Ríkissjóður fær heimild fyrir 52 milljarða láni til að fjármagna Seðlabanka

Rík­is­sjóður fær heim­ild til að taka allt að 52 millj­arða króna lán til að fjár­magna eigið fé Seðla­banka Íslands, sam­kvæmt breyt­ing­ar­til­lögu við fjár­lög árs­ins 2015 sem meiri­hluti fjár­laga­nefndar lagði fram í gær. Vigdís Hauks­dóttir er for­maður fjár­laga­nefndar og einn flutn­ings­manna til­lög­unnar. Breyt­ing­ar­til­lagan helst í hendur við frum­varp um lög­fest­ingu á nýrri arð­greiðslu­reglu fyrir Seðla­bank­ann sem tryggir að allur hagn­aður hans yfir ákveðið lág­marks eigið fé verði borg­arður til rík­is­sjóðs sem arð­greiðslu.

Í því frum­varpi kemur fram að lág­marks eigið fé Seðla­bank­ans eigi að vera 52 millj­arðar króna, nákvæm­lega sama upp­hæð og rík­is­sjóður fær heim­ild til að fá lán­aða verði breyt­inga­til­lagan sam­k­þykkt.

Í lok árs 2013 var eigið fé Seðla­bank­ans um 90 millj­arðar króna. Því er nægt svig­rúm til að greiða út úr Seðla­bank­anum verði nýja frum­varpið að lögum og losa fé til ann­arra verka.

Vaxtagreiðslur skila sér til baka sem arðgreiðslur


Kjarninn greindi frá því í byrjun októ­ber að til stæða að leggja fram frum­varp um að lög­festa nýja arð­greiðslu­reglu fyrir Seðla­banka Íslands. Verði frum­varpið að lögum mun Seðla­bank­inn borga allan hagnað yfir ákveðið lág­marks eigið fé til rík­is­sjóðs sem arð­greiðslu. Frum­varpið var síðan lagt fram 11. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Þar kom fram að „Heild­ar­fjár­hæð inn­kall­an­legs eigin fjár [...]er 52 millj­arðar kr. Eft­ir­stöðvar inn­kall­an­legs eigin fjár fær­ast upp við hver ára­mót með hækkun vísi­tölu neyslu­verðs“.

[caption id="attachment_3604" align="alignnone" width="730"] Arð­greiðslur Seðla­bank­ans til rík­is­sjóðs gætu auk­ist til muna á næstu árum verði lögum um þær breytt. Frumvarp um slíka breyt­ingu var lagt fram 11. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.[/caption]

Samkvæmt frum­varp­inu mun við gild­is­töku lag­anna, verði þau sam­þykkt, verða„heim­ilt að lækka stofnfé rík­is­sjóðs í Seðla­banka Íslands um 26 millj­arða króna“. Líkt og Kjarninn hefur þegar greint frá mun sú upp­hæð fara í að lækka skulda­bréf sem ríkið skuldar Seðla­bank­anum um 26 millj­arða króna, í 145 millj­arða króna. Sú aðgerð gerir það að verkum að vaxta­greiðslur rík­is­ins vegna skulda­bréfs­ins verða 8,1 millj­arður króna á næsta ári.

Í fjár­laga­frum­varpi fyrir árið 2015 segir að þessi nýja arð­greiðslu­regla geri „ráð fyrir því að auknar vaxta­tekjur vegna skulda­bréfs­ins skili sér aftur til rík­is­sjóðs í formi arð­greiðslu þar sem nýja reglan gerir ráð fyrir að allur hagn­aður bank­ans verði greiddur til rík­is­sjóðs sé eigið fé bank­ans yfir skil­greindu við­miði“.

Með nýju arð­greiðslu­regl­unni gætu því vext­irnir sem ríkið greiðir af skuld sinni við Seðla­bank­ann skilað sér aftur til rík­is­sjóðs í formi arð­greiðslu í lok hvers árs.

Mikil breyting frá því sem nú er


Um tölu­vert mikla breyt­ingu er að ræða. Í dag eru lögin þannig að þriðj­ungur alls hagn­aðar Seðla­bank­ans rennur í rík­is­sjóð. Með nýju arð­greiðslu­regl­unni mun allur hagn­aður Seðla­bank­ans yfir 52 millj­arða króna eig­in­fjársvið­miðið renna til rík­is­sjóðs. Fyrir utan vext­ina sem ríkið greiðir, og fær svo til baka, þá gæti þessi hagn­aður verið tölu­vert mik­ill, m.a. vegna sölu á eignum sem Seðla­bank­inn eign­að­ist í hrun­inu. Þær eru í dag vistaðar í dótt­ur­fé­lagi bank­ans, Eign­ar­safni Seðla­banka Íslands, og voru metnar á um 295 millj­arða króna í lok síð­asta ár á meðan að skuldir þess félags voru um 270 millj­arðar króna. Flestir sér­fræð­ingar telja að virði eign­anna sé van­metið og sala þeirra muni geta skilað Seðla­bank­anum háum fjár­hæðum þegar búið verður að gera upp skuldir. Þær fjár­hæðir gætu þá runnið í rík­is­sjóð.

[quote font="0" align="right"]Með nýju arð­greiðslu­regl­unni mun allur hagn­aður Seðla­bank­ans yfir 52 millj­arða króna eig­in­fjársvið­miðið renna til rík­is­sjóðs.[/quote]

Ef Seðla­bank­inn á hins­vegar slæmt ár, og eigið fé hans fer niður fyrir hið ákveðna við­mið, þá mun hagn­aður bank­ans fyrst fara í að ná því aftur upp fyrir áður en arður er greiddur til rík­is­sjóðs. Til­gang­ur­inn er að koma á betri reglu sem bregst fyrr við því hvernig eigið fé bygg­ist upp. Samhliða á Seðla­bank­inn að fá aðgang að meira eigin fé frá rík­is­sjóði, ef hann þarf á því að halda, í gegnum hluta­fjár- eða stofn­fjár­lof­orð sem yrði lög­bundið. Bankinn gæti dregið á þetta fé án aðkomu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins eða Alþingis. Heim­ildir Kjarnans herma að til standi að lögin muni gilda frá og með næstu ára­mótum, verði þau sam­þykkt á Alþingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár