Stoltenberg: „Verðum að búast við að þetta standi yfir í langan tíma“

Jens Stol­ten­berg, fram­kvæmda­stjóri NATO, segir að NATO leit­ist ekki eftir því að lenda í árekstrum við Rússland og að banda­lagið vilji alls ekki nýtt kalt stríð. Það geti hins vegar ekki horft aðgerð­ar­laust á þegar friði í Evrópu sé ógnað með aðgerðum Rússa. Þetta kom fram á fundi Stol­ten­bergs með frétta­mönnum síð­degis í dag.

Aðspurður hvað NATO myndi gera ef ekki væri búið að leysa úr ástand­inu í Úkraínu, þar sem Rússland hefur inn­limað Krím­skagan og er talið styðja við aðskiln­að­ar­sinna í aust­ur­hluta lands­ins með vopnum og vistum, eftir þrjú ár sagði Stol­ten­berg: „Við verðum að búast við að þetta muni standa yfir í langan tíma.“

Tvær ákvarðanir teknar til að styðja við framtíðina


Fundur utan­rík­is­ráð­herra NATO-ríkj­anna 28 stendur yfir í dag og á morgun í höf­uð­stöðvum banda­lags­ins í Brussel. Um klukkan hálf fjögur síð­degis hófst annar frétta­manna­fundur Stol­ten­bergs í dag þar sem hann upp­lýsti um nið­ur­stöðu þeirra við­ræðna sem átta hafa sér stað eftir hádegið. Kjarninn greindi frá efni fyrri fund­ar­ins fyrr í dag.

Tvær ákvarð­anir voru teknar í þess­ari lotu. Í fyrsta lagi mun verða mynd­aður tíma­bund­inn við­bragðs­her­afli (e. interim spe­ar­head force) sem mun geta brugð­ist við ef á þarf að halda innan örfárra daga eftir að þjón­ustu hans verður óskað. Þessi her­afli, sem verður undir merkjum NATO, mun aðal­lega verða sam­an­settur af her­mönnum frá Þýska­landi, Hollandi og Noregi.

Í öðru lagi var ákveðið að við­halda við­veru banda­lags­ins við austur-landa­mæri þess. Ástæða þessa er sú ógn sem stafar af til­burðum Rússa í Úkraínu og víðar á áhrifa­svæði rík­is­ins gagn­vart þeim NATO-aðild­ar­ríkjum sem eiga landa­mæri að óróa­svæðum.

Öll 28 ríki NATO munu taka þátt í þessum aðgerðum, að sögn Stol­ten­berg. Á fund­inum fyrr í dag sagði hann: „28 fyrir 28 árið 2015.“ Það þýðir að Ísland mun einnig leggja eitt­hvað að mörkum til þeirra, þrátt fyrir að landið sé her­laust.

[caption id="attachment_13470" align="alignnone" width="1024"] Á fund­inum fyrr í dag sagði Jens Stol­ten­berg: „28 fyrir 28 árið 2015.“ Það þýðir að Ísland mun einnig leggja eitt­hvað að mörkum til þeirra, þrátt fyrir að landið sé her­laust. Á mynd­inni sjást allir utan­rík­is­ráð­herrar NATO-ríkj­anna ásamt Stol­ten­berg.[/caption]

Umfangsmesta áætlun NATO frá lokum kalda stríðsins


Báðar ákvarð­an­irnar eru til þess fallnar að styðja við aðgerð­ar­á­ætl­un­ina Rea­di­ness Action Plan (RAP) sem sam­þykkt var að ráð­ast í á síð­asta leið­toga­fundi NATO-ríkj­anna sem hald­inn var í Wales í byrjun sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Um er að ræða umfangs­mestu aðgerð­ar­á­ætlun sem NATO hefur ráð­ist í að hrinda í fram­kvæmd frá lokum kalda stríðs­ins.Hún felur meðal ann­ars í sér að um fjögur þús­und manna við­bragðs­her­lið verði myndað undir hatti NATO sem á að geta brugð­ist við innan tveggja sól­ar­hringa ef Rússar ógna ein­hverju þeirra 28 landa sem eru aðilar að banda­lag­inu í dag. Úkraína er ekki aðili, þótt ríkið sé í nánu sam­starfi við NATO. Það eru hins vegar Eystra­salts­ríkin og Pólland og þar ótt­ast ráða­menn, kannski eðli­lega í ljósi sög­unnar, að Rússar gætu fram­lengt áhrifa­krumlu sína í átt að þeirra landa­mærum í náinni fram­tíð.

[caption id="attachment_13471" align="alignnone" width="640"] John Kerry, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, og sendi­nefnd hans áttu fund með Stol­ten­berg fyrr í dag[/caption]

Á leið­toga­fund­unum í Wales var einnig ákveðið að auka fjár­út­lát í varn­ar­mál á meðal aðild­ar­ríkja, reyndar með þeim fyr­ir­vara að þau þyrftu að hald­ast í hendur við aukna þjóð­ar­fram­leiðslu. Þ.e. ef þjóð­ar­fram­leiðsla eykst þá skuld­bundu þau ríki sem halda úti her sig til að auka fram­lög til varn­ar­mála. Það er orðið ansi langt síðan að slíkt var gert, enda nán­ast for­dæma­lausir frið­ar­tímar staðið yfir í Evrópu und­an­farin ald­ar­fjórð­ung eftir lok kalda stríðs­ins. Utan átak­anna á Balkans­skaga á tíunda ára­tugnum hefur ríkt friður í álf­unni. Þar til núna.

Er nýtt kalt stríð að hefjast?


Margir blaða- og frétta­menn sem eru staddir hér í höf­uð­stöðvum NATO vegna fundar utan­rík­is­ráð­herr­anna telja að nýtt kalt stríð sé í upp­sigl­ingu. Þeir eru reyndar lang­flestir frá mið- og austur Evr­ópu­ríkjum sem eru sögu­lega brennd af valda­brölti Rússa og búast, kannski eði­lega, við hinu versta. Fjöl­miðla­fólkið finnur stað­fest­ingu fyrir þennan ótta sinn í þeim þunga sem fylgir harð­orðum yfir­lýs­ingum stjórn­enda NATO og utan­rík­is­ráð­herra aðild­ar­ríkj­anna um aðgerðir Rússa.

[quote font="0" align="right"]Fjöl­miðla­fólkið finnur stað­fest­ingu fyrir þennan ótta sinn í þeim þunga sem fylgir harð­orðum yfir­lýs­ingum stjórn­enda NATO og utan­rík­is­ráð­herra aðild­ar­ríkj­anna um aðgerðir Rússa.[/quote]

Vestrænu blaða­menn­irnir virð­ast sumir telja að NATO-báknið sé að hoppa á tæki­færið til að gera sig gild­andi á ný og blási því út kass­ann, eftir að hafa verið nokk­urs konar bast­arður án raun­veru­legs varn­ar­hlut­verks í álf­unni sem það fyrst og síð­ast að verja und­an­farna ára­tugi. Stærstu verk­efni NATO í dag eru hern­að­ar­að­gerðir í Afganistan (lýkur um næstu ára­mót), við­vera og stuðn­ingur í Kosovo, eft­ir­lit í Mið­jarð­ar­haf­inu og sjó­ræn­ingja­veiðar við strendur Afríku. Nýtt kalt stríð myndi auka mik­il­vægi banda­lags­ins til muna og auð­veld­ara yrði að sann­færa þá sem borga fyrir til­vist þess, skatt­greið­endur í Evrópu og Norður-Ameríku, um það mik­il­vægi ef ógnin er við dyrakarm­inn hjá þeim.

Þórður Snær Júl­í­us­son skrifar frá höf­uð­stöðvum NATO í Brussel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár