Erfiðir tímar framundan á Grænlandi

Miklir erf­ið­leikar blasa við Græn­lend­ingum en aðeins tveim dögum fyrir kjör­dag var upp­lýst að staða græn­lenska lands­sjóðs­ins er mun verri en áður var vitað.

Siumut er áfram stærsti flokk­ur­inn á græn­lenska lands­þing­inu eftir þing­kosn­ing­arnar síð­ast­lið­inn föstu­dag. Siumut fékk 34,3 pró­sent atkvæða og ell­efu þing­menn, tap­aði tíu pró­sentu­stigum frá kosn­ing­unum á síð­asta ári. Inuit Atqatigiit flokk­ur­inn fékk 33,2 pró­sent atkvæða og sömu­leiðis ell­efu þing­menn.

Þessi nið­ur­staða þýðir að það kemur í hlut Kim Kielsen leið­toga Siumut að reyna myndun nýrrar stjórnar. Sextán þing­sæti þarf til að mynda meiri­hluta en þing­menn eru 31. Samstarf tveggja stærstu flokk­anna er talið fremur ólík­legt og af þeim sökum eru smá­flokk­arnir þrír, sem sam­tals fengu 9 þing­menn, í lyk­il­stöðu. Kim Kielsen leið­togi Siumut sagði, þegar úrslitin lágu fyrir að ný lands­stjórn yrði ekki mynduð í einum grænum, miklu skipti að flokkar á græn­lenska þing­inu næðu sam­komu­lagi sem tryggði gæti fram­tíð lands og þjóðar, eins og hann komst að orði og það er ærið við­fangs­efni.

[caption id="attachment_13233" align="aligncenter" width="638"] Kim Kielsen, leið­togi Siumut, á kjör­stað í nýaf­stöðnum þing­kosn­ingum á Græn­landi.[/caption]

Spilling og hneykslismál felldu stjórnina


Aleqa Hammond fyrr­ver­andi for­maður Siumut og leið­togi græn­lensku lands­stjórn­ar­innar boð­aði til kosn­ing­anna eftir að stjórn hennar missti meiri­huta sinn á þing­inu í byrjun októ­ber. Það gerð­ist í kjöl­far þess að upp komst að Aleqa Hammond hafði notað opin­bert fé í þágu fjöl­skyldu sinnar, meðal ann­ars til ferða­laga. Margir Græn­lend­ingar höfðu bundið miklr vonir við „drottn­ingu græn­lenskra stjórn­mála“ eins og hún var gjarna kölluð. En skjótt skip­ast veður í lofti og „drottn­ingin“ valt af stall­inum án þess að hafa komið miklu til leiðar á sinni stuttu valda­tíð.

Fyrir kosn­ing­arnar í mars í fyrra snérist kosn­inga­bar­áttan að miklu leyti um hvort leyfa ætti mikla vinnslu nátt­úru­auð­linda, málma, olíu, gulls og eðal­steina. Hag­vöxtur hefur verið nei­kvæður und­an­farin ár, atvinnu­leysi er mikið (9 – 10 pró­sent) og ferða­mönnum hefur fækkað tals­vert. Hátt fisk­verð hefur bjargað sjáv­ar­út­veg­inum en þar er fram­tíðin óviss. Miklar áskor­anir blöstu því við rík­is­stjórn Alequ Hammond en á þeim skamma tíma sem stjórn hennar sat breytt­ist fátt.

[caption id="attachment_13234" align="aligncenter" width="640"] Aleqa Hammond, þáver­andi leið­togi græn­lensku lands­stjórn­ar­innar, í sjón­varps­við­tali hjá Sveini H. Guð­mars­syni, frétta­manni á RÚV, í maí­mán­uði síð­ast­liðnum.[/caption]

Kolsvört skýrsla tveimur dögum fyrir kosningar


Tveimur dögum fyrir kosn­ingar tók kosn­inga­bar­áttan nýja stefnu þegar græn­lenska efna­hags-og inn­an­rík­is­ráðu­neytið birti skýrslu um stöðu lands­sjóðs­ins en stjórn­ar­and­staðan hafði marg­sinnis kraf­ist þess að skýrslan yrði birt, áður en gengið yrði til kosn­inga. Óhætt er að segja að segja að þar blasi við dekkri mynd en flestum hafði til hugar komið, kolsvört er víst óhætt að segja.

Í fjár­lögum þessa árs var gert ráð fyrir 20,8 millj­óna króna afgangi (432 millj­örðum íslenskra króna) en sam­kvæmt skýrsl­unni verður hins­vegar halli uppá 282 millj­ónir króna (tæp­lega 5.9 millj­arðar íslenskra króna). Græn­lensku fjár­lögin hljóða uppá 6.6. millj­arða króna (137 millj­arða íslenskra króna). Ekki er ofmælt að Græn­lend­ingum hafi brugðið illi­lega við þessar fréttir en Vittus Qujaukitsoq fjár­mála­ráð­herra í stjórn Alequ Hammond harð­neit­aði að stjórnin hefði reynt að leyna þessum upp­lýs­ingum vegna kosn­ing­anna.

Minni skatt­tekjur og lægri tekjur af mak­ríl­veiði er sagðar skýra þennan mikla mun og enn­fremur hafði rík­is­stjórnin efnt til mik­illa útgjalda til að efla atvinnu í land­inu.

Hvað er til ráða?


Danskir fjár­mála­sér­fræð­ingar eru á einu máli um að erf­ið­leik­arnir sem Græn­lend­ingar standi frammi fyrir séu miklir. Ef ekki verði brugð­ist við ástand­inu með mark­vissum aðgerðum blasi algjört hrun við íbúum Græn­lands. Fisk­veiðar eru mik­il­væg­asta tekju­lind lands­ins en ekki er hægt að gera ráð fyrir auknum tekjum af veiðum og vinnslu á næstu árum, að minnsta kosti ekki sem neinu nemi. Þótt græn­lenska ríkið geti ef til vill fengið miklar tekjur af náma-og olíu­vinnslu þegar fram líða stundir, er þó langt í að þær tekjur fari að streyma í rík­is­kass­ann.

Danskir fjöl­miðlar hafa fjallað ítar­lega um ástandið á Græn­landi og sér­fræð­ingar sem þeir hafa rætt við segja ástæðu­laust fyrir Græn­lend­inga að leggja árar í bát þótt á móti blási. Græn­lend­ingar fái árlega all­mikla pen­inga frá Danmörku og ESB, ekki sé hægt að búast við hærri fjár­fram­lögum af því tagi á næstu árum.

Sér­fræð­ing­arnir benda á að margir erlendir aðilar séu vafa­lítið til­búnir að leggja fé í atvinnu­upp­bygg­ingu og benda á að mikil þörf sé á nýju íbúð­ar­hús­næði, líka vanti hafnir, brýr og vegi. Brýnt sé að stækka flug­völl­inn í Ilulissat, það sé ein af for­sendum þess að efla ferða­manna­straum­inn sem sé mik­il­væg tekju­lind og þar leyn­ist miklir mögu­leikar, sem hafi ekki verið nýttir sem skyldi.

Margir tilbúnir að aðstoða og þá rís sólin á ný


Í Danmörku eru margir öfl­ugir sjóðir og tals­menn nokk­urra þeirra hafa strax tekið vel í hug­myndir um að leggja fé í atvinnu­upp­bygg­ingu á Græn­landi. Stór alþjóð­leg fyr­ir­tæki hafa á síð­ustu árum sömu­leiðis sýnt Græn­landi mik­inn áhuga, þann áhuga þarf að nýta með skyn­sam­legum hætti segja dönsku sér­fræð­ing­arnir. Allt sé þetta á byrj­un­ar­reit en rýnt sé að Græn­lend­ingar leggi „inn­an­sveit­ar­þras“ til hliðar og ein­beiti sér í sam­ein­ingu að þeim brýnu verk­efnum sem við blasi. „Þá mun sólin aftur rísa yfir Græn­landi“ sagði einn dönsku sér­fræð­ing­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár