Yfir þúsund milljarða halli verður á íslenska lífeyriskerfinu

Hallinn á íslenska líf­eyr­is­kerf­inu verður yfir eitt þús­und millj­arðar króna á næsta ári, þegar byrjað verður að reikna auknar ævi­líkur Íslend­inga inn í stöðu þess. Það þýðir að það vanti rúm­lega eitt þús­und millj­arða króna til þess að kerfið geti staðið undir þeim skuld­bind­ingum sem það hefur heitið sjóðs­fé­lögum sínum, lands­mönnum öllum.

Íslenska ríkið „skuldar“ líf­eyr­is­sjóð­unum stærstan hluta þess­arrar upp­hæðar vegna ábyrgðar sem það er í vegna líf­eyr­is­sjóðs­greiðslna opin­berra starfs­manna. Ekki hefur verið gripið til neinna beinna aðgerða til að taka á þessum vanda und­an­farin ár, hvorki af hálfu síð­ustu rík­is­stjórn né þeirri sem nú situr. Því eykst vand­inn ár frá ári.

Tvö kerfi


Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins eru tvenns­konar. Annars vegar eru þeir sem telj­ast til almenna kerf­is­ins og hins vegar eru þeir sem eru með ábyrgð opin­bera aðila, ríkis eða sveit­ar­fé­laga. Þegar horft er á alla sjóð­ina, bæði opin­bera og almenna, þá voru skuld­bind­ingar þeirra um 2.933 millj­arðar króna í lok síð­asta árs.

Kjarninn greindi frá því í gær að skuld­bind­ingar íslenskra líf­eyr­is­sjóða muni aukast um 10-15 pró­sent á næsta ári þegar byrjað verður að reikna með auknum ævi­líkum Íslend­inga við útreikn­inga á skuld­bind­ingum þeirra.

[quote font="0" align="right"]Miðað við það munu skuld­bind­ing­arnar hækka um 293 til 440 millj­arða króna á einu bretti með þessum breyttu reikn­ings­að­ferðum. [/quote]

Miðað við það munu skuld­bind­ing­arnar hækka um 293 til 440 millj­arða króna á einu bretti með þessum breyttu reikn­ings­að­ferðum. Líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa út næsta ár til að bregð­ast við þess­ari stöðu. Það munu þeir þurfa að gera með því að hækka eft­ir­launa­aldur, hækka iðgjöld sem við borgum til þeirra um hver mán­að­ar­mót og breyta dreif­ingu rétt­inda.

Allt að 1.100 milljarða mun vantar í sjóðina


Í lok síð­asta árs vant­aði 664 millj­arða króna inn í íslensku líf­eyr­is­sjóð­ina til að þeir gætu staðið við þessar skuld­bind­ingar. Við breyt­ingu á reikn­ings­að­ferð mun sá halli aukast í 957 til 1.104 millj­arða króna miðað við stöð­una í árs­lok í fyrra. Það mun, með öðrum orðum, vanta í besta falli tæp­lega eitt þús­und millj­arða króna til að sjóð­irnir geti borgað út það sem þeir hafa skuld­bundið sig til.

Vandi kerf­anna, hins almenna ann­ars vegar og hins opin­bera hins vegar, er mjög mis­jafn. Um síð­ustu ára­mót vant­aði 596 millj­arða króna inn í opin­beru sjóð­ina. Þeir eru um það bil 40 pró­sent af kerf­inu í heild og því má ætla að 117 til 176 millj­arðar króna bæt­ist við þá hít sem ríki og sveit­ar­fé­lög skulda inn í líf­eyr­is­kerfið sem þau bera ábyrgð á. Samtals er hall­inn á því kerfi, sem vex ár frá ári, því orðin 713 til 772 millj­arðar króna. Langstærsti hluti þess­arrar skuldar er við B-deild Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins.

[caption id="attachment_12864" align="alignnone" width="640"] Fjöldi Íslend­inga sem eru yfir 67 ára aldri mun þre­fald­ast á næstu 45 árum. Hagstofa Íslands spáir því að árið 2060 verði þeir 97 þús­und.[/caption]

Almenna kerfið er í betri málum, þótt það þurfi sann­ar­lega að bregð­ast við þeim breytta veru­leika sem síaukið lang­lífi skapar líf­eyr­is­sjóð­unum. Halli þess var um 68 millj­arðar króna í lok síð­asta árs. Við breyt­ing­una á reikn­ings­að­ferðum á stöðu sjóð­anna munu 176 til 264 millj­arðar króna bæt­ast við skuld­bind­ingar þeirra.

Þessu verður óhjá­kvæmi­lega mætt með því að hækka eft­ir­launa­aldur í allt að 70 ár, með því að hækka iðgjöldin sem við borgum til sjóð­anna um hver mán­að­ar­mót og með ein­hvers­konar skerð­ingu rétt­inda, til dæmis með því að dreifa töku líf­eyris á fleiri ár.

Lögum breytt til í stað þess að taka á vandanum


Þessar aðferðir duga hins vegar ekki opin­bera kerf­inu einar og sér. Þar þarf líka að greiða inn í kerfið til að brúa þann gríð­ar­lega halla sem skap­ast hefur á B-deildum opin­beru sjóð­anna vegna sinnu­leysis stjórn­valda und­an­farin ár. Á árunum fyrir hrun var reyndar byrjað að takast á við hall­ann og frá árinu 1999 fram að hruni voru nokkrir millj­arðar króna greiddir árlega til að minnka gatið. Því var snar­lega hætt eftir hrun og engin þeirra rík­is­stjórna sem setið hafa síðan þá hefur séð til­efni til að byrja á slíkum greiðslum aftur. Á meðan stækkar gatið dag frá degi.

[quote font="0" align="right"] Í stað þess að taka á vanda­mál­inu er hins vegar lagt fram nýtt laga­frum­varp árlega sem heim­ilar opin­beru sjóð­unum að safna meiri halla.[/quote]

Vanda­málið liggur þó ekki bara hjá B-deild­unum, heldur líka hjá A-deildum sjóð­anna. Sá halli sem er á þeim er bein­leiðis ólög­legur. Í stað þess að taka á vanda­mál­inu er hins vegar lagt fram nýtt laga­frum­varp árlega sem heim­ilar opin­beru sjóð­unum að safna meiri halla.

Nú síð­ast var það lagt fram í sept­em­ber síð­ast­liðnum . Samkvæmt lögum mátti ekki reka A-deild Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna sveit­ar­fé­laga og sömu deild innan Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna ríks­ins með meira en 11 pró­sent halla. Sveita­fé­laga­sjóð­ur­inn var rek­inn með 12,5 pró­sent halla og A-deild LSR með 11,7 pró­sent halla árið 2013. Til að takast á við þessa stöðu var svig­rúmið ein­fald­lega hækkað upp í 13 pró­sent með nýju laga­frum­varpi og sá tími sem heim­ilt er að reka sjóð­ina­yfir 10 pró­sent halla lengdur úr sex árum í sjö. Árið í ár er því sjö­unda árið í röð sem A-deild sjóðs­ins er nei­kvæð. Haldi þetta áfram verður sjóð­ur­inn auð­vitað á end­anum tómur.

Séreignakerfi verður húsnæðissparnaður


Það virð­ist samt vera að Íslend­ingar séu ekk­ert mikið að hugsa um þessi mál. Þessi grafal­var­lega staða líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins nær vart inn í hið póli­tíska svið og lít­ill þrýst­ingur virð­ist vera um úrbætur í opin­berri umræðu, nema frá líf­eyr­is­sjóð­unum sjálfum.

Þess utan virð­ast ekki margir vera að átta sig á hversu mikil kjara­skerð­ing fylgir því að fara á eft­ir­laun. Hún ýtir mörgum undir lág­marks­fram­færslu­við­mið, sem eru í dag um 290 þús­und krónur sam­kvæmt vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu.

Til Íslend­ingar gætu átt í sig og á í ell­inni var sér­eign­ar­líf­eyr­is­sparn­að­ar­kerfi því ýtt úr vör. Þar varð mikil eign­ar­myndun allt þar til að síð­asta rík­is­stjórn ákvaða að heim­ila fólki að taka út sér­eign­ar­sparn­að­inn sinn til að eyða í skamm­tíma­vanda­mál. Þessi leið var líka tekju­öfl­un­ar­leið fyrir ríkið, sem skatt­leggur útgreiðsl­urnar.

[quote font="0" align="right"]Vegna þess höfðu um 100 millj­arðar króna flætt út úr sér­eign­ar­kerf­inu um síð­ustu ára­mót. eftir sátu rúm­lega 400 millj­arðar króna. [/quote]

Vegna þess höfðu um 100 millj­arðar króna flætt út úr sér­eign­ar­kerf­inu um síð­ustu ára­mót. eftir sátu rúm­lega 400 millj­arðar króna. Til við­bótar er sitj­andi rík­is­stjórn að bjóða fólki hið ómót­stæði­lega til­boð að láta sér­eign­ar­sparn­að­inn sinn renna í að borga niður hús­næð­is­lán sín, skatt­frjálst. Upp­haf­lega átti þessi leið að vera til fjög­urra ára en mik­ill póli­tískur vilji er til að hún verði fram­lengd.

Ljóst er að ef af því verður mun sú stjórn­valds­á­kvörðun að breyta sér­eign­ar­sparn­aði flestra í hús­næð­is­sparnað ganga mjög nærri sér­eign­ar­kerf­inu. Þá er eins gott að allir geti fengið gott verð fyrir húsin sín þegar þeir eru komnir á eft­ir­laun og geti þá notað ágóðan til að brúa bilið frá líf­eyri og upp að lág­marks­fram­færslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár