Allar slitastjórnirnar boðaðar á fund stjórnvalda á þriðjudag

Slita­stjórnir Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans hafa verið boð­aðar á fund ráð­gjaf­ar­nefndar um losun fjár­magns­hafta næst­kom­andi þriðju­dag klukkan 14, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Fund­ur­inn mun fara fram á Grand hótel í Reykja­vík og á honum eiga slita­stjórn­irnar að kynna afstöðu sinna til þeirra skil­yrða sem stjórn­völd setja fyrir veit­ingu und­an­þága frá fjár­magns­höftum, sem er for­senda þess að hægt verði að klára nauða­samn­inga búanna og slíta þeim. Allir full­trúar slita­stjórn­anna eiga að funda með ráð­gjafa­hópnum í einu.

Slita­stjórn­unum var til­kynnt um þetta bréfleiðis síð­asta þriðju­dag. Í bréf­inu var ekki til­greint hver skil­yrði stjórn­valda fyrir und­an­þágum verði, en líkt og Kjarninn greindi frá fyrr í kvöld þá á að kynna þau fyrir efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis á mánu­dags­morgun. Búist er við að áætlun stjórn­valda um afnám fjár­magns­hafta verði gerð opin­ber í kjöl­farið og að slita­stjórn­irnar fái þá að vita hvaða skil­yrðum þær eigi að mæta. Afstöðu sína til þeirra eiga þær síðan að kynna dag­inn eftir. Þau skil­yrði sem slita­stjórn­irnar þurfa að upp­fylla til að hljóta und­an­þágu, og geta þar með slitið búinu, eru efna­hags­leg, þjóð­hags­leg og eiga að stuðla að jafn­ræði allra sem eru fastir milli hafta, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Landsbankinn var fyrsta skrefið


Fyrr í dag var til­kynnt um að Seðla­banki Íslands hefði veitt slita­búi gamla Lands­bank­ans und­an­þágu frá fjár­magns­höftum til að greiða for­gangs­kröfum sínum í kjöl­far sam­komu­lags sem slita­búið gerði við nýja Lands­bank­ann um breytta skil­mála skulda­bréfa þeirra á milli. Slita­búið fær því að greiða um 400 millj­arða króna af for­gangs­kröfum til kröfu­hafa gegn því að lengja í skulda­bréfum sem nýi Lands­bank­inn skuldar því. Umfang þeirra er um 228 millj­arðar króna. Loka­greiðsla verður nú árið 2026 í stað árs­ins 2018.

[caption id="attachment_10261" align="alignnone" width="631"] Skrifað var undir nýtt sam­komu­lag milli nýja og gamla Lands­bank­ans í maí 2014. Seðla­bank­inn sam­þykkti fyrr í dag að veita slita­búi Lands­bank­ans und­an­þágu frá fjár­magns­höftum.[/caption]

Til­kynn­ingin var fyrsta skrefið í aðgerð­ar­á­ætlun stjórn­valda um losun fjár­magns­hafta sem nú hafa verið við lýði í sex ár á Íslandi.

Flatur útgönguskattur mögulegur


Ekki liggur full­kom­lega ljóst fyrir hverjar áherslur stjórn­valda verða en í fjöl­miðlum hefur verið fjallað um að lík­lega verði um að ræða svo­kall­aðan flatan útgöngu­skatt á eignir.

Ef kröfu­hafar vilji út þurfi þeir að greiða flatan skatt af öllu fjár­magni sem þeir fái að fara með út úr íslensku efna­hags­kerfi. Morg­un­blaðið greindi meðal ann­ars frá því að skatt­ur­inn gæti verið allt að 35 pró­sent.

Samhliða verði kynntar hug­myndir um hvernig leyst verði úr eign­ar­haldi Íslands­banka og Arion banka, sem í dag eru báðir í eigu erlendra kröfu­hafa.

Gangi kröfu­haf­arnir ekki að þessu muni stjórn­völd vera til­búin að halda þeim áfram í höftum á meðan að öllum öðrum: t.d. íslenskum líf­eyr­is­sjóðum, heim­ilum, fyr­ir­tækjum, verði hleypt út.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans eru kröfu­hafar þrota­bú­anna búnir að und­ir­búa sig fyrir ýmis konar útkomur, en ólík­legt þykir að þeir verði til­búnir með við skil­yrðum stjórn­valda ein­ungis sól­ar­hring eftir að þeir fái að vita hver þau eru.

Eftir miklu að slægjast


Ljóst er að eftir miklu er að slægj­ast. Eignir þrota­bús Glitnis eru 944 millj­arðar króna. Eignir þrota­bús Kaup­þings eru 789 millj­arðar króna. Þrotabú Lands­bank­ans á um 218 millj­arða króna í eignum umfram for­gangs­kröfur. ALMC, áður þrotabú Straums Burða­r­áss fjár­fest­inga­banka, á eignir upp á 97 millj­arða króna. Eignir SPB hf., sem áður hét Spari­sjóða­bank­inn/Icebank, eru 106 millj­arðar króna. Svo fátt eitt sé nefnt.

Hundruð millj­arðar króna gætu því setið eftir í rík­is­sjóði gangi áætlun stjórn­valda eftir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár