Enginn verðmiði kominn á upplýsingar um eignir í skattaskjólunum

Viðræður við aðil­ann sem vill selja íslenskum yfir­völdum upp­lýs­ingar um eignir Íslend­inga í skatta­skjólum eru ekki komnar á það stig að hann hafi sett upp ákveðið verð fyrir upp­lýs­ing­arnar, segir Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri. Í kjöl­far yfir­lýs­ingar fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins í gær, þar sem skatt­rann­sókn­ar­stjóra var heim­ilað að kaupa gögnin að ákveðnum skil­yrðum upp­fylltum, er emb­ættið að stilla því upp hvernig næstu sam­skiptum við þann sem vill selja upp­lýs­ing­arnar verði háttað. Bryndís segir að það liggi á að klára málið, en vill ekki nefna sér­stök tíma­mörk í því sam­bandi.

[caption id="attachment_13628" align="align­right" width="150"] Bryndís Krist­jáns­dóttir, skatt­rann­sókn­ar­stjóri.[/caption]

Í gær til­kynnti Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið að „meti skatt­rann­sókn­ar­stjóri það svo að gögnin geti nýst emb­ætt­inu við úrlausn mála sem það sinnir og að mögu­legt sé að skil­yrða greiðslu til selj­anda gagn­anna þannig að þær nemi að hámarki til­teknu hlut­falli af inn­heimtu þeirra skatt­krafna sem af gögn­unum leiðir er ráðu­neytið reiðu­búið að tryggja þær fjár­heim­ildir sem nauð­syn­legar eru til að ráð­ast í öflun umræddra gagna, með eðli­legum fyr­ir­vörum um sar­máð áður en til skuld­bind­inga er gengið.“

Mikill áhugi einkaaðila á að kaupa gögnin


Bryndís segir að bolt­inn sé því kom­inn aftur til emb­ættis hennar. „Við munum kanna hvort þessi skil­yrði séu upp­fyllt, sem er þá gert í við­ræðum við þennan aðila sem er að selja gögnin. Og hins vegar er það gert með því að fara betur yfir gögnin og setja fram nánar hvernig unnið yrði úr þeim“.

[quote font="0" align="right"]Við munum kanna hvort þessi skil­yrði séu upp­fyllt, sem er þá gert í við­ræðum við þennan aðila sem er að selja gögnin. Og hins vegar er það gert með því að fara betur yfir gögnin og setja fram nánar hvernig unnið yrði úr þeim[/quote]

Kjarninn hafði áhuga á að vita hver verð­mið­inn væri með það fyrir augum að kanna hvort hann gæti sjálfur keypt upp­lýs­ing­arnar. Hópur ein­stak­linga hafði lýst yfir áhuga á við Kjarnann um að taka þátt í slíkum kaupum. Að sögn Bryn­dísar hafa fjöl­margir einka­að­ilar líka sett sig í sam­band við emb­ætti hennar með það fyrir augum að fjár­magna kaupin á gögn­unum.

Fleiri hundruð aðilar


Embætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra fékk nöfn 50 íslenskra aðila síð­asta sumar sem vís­bend­ingar eru um að hafi stundað skattaund­an­skot og komið fyrir eignum í skatta­skjólum. Upp­lýs­ing­arnar komu frá manni sem bauð emb­ætt­inu gögnin til sölu. Um var að ræða um tíu pró­sent þeirra gagna sem hann seg­ist vera með undir höndum og var þeim ætlað að vera sýn­is­horn fyrir íslensk stjórn­völd. Til að fá öll gögnin, sem inni­halda mörg hund­ruð nöfn íslenskra aðila, vildi mað­ur­inn fá greitt. Bryndís segir hann hins vegar ekki hafa sett upp ákveðið verð. „Hugs­an­lega kann það að taka mið af þeim fjár­munum sem myndu inn­heimt­ast, en dæmi eru um það.“

Í lok sept­em­ber sendi emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra grein­ar­gerð til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins eftir að hafa farið yfir sýn­is­hornin 50, enda bentu þau sterk­lega til þess að skattaund­an­skot hafi átt sér stað. Ráðu­neytið til­kynnti í gær að skatt­rann­sókn­ar­stjóri réði því hvort hann keypti gögnin, að ákveðnum skil­yrðum upp­fylltum.

Ráðuneytið svaraði ekki fyrirspurn


Kjarninn sendi fyr­ir­spurn á upp­lýs­inga­full­trúa fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins þann 28. októ­ber síð­ast­lið­inn þar sem óskað var eftir því að fá upp­lýs­ingar um hvers konar vinna væri í gangi í ráðu­neyt­inu vegna skatta­skjóls­upp­lýs­ing­anna. Kjarninn óskaði sömu­leiðis eftir því að fá upp­lýs­ingar um hvenær væri von á að þeirri vinnu myndi ljúka. Þrátt fyrir fjöl­margar ítrek­anir þá hefur upp­lýs­inga­full­trú­inn ekki svarað fyr­ir­spurn Kjarnans, sem var send fyrir meira en mán­uði síðan. Til­kynn­ing ráðu­neyt­is­ins, sem var birt í gær, svar­aði henni að hluta til.

[caption id="attachment_8086" align="aligncenter" width="1024"] Bjarni Bene­dikts­son, efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra, hefur heim­ilað emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra að kaupa gögn um eignir Íslend­inga í erlendum skatta­skjólum.[/caption]

Bæði banda­rísk og þýsk stjórn­völd hafa farið þá leið að kaupa gögn um skattaund­an­skot þegna sinna frá aðilum sem hafa boðið þau til sölu. Þýsk stjórn­völd greiddu til að mynda um 20 millj­ónir evra fyrir slík gögn á árunum 2006 til 2012. Samkvæmt frétt Der Spiegel um kaupin var ávinn­ingur þýska rík­is­ins vegna kaupanna marg­faldur, eða um tvö þús­und millj­ónir evra.

Eiga um 1.500 milljarða króna erlendis


Á góð­ær­is­tím­anum var lenska að geyma eign­ar­hald fyr­ir­tækja, og pen­inga, á fram­andi slóðum. Útibú eða dótt­ur­fé­lög íslensku bank­anna settu upp allskyns félög fyrir við­skipta­vini sína í Lúx­em­borg, Hollandi, á Kýpur, Mön og eyj­unum Jersey og Guernsey þar sem banka­leynd var, og er, rík.

Auk þess var mikið um það að stofnuð væru félög á Bresku Jóm­rú­areyj­unum fyrir við­skipta­vini þeirra, nánar til­tekið á Tortóla-eyju. Félögin skiptu hund­ruðum og lang­flest þeirra voru stofnuð í Kaup­þingi í Lúx­em­borg, sem hélt sér­stakar kynn­ingar fyrir við­skipta­vini sína til að sýna fram á hag­ræðið sem fékkst af því að geyma t.d. ávinn­ing af hluta­bréfa­sölu í aflands­fé­lög­unum og greiða sér síðan arð úr þeim. Þannig komust þeir aðilar sem áttu þessi félög meðal ann­ars hjá því að greiða skatta á Íslandi.

[quote font="0" align="right"]Í lok síð­asta árs, rúmum fimm árum eftir banka­hrun og setn­ingu gjald­eyr­is­hafta, áttu Íslend­ingar enn tæpa 1.500 millj­arða króna í erlendri fjár­muna­eign. Um er að ræða annað hvort eigið fé eða lán­veit­ingar á milli aðila í sömu eigu.[/quote]

Í lok síð­asta árs, rúmum fimm árum eftir banka­hrun og setn­ingu gjald­eyr­is­hafta, áttu Íslend­ingar enn tæpa 1.500 millj­arða króna í erlendri fjár­muna­eign. Um er að ræða annað hvort eigið fé eða lán­veit­ingar á milli aðila í sömu eigu. Á meðal þess sem kemur fram í töl­unum er að Íslenskir aðilar eigi 28,5 millj­arða króna eignir á Tortóla-eyju. Eignir Íslend­inga þar hafa snar­auk­ist að raun­virði síðan fyrir hrun, en í árs­lok 2007 áttu þeir 8,4 millj­arða króna á eyj­unum. Geng­is­fall krón­unnar skýrir aukn­ing­una að ein­hverju leyti.

Mest af erlendum auði Íslend­inga er í Evrópu, rúmir 1.000 millj­arðar króna. Tæplega 400 millj­arðar króna eru í Amer­íku­álf­unum og um 30 millj­arðar króna ann­ars­staðar í heim­inum.

Stór hluti eign­anna, 651,2 millj­arður króna, er vistaður í eign­ar­halds­fé­lögum. Til sam­an­burðar eru eignir þeirra sem stunda fram­leiðslu, til dæms í mat­væla- eða efna­iðn­aði, 491 millj­arður króna. Eignir sem vistaðar eru í eign­ar­halds­fé­lögum hafa vaxið mjög á und­an­förnum árum. Árið 2007 nam virði þeirra til að mynda 287 millj­örðum króna.

Byrjaði með skattahagræði


Stofnun félaga á Tortóla-eyju hófst um miðjan tíunda ára­tug­inn þegar íslensk fjár­mála­fyr­ir­tæki fóru að bjóða stórum við­skipta­vinum sínum að láta sölu­hagnað af hluta­bréfa­við­skiptum renna í slík félög. Á þeim tíma voru skatta­lög á Íslandi þannig að greiddur var tíu pró­sent skattur af slíkum sölu­hagn­aði upp að 3,2 millj­ónum króna. Allur annar hagn­aður umfram þá upp­hæð var skatt­lagður eins og hverjar aðrar tekjur, sem á þeim tíma þýddi 45 pró­sent skattur.

[quote font="0" align="right"]Þótt banka­reikn­ingar, eða verð­bréf í þeirra eigu, séu skráð á félög á stöðum eins og Tortóla, þá eru fjár­mun­irnir þó ekki raun­veru­lega geymdir þar. Í til­felli Íslend­inga er oft­ast um að ræða banka­reikn­inga eða félög sem stofnuð voru af gömlu íslensku bönk­unum í Lúx­em­borg.[/quote]

Lögum um skatt­lagn­ingu fjár­magnstekna var hins vegar breytt um ald­ar­mótin og eftir þá breyt­ingu var allur sölu­hagn­aður af hluta­bréfum skatt­lagður um tíu pró­sent. Við það varð íslenskt skattaum­hverfi afar sam­keppn­is­hæft og skatta­hag­ræðið af því að geyma eignir inni í þessum félögum hvarf. Frá þeim tíma voru ný félög því aðal­lega stofnuð til að fela raun­veru­legt eign­ar­hald eða til að dylja tekjur eða eignir sem eitt­hvað athuga­vert var við hvernig mynd­uð­ust.

Þótt banka­reikn­ingar, eða verð­bréf í þeirra eigu, séu skráð á félög á stöðum eins og Tortóla, þá eru fjár­mun­irnir þó ekki raun­veru­lega geymdir þar. Í til­felli Íslend­inga er oft­ast um að ræða banka­reikn­inga eða félög sem stofnuð voru af gömlu íslensku bönk­unum í Lúx­em­borg. Fjár­mun­irnir sjálfir voru og eru síðan geymdir þar þótt þeir séu skráðir til heim­ilis á fram­andi slóðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár