Gamla Ísland vaknar alltaf þegar einhver getur grætt hratt

Sala Lands­bank­ans á hlut sínum í greiðslu­korta­fyr­ir­tæk­inu Borgun til hóps fjár­festa sem sýndi frum­kvæði að því að kaupa hlut­inn hefur vakið mikla athygli. Lands­bank­inn er í eigu íslenska rík­is­ins og hefur opin­ber­lega gefið það út að hann starfi eftir ákveðnum reglum við sölu fyr­ir­tækja í sam­keppn­is­rekstri. Í frétta­til­kynn­ingu frá bank­anum frá22. júní 2012 segir að „rek­star­fyr­ir­tæki eru aug­lýst og boðin til sölu á almennum mark­aði, brjóti það ekki gegn samn­ingum eða lög­vörðum hags­munum við­skipta­vina bank­ans“.

Borgun er rekstr­ar­fyr­ir­tæki. Sala á hlut Lands­bank­ans í fyr­ir­tæk­inu var hvorki aug­lýst né boðin til sölu á almennum mark­aði. Þess í stað var 31,2 pró­sent hlutur Lands­bank­ans í Borgun seldur til Eign­ar­halds­fé­lags Borgunar slf., en til­kynnt var um það 25. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn að Lands­bank­inn hefði selt umræddan hlut fyrir tæp­lega 2,2 millj­arða króna.

[caption id="attachment_13433" align="alignnone" width="613"] Steinþór Pálsson er banka­stjóri Lands­bank­ans.[/caption]

Vekur upp minningar um Vestia


Þetta er ekki í fyrsta sinn sem sala Lands­bank­ans á eignum hefur valdið ulfúð og vakið upp spurn­ingar um hvort eðli­legum ferlum hafi verið fylgt við fram­kvæmd söl­unnar.

Fyrir nokkrum árum hafði eign­ar­hlutum sem Lands­bank­inn hafði tekið yfir eftir hrunið verið komið fyrir inni í eign­ar­um­sýslu­fé­lag­inu Vestia, sem bank­inn átti að öllu leyti. Stærsti bit­inn var Icelandic Group, alþjóð­legt sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki með alls 30 dótt­ur­fé­lög og starf­semi í 14 löndum. Á meðal ann­arra fyr­ir­tækja voru Vodafone, fyr­ir­tækin sem síðar runnu saman í Advanía, Húsa­smiðjan og Plast­prent. Í ljósi þess að sala rík­is­eigna á Íslandi á sér ekki mjög fal­lega sögu, og hafið er yfir allan vafa að fyr­ir­tækjum í eigu rík­is­ins var oft á tíðum stýrt í „réttar“ hendur á árunum fyrir hrun, var lögð áhersla á að allt ætti að vera uppi á borð­unum þegar nýju íslensku bank­arnir, reistir á grunni gjald­þrota banka, seldu þær fjöl­mörgu eignir sem höfðu fallið þeim í skaut vegna efna­hags­hruns­ins. Einn þáver­andi ráð­herra sagði við grein­ar­höf­und að það mætti ekki verða neinn „mon­key business“ í end­ur­sölu á þessum eignum. Þeim átti ekki að stýra upp í hend­urnar á ein­hverjum útvöldum.

Steingrímur J. varð brjálaður


[quote font="0" align="right"]Stein­grímur J. Sig­fús­son, þá fjár­mála­ráð­herra, varði við­skiptin opin­ber­lega en bak­við luktar dyr varð hann gjör­sam­lega brjál­aður yfir sam­ein­ing­unni. Að hans mati fólst í þess­ari sam­ein­ingu klárt brot á reglum sem Lands­bank­inn hafði sjálfur sett sér um með­ferð eigna sem lent höfðu í hönd­unum á honum eftir banka­hrunið.[/quote]

Í lok ágúst 2010 var skyndi­lega til­kynnt um að Fram­taks­sjóður Íslands, umbreyt­inga­sjóður í eigu íslensku líf­eyr­is­sjóð­anna, hefði keypt Vestia. Fyrir þennan pakka greiddi Fram­taks­sjóð­ur­inn 19,5 millj­arða króna auk þess sem Lands­bank­inn eign­að­ist 27,5 pró­sent hlut í hinum ætl­aða umbreyt­ing­ar­sjóði. Með þessum gern­ingi var íslenska ríkið, sem átti Lands­bank­ann að mestu, orð­inn óbeint stærsti ein­staki eig­andi Fram­taks­sjóðs­ins. Það var aldrei mein­ingin að svo yrði.

Ákvörð­unin um þennan gern­ing var líka tekin af þáver­andi æðstu stjórn­endum Lands­bank­ans og Fram­taks­sjóðs­ins, þeim Stein­þóri Pálssyni og Finnboga Jónssyni. Stein­grímur J. Sig­fús­son, þá fjár­mála­ráð­herra, varði við­skiptin opin­ber­lega en bak­við luktar dyr varð hann gjör­sam­lega brjál­aður yfir sam­ein­ing­unni. Að hans mati fólst í þess­ari sam­ein­ingu klárt brot á reglum sem Lands­bank­inn hafði sjálfur sett sér um með­ferð eigna sem lent höfðu í hönd­unum á honum eftir banka­hrunið.

[caption id="attachment_13420" align="alignnone" width="1024"] Stein­grímur J. Sig­fús­son, þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, varði söl­una á Vestia opin­ber­lega. Á bak­við luktar dyr var hann brjál­aður yfir henni.[/caption]

Stein­grími fannst þeir Steinþór og Finnbogi heldur ekki hafa vandað almenni­lega til verka. Í einka­sam­tölum hund­skamm­aði hann þá báða og sagði þeim mjög skýrt að svona lagað skyldu þeir aldrei gera aftur.

Aug­ljós­lega var sam­run­inn við Fram­taks­sjóð­inn góð leið fyrir Lands­bank­ann til að koma eignum frá sér og losa þar með um þrýst­ing á bank­ann um að losa sig sem fyrst við fyr­ir­tæki sem voru komin í faðm hans. Stein­grímur lagði mikla áherslu á að þeir Finnbogi og Steinþór myndu ekki láta taka sig í bólinu þegar kæmi að því að fyr­ir­tækin yrðu end­ur­seld út úr Fram­taks­sjóðnum. Allt yrði að vera opið og gagn­sætt í þeim sölu­ferlum.

Einkaviðræður þrátt fyrir aðra áhugasama


Stein­grímur varð því ekki ánægður þegar Fram­taks­sjóð­ur­inn tók upp einka­við­ræður í upp­hafi árs 2011 við fjár­fest­inga­sjóð­inn Triton um kaup á verk­smiðju­rekstri Icelandic, sem hafði fylgt frá Lands­bank­anum til sjóðs­ins þegar Vestia var selt. Á hlið­ar­lín­unni í þeim við­skiptum voru aðrir áhuga­samir aðilar, meðal ann­ars kanadíska fisk­sölu­fyr­ir­tækið High Liner Foods, algjör­lega brjál­aðir yfir því að fá ekki að gera til­boð í rekst­ur­inn. Í umræð­unni á þessum tíma var látið líta út fyrir að Finnbogi Bald­vins­son, for­stjóri Icelandic, hefði haft sér­staka hags­muni umfram aðra að Triton keypti Icelandic og að við­ræður við fjár­fest­inga­sjóð­inn hefðu verið til­komnar vegna frænd­semi hans við nafna sinn Jónsson, fram­kvæmda­stjóra Fram­taks­sjóðs­ins.

Sam­sær­is­kenn­ingin gekk út á það að bak­hjarl Finnboga Bald­vins­sonar væri bróðir hans, Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri og eig­andi Samherja. Samn­ings­við­ræð­urnar áttu þannig að vera eitt stórt ráða­brugg til að gera þeim kleift að kom­ast yfir Icelandic. Á meðal þess sem lagt var til í þessum við­ræðum við Triton var að hluti starfs­manna Icelandic myndi fá að eign­ast í fyr­ir­tæk­inu ef af söl­unni yrði.

[quote font="0" align="right"]Mörgum innan stjórn­sýsl­unnar og við­skipta­lífs­ins fannst óþefur af við­ræð­unum og töl­uðu um að gamla Ísland vakn­aði alltaf þegar ein­hver héldi að hann gæti grætt mikið á skömmum tíma.[/quote]

Mörgum innan stjórn­sýsl­unnar og við­skipta­lífs­ins fannst óþefur af við­ræð­unum og töl­uðu um að gamla Ísland vakn­aði alltaf þegar ein­hver héldi að hann gæti grætt mikið á skömmum tíma. Í byrjun febr­úar 2011 var til­kynnt um að til­boði Triton hefði verið hafnað og að hluti af starf­semi Icelandic yrði seldur í opnu sölu­ferli. Á bak­við tjöldin hafði gengið mikið á vik­urnar á undan. Aftur bland­aði Stein­grímur J. Sig­fús­son sér í málið og sagði við Finnboga Jónsson að hann ætti að slíta samn­inga­við­ræð­unum. Hvort þau skila­boð fjár­mála­ráð­herr­ans hafi ráðið úrslitum í því að hætt var við söl­una liggur ekki fyrir. En við hana var að minnsta kosti hætt.

Í nóv­em­ber 2011 var starf­semi Icelandic í Banda­ríkj­unum seld til High Liner Foods. Sölu­verðið var 26,9 millj­arðar króna. Fram­taks­sjóð­ur­inn hélt eftir Icelandic nafn­inu og á enn starf­semi sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins á Íslandi, í Evrópu og Asíu.


Frétta­skýr­ingin byggir að hluta á kafla úr bók­inni Ísland ehf.- auð­menn og áhrif eftir hrun, eftir grein­ar­höf­und og Magnús Hall­dórs­son sem kom út í águst 2013.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár