Pharell Williams á vinsælasta lagið á Spotify árið 2014

Ofursmellur Pharell Williams, „Happy“, er mest streymda lagið á Spotify það sem af er árinu 2014, Katy Perry var sá kvenn­kyns tón­list­ar­maður sem fékk mesta hlustun og Ed Sheeran varð hlut­skarpastur karl­kyns-tón­list­ar­manna. Plata Ed Sheeran, „x“, var auk þess mest streymda plata í heim­inum og Coldplay var sú hljóm­sveit sem not­endur Spotify hlust­uðu mest á. Þetta kemur fram í nýbirtum lista Spotify, „Year In Review“, þar sem horft er aftur til þess sem gerst hefur á árinu 2014.

https://www.youtube.com/watch?v=y6Sxv-sUYtM

Hlustuðu á 800 þúsund ár af tónlist


Virkir not­endur Spotify eru orðnir um 50 millj­ónir og þeir hafa streymt um sjö millj­örðum klukku­stunda af tón­list það sem af er ári. Það þýðir að þeir hlust­uðu sam­tals á um 800 þús­und ár af tón­list á árinu, sem er reyndar enn ekki lokið.

Fimm vin­sæl­ustu karl­kyns-tón­list­ar­menn­irnir voru, í þess­ari röð, Ed Sheeran, Eminem, Calvin Harris, Avicii og David Guetta. Hjá kon­unum var, líkt og áður segir, Katy Perry í efsta sæti. Á eftir henni kom Ariana Grande, Lana Del Rey, Beyoncé og nýsjá­lenska ung­lingaun­d­rið Lorde.

Topp fimm list­inn yfir vin­sæl­ustu hljóm­sveitir árs­ins á Spotify var eft­ir­far­andi: Coldplay, Imagine Dragons, Maroon 5, OneRepublic og One Direction.

Hér að neðan er hægt að sjá list­ann yfir tíu vin­sæl­ustu lögin á Spotify það sem af er árinu 2014.


  1. „Happy" Pharell Williams

  2. „Rather Be" Clean Bandid (ft. Jess Glynne)

  3. „Summer"Calvin Harris

  4. „Dark Horse" Katy Perry

  5. „All Of Me" John Legend

  6. „Timber" Pitbull

  7. „Rude" Magic

  8. „Waves" Mr. Probz

  9. „Problem" Ariana Grande

  10. „Counting Stars" OneRepublic


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár