í útgef­anda­lýs­ingu og árs- og árs­hluta­reikn­ingum TM, lýstu Stoðir hf. því yfir gagn­vart TM þegar fjár­festar keyptu 60% hlut í TM árið 2012 að Stoðir myndu meðal ann­ars halda TM skað­lausu af beinu tjóni vegna ágrein­ings­mála við VBS eigna­safn. Þar af leið­andi mun eng­inn kostn­aður falla á TM vegna fyrr­greinds dóms Hæsta­réttar“.

Stoðir, sem hétu áður FL Group, munu því bera tapið. Það félag fór í gegnum nauða­samn­inga eftir hrunið og flestar eignir þess hafa verið seldar á und­an­förnum árum. Stærstu eig­endur Stoða í dag eru þrotabú Glitnis, Arion banki og Lands­bank­inn, semi er í eigu íslenska rík­is­ins.

[caption id="attachment_12236" align="alignnone" width="640"] Meint mark­aðs­mis­notkun með bréf í FL Group í byrjun árs 2008 er nú til rann­sóknar hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara.[/caption]

Til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara


Meint mark­aðs­mis­notkun VBS fjár­fest­inga­banka, Stoða (áður FL Group) og Trygg­inga­mið­stöðv­ar­innar (TM) með hluta­bréf í FL Group í byrjun árs 2008 var send til rann­sóknar hjá FME eftir að slita­stjórn VBS vís­aði mál­inu þangað. Slita­stjórn­inni þótti ljóst að for­svars­menn þeirra aðila sem komu að flétt­unni um kaupin á bréf­unum í FL Group hafi gerst sekir um sak­næma og ólög­mæta hátt­semi þegar þeir reyndu að hafa áhrif á verð hluta­bréfa á mark­aði með þeim hætti sem er lýst hér að ofan.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans voru við­bót­ar­gögn, sér­stök grein­ing á umræddum við­skiptum sem þrotabú VBS lét vinna, send til FME fyrir ára­mót 2013. Málið er nú til rann­sóknar hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár