Nýjasta nýtt í eftirlíkingabransanum

Hefur þú ein­hvern tíma keypt eft­ir­lík­ingu af úri, háls­bindi, hand­tösku, sól­gler­augum eða ein­hverju öðru sem þú veist að er ekki ekta? Mjög margir geta ugg­laust svarað þess­ari spurn­ingu ját­andi og enn fleiri hafa kannski keypt eitt­hvað í þeirri trú að um ekta vöru sé að ræða. Eft­ir­lík­inga „iðn­að­ur­inn“ á sér langa sögu, einkum í Asíu. Und­an­farið hafa danskir banka­menn margoft séð ann­ars konar eft­ir­lík­ingar sem ferða­langar frá Asíu hafa reynt að koma í verð.

Starfs­maður í Jyske bank í mið­borg Kaup­manna­hafnar sperrti eyrun og leit af tölvu­skjánum þegar hann heyrði óvenju­legt hljóð, eins og hringl í pen­ingum. Sá þá að lág­vax­inn maður af asískum upp­runa var að rog­ast inn í afgreiðsl­una með, að því er virt­ist, þungan poka­skjatta á bak­inu. Þeir sem slíka poka bera eru iðu­lega á ferð­inni í des­em­ber, rauð­klæddir og grá­skeggj­aðir. Þessi poka­beri var ekki þannig klæddur og auk þess var þetta í apríl.

Maðurinn með pok­ann gekk rak­leitt að sér­stakri vél sem tekur við og telur smá­mynt og byrj­aði að tæma úr pok­anum. Banka­mann­inum sýnd­ist pen­ing­arnir allir vera danskir 10 krónu pen­ingar og eftir að hafa ráð­fært sig við yfir­mann hringdi starfs­mað­ur­inn í lög­regl­una sem var fljót á stað­inn en beið átekta fyrir utan. Þegar mað­ur­inn fór með kvitt­un­ina úr taln­inga­vél­inni til gjald­ker­ans greip lög­reglan inn í og hand­tók mann­inn. Starfs­fólk bank­ans taldi strax að 10 krónu pen­ing­arnir úr pok­anum, sem voru 3 þús­und tals­ins, væru „heima­til­búnir“ og þegar lög­reglan leit­aði á hót­el­her­bergi sem poka­mað­ur­inn (frá Suður-Kóreu) leigði kom í ljós að hann hafði skipt álíka mörgum pen­ingum í nokkrum öðrum bönkum í Kaup­manna­höfn án þess að vekja eft­ir­tekt.

[caption id="attachment_13754" align="aligncenter" width="246"] Danska 10 krónu myntin.[/caption]

Ekki einsdæmi


Þessi saga er ekki eins­dæmi. Á und­an­förnum mán­uðum hefur danska lög­reglan margoft haft hendur í hári manna sem komið hafa með mikið magn smá­myntar, einkum 20 krónu pen­inga (20 danskar krónur eru rúm­lega 400 íslenskar) en einnig smærri mynt, allt niður í 10 aura.

Lang­flestir þess­ara manna eru Kín­verjar en einnig frá öðrum Asíu­löndum og nokkrir Serbar hafa verið hand­teknir hér í Danmörku vegna sömu iðju. Fyrir nokkrum dögum var Kínverji dæmur í 18 mán­aða fang­elsi í Bæj­ar­rétt­inum hér í Kaup­manna­höfn, sá hafði komið í danska Seðla­bank­ann (af öllum stöðum) og reynt að skipta þar 75 þús­und dönskum krónum í 20 krónu pen­ingum í seðla.

[caption id="attachment_13756" align="aligncenter" width="246"] Danska 20 króna myntin.[/caption]

Skrautlegar skýringar


Þegar kemur að því að útskýra hvernig á því standi að við­kom­andi hafi kom­ist yfir þessa pen­inga skortir ekki skraut­legar skýr­ingar, sumar í anda Munchausens bar­óns sem krítaði lið­ugt þegar hann sagði frá afrekum sínum. Einn sagð­ist bara hafa gengið fram á marga poka af smá­pen­ingum þegar hann var að fylla lungun lofti, eins og hann orð­aði það. Annar sagði að vinur sinn keypti gömul bíl­hræ og úr sér gengnar þvotta­vélar frá Evrópu og það væri, að sögn vin­ar­ins, aldeilis með ólík­indum hvað leynd­ist í þessu gamla dóti sem Evr­ópu­búar væru að losa sig við. Sá þriðji sagði að sig hefði dreymt til­tek­inn stað og fyrir for­vitni sakir fór hann þangað og viti menn: þar beið dönsk mynt í stórum haug. Danska lög­reglan hefur sam­visku­sam­lega skráð allar þessar frá­sagnir, eins og vera ber. Einn af yfir­mönnum lög­regl­unnar sagði að sumar þess­ara frá­sagna fengju örugg­lega inni í bók­inni „Skemmti­sögur úr starfi lög­regl­unnar“ ef sú bók yrði ein­hvern­tíma skrifuð.

Af hverju danskir peningar?


Danskir mynt­sér­fræð­ingar og lög­reglan hafa reynt að geta sér til um ástæður þess að asískir „mynt­fram­leið­endur“ beina kröftum sínum að danskri mynt. Sér­fræð­ing­arnir segja að dönsk mynt sé ein­fald­ari í fram­leiðslu en t.d breska myntin, evru­myntin sé mjög flókin að gerð og því mikil kúnst að fram­leiða hana „í bíl­skúrnum.“ Að fram­leiða seðla er mjög flókið og slík fram­leiðsla dæmd til að mis­takast að sögn sér­fræð­inga. Tals­maður lög­reglu sagði í við­tali að asíu­menn­irnir geri sér ekki grein fyrir smæð Dan­merkur, hér frétti allir allt nán­ast sam­dæg­urs. Að maður hafi komið með fals­aða pen­inga í banka á Skagen nyrst á Jótlandi frétt­ist strax um allt land.

Hvernig sést hvort mynt er fölsuð?


Lög­reglan og sér­fræð­ingar danska Seðla­bank­ans vilja ekki segja í smá­at­riðum frá aðferðum til að greina hvort mynt sé fölsuð. Ein þeirra aðferða sem sér­fræð­ingar nota er að leggja pen­ing­ana í bleyti í sér­staka efna­blöndu og enn fremur að slípa yfir­borð pen­ing­anna. Þá sést hve mik­ill þrýst­ingur er not­aður til að þrykkja (stansa) mynt­ina, sem líka hefur áhrif á þyngd pen­ing­anna. Margar fleiri aðferðir eru líka not­aðar til að ganga úr skugga um hvað sé ekta og hvað ekki.

Á annan tug asískra manna dúsa nú í grjót­inu hér í Danmörku, sumir afplána dóma sem þeir hafa hlotið vegna til­rauna til mynt­sölu, aðrir bíða dóms vegna svip­aðra mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár