Utanríkisráðherrar NATO-rikjanna fordæma aðgerðir Rússa í Úkraínu

Utan­rík­is­ráð­herrar NATO-ríkj­anna for­dæma ógn Rúss­lands við stöð­ug­leika í aust­ur­hluta Úkraínu, sem þeir segja að sé í trássi við alþjóða­lög. Þessi ógn felur í sér að aðskiln­að­ar­sinnar í Ukraínu fá ýmis vopn og annan búnað frá Rússum í trássi við sam­komu­lag sem deilu­að­ilar á svæð­inu féllust á í Minsk í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Utan­rík­is­ráð­herr­arnir for­dæma einnig hern­að­ar­upp­bygg­ingu Rússa á Krím­skaga og við Svarta hafið og kalla eftir því að rúss­nesk stjór­völd virði sjálf­stæði og full­veldi Úkraínu. Þetta er meðal þess sem kom fram í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu utan­rík­is­ráð­herr­anna 28 eftir að fundi þeirra vegna stöð­unnar í Úkraínu lauk rétt í þessu. Gunnar Bragi Sveins­son, utan­rík­is­ráð­herra Íslands, situr fund­inn.

„Við köllum eftir því að Rússland snúi við hinni ólög­legu inn­limun Krím­skag­ans, sem við höfum ekki og munum ekki við­ur­kenna,“ sagði Jens Stol­ten­berg, fram­kvæmda­stjóri NATO, þegar hann ávarp­aði frétta­menn eftir að fund­inum lauk.

[caption id="attachment_13444" align="alignnone" width="640"] Utan­rík­is­ráð­herrar allra NATO ríkj­anna eru sam­an­komnir í Brussel. Gunnar Bragi Sveins­son, utan­rík­is­ráð­herra Íslands, sést hér lengst til hægri á mynd­inni sem var tekin í morgun.[/caption]

Sjálfstæð, fullvalda og stöðug Úkraína


Utan­rík­is­ráð­herrar allra NATO-rikj­anna 28 eru staddir í höf­uð­stöðvum NATO í Brussel í dag og á morgun til að funda um ýmis verk­efni banda­lags­ins. Í morgun var fundað um ástandið í Úkraínu, aðgerðir Rússa þar og hver afstaða NATO til ástands­ins sé. Pavlo Klimkin, utan­rík­is­ráð­herra Úkraínu, átti upp­haf­lega að vera við­staddur fund­inn í morgun en komst ekki í dag þar sem að búist er við að úkra­ínska þingið stað­festi nýja rík­is­stjórn síðar í dag. Klimkin tók því þátt í fund­ar­höld­unum í gegnum fjar­skipta­búnað.

Nið­ur­staða fund­ar­ins var sú að NATO stað­festir for­dæm­ingu sína á aðgerðum Rússa í Ukraínu og stuðn­ing sinn við stjórn­völd í land­inu.

[caption id="attachment_13445" align="alignnone" width="640"] John Kerry, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, er á meðal fund­ar­manna.[/caption]

Stol­ten­berg var brúna­þungur en ákveð­inn þegar hann sagði að NATO „árrétti að sjálf­stæð, full­valda og stöðug Úkraína, sem stað­fast­lega styður lýð­ræði og rétt­ar­ríki, er lyk­ill­inn að öryggi á Evrópu-Atl­ans­hafs­svæð­inu[...]sem Úkraína er órjúf­an­legur hluti af.“

NATO hefur sett upp fimm sjóði til að styðja stjórn­völd í Úkraínu í þeim átökum sem þar geisa. Í gegnum þessa sjóði veitir NATO stuðn­ing við úkra­ínska her­inn án þess að taka beinan þátt í átök­unum.

Evr­ópu­sam­bandið og Banda­ríkin hafa beitt Rússa efna­hags­þving­unum vegna aðgerða þeirra í Úkraínu. Þær aðgerðir, ásamt hríð­lækk­andi olíu­verði í heim­inum, hafa haft miklar efna­hags­legar afleið­ingar í Rúss­landi.

Utan­rík­is­ráð­herra Úkraínu var fjar­ver­andi vegna þess að rík­is­stjórn Úkraínu, sem mynduð er eftir kosn­ing­arnar í októ­ber, verður lík­lega stað­fest á eftir.

Þórður Snær Júl­í­us­son skrifar frá höf­uð­stöðvum NATO í Brussel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár