Skuldir lífeyrissjóðanna munu aukast um allt að 440 milljarða króna

Á næsta ári munu skuld­bind­ingar íslenskra líf­eyr­is­sjóða aukast um 10-15 pró­sent þegar byrjað verður að reikna með auknum ævi­líkum okkar við útreikn­inga á skuld­bind­ingum þeirra. Miðað við skuld­bind­ingar líf­eyr­is­sjóða í lok síð­asta árs, sem voru 2.933 millj­arðar króna, mun þetta þýða að að skuld­bind­ing­arnar muni hækka um 293,3 til 440 millj­arða króna á einu bretti. Til að mæta þessum breyt­ingum þarf að hækka eft­ir­launa­aldur, hækka iðgjöld og breyta dreif­ingu rétt­inda. Ákvörðun um þessar breyt­ingar þarf að taka á næsta ári.

Þetta er meðal þess sem kom fram á mál­þingi á vegum Lands­sam­taka líf­eyr­is­sjóða um breyttar lífslíkur og áhrif þess á líf­eyr­is­sjóði sem haldið var í gær.

Lifum miklu lengur


Íslend­ingar eru farnir að lifa miklu lengur en þeir gerðu áður, og er það auð­vitað hið mesta gleði­efni. Þessi aukni líf­tími á sér margar ástæður. Fram­þróun í heil­brigð­is­vís­indum, betra matar­æði, meiri hreyf­ing, bætt lífs­gæði og aukin vit­neskja um allt sem skaðar okkur eru allt breytur sem skipta þar miklu máli.

Því fylgja þó óhjá­kvæmi­lega ákveðin sam­fé­lags­leg vanda­mál þegar fólk lifir alltaf lengur og lengur. Fjöldi Íslend­inga sem eru yfir 67 ára aldri, sem í dag er lög­bund­inn eft­ir­launa­aldur, mun enda þre­fald­ast á næstu 45 árum. Hagstofa Íslands spáir því að árið 2060 verði þeir 97 þús­und. Álag mun aukast á heil­brigð­is­kerfið, á hjúkr­un­ar­heim­ilin og auð­vitað þarf að greiða fólki sem lifir lengur líf­eyri lengur.

Kostar okkur meira að lifa svona lengi


Þótt ævi­líkur Íslend­inga, sem og ann­arra þjóða, hafi verið að aukast jafnt og þétt í langan tíma þá hafa trygg­inga­stærð­fræð­ing­arnir sem reikna út skuld­bind­ingar líf­eyr­is­sjóða, það sem þeir þurfa að greiða sjóðs­fé­lögum sínum í líf­eyri, hingað til notað for­tíð­ina sem við­mið. Síðast þegar þeir reikn­uðu út ævi­líkur þá var það til að mynda gert fyrir árin 2007 til 2011. Og þær ævi­líkur síðan not­aðar til að ákvarða hvað Íslend­ingar yrðu að með­al­tali gamlir. Svarið var að karlar yrðu að með­al­tali 79,5 ára en konur 83,6 ára. Á árunum 1966 til 1970 lifðu karlar að með­al­tali í 70,8 ár en konur í 77,6 ár. Ævi­lík­urnar hafa því auk­ist gríð­ar­lega á skömmum tíma.

[caption id="attachment_12903" align="alignnone" width="1536"] Fjöldi Íslend­inga sem eru yfir 67 ára aldri mun þre­fald­ast á næstu 45 árum. Hagstofa Íslands spáir því að árið 2060 verði þeir 97 þús­und.[/caption]

Frá og með næsta ári verður breyt­ing á. Frá þeim tíma munu trygg­inga­stærð­fræð­ing­arnir einnig not­ast við spá um áfram­hald­andi lengri lífaldur þegar þeir reikna út hvað líf­eyr­is­sjóð­irnir skulda okkur.

Nið­ur­staðan var kynnt á mánu­dag á mál­þingi á vegum Lands­sam­bands líf­eyr­is­sjóða. Þegar auknar lífslíkur þjóð­ar­innar eru teknar með í reikn­ing­inn þá kemur í ljós að skuld­bind­ingar líf­eyr­is­sjóð­anna muni hækka, á einu bretti, um 10-15 pró­sent.

Skuld­bind­ingar íslenskra líf­eyr­is­sjóða voru í lok síð­asta árs 2.933 millj­arðar króna. Nýju útreikn­ing­arnir, sem munu gilda frá og með næsta ári, munu því hækka skuld­bind­ing­arnar strax um 293,3 til 440 millj­arða króna. Eignir í sam­trygg­ing­ar­sjóðum líf­eyr­is­sjóð­anna voru 2.400 millj­arðar króna í lok síð­asta árs. Því eru eign­irnar 826,3 til 973 millj­örðum krónum frá því að standa undir áföllnum skuld­bind­inum.

Hafa út næsta ár til að bregðast við


Gunnar Bald­vins­son, stjórn­ar­for­maður Lands­sam­taka líf­eyr­is­sjóða, segir að þessi nið­ur­staða komi sér í raun ekki á óvart, en að hún kalli á breyt­ingar. „Við erum vel með­vituð um þá þróun sem er í gangi og umræður um að breyta um aðferð­ar­fræði hafa verið í gangi. Við höfum því reiknað með að ævi­líkur haldi áfram að hækka. Í stað þess að breyta rétt­indum á þriggja ára fresti þegar nýjar lífslíkur koma þá er til bóta að taka inn þessar breyt­ingar á ævi­líkum.

[caption id="attachment_12902" align="align­right" width="150"] Gunnar Bald­vins­son, stjórn­ar­for­maður Lands­sam­taka líf­eyr­is­sjóða.[/caption]

Ef við gerum það þá erum við að lofa rétt­indum sem ekki breyt­ast og það verður auð­veld­ara að meta hver rétt­indin verða við starfs­lok. Við þurfum hins vegar tíma til að bregð­ast við þessu. Þetta mun að öllum lík­indum hafa áhrif á eft­ir­launa­aldur, iðgjöld og að ein­hverju leyti rétt­indi.“

Það er því sem­sagt þrennt sem hægt er að gera: hækka eft­ir­launa­aldur, lík­lega í 70 ár, hækka iðgjöld sem við greiðum til líf­eyr­is­sjóð­anna um hver mán­að­ar­mót eða að skerða rétt­indi með ein­hverjum hætti, til dæmis með því að dreifa heild­ar­greiðslum sem hver og einn fær á fleiri ár en nú er gert.

Og þetta er ekki lengur fjar­lægt fram­tíð­ar­vanda­mál. Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa út næsta ár til að bregð­ast við þessum breytta veru­leika. Þetta er að ger­ast núna.

Nágrannalöndin hafa breytt kerfum


Það eru auð­vitað ekki bara Íslend­ingar sem eru að lifa lengur. Það er þróun sem á sér stað all­staðar í heim­inum og fleiri ríki hafa þurft að end­ur­skoða líf­eyr­is­kerfi sín vegna þessa. Það var nefni­lega mjög vin­sæl leið til að ná sér í atkvæði í mörgum Evr­ópu­löndum á árunum fyrir ald­ar­mót að lækka eft­ir­launa­aldur. Slíkar aðgerðir voru oft rök­studdar með því að þá myndi skap­ast meira pláss fyrir ungt fólk á vinnu­mark­aði. Þessar aðgerðir höfðu nán­ast und­an­tekn­ing­ar­laust ekki þær afleið­ingar.

Þvert á móti sátu mörg þess­arra ríkja, sem flest eru með gegn­um­streymis-líf­eyr­is­kerfi, eftir með risa­stórar líf­eyr­is­skuld­bind­ingar sem þau réðu alls ekki við að greiða til fram­tíðar. Þess vegna hafa þau farið skarpt í það að breyta kerf­unum aftur til baka og hækka eft­ir­launa­aldur, þrátt fyrir litlar póli­tískar vin­sældir slíkra aðgerða. Þetta hefur verið gert í þrettán Evr­ópu­löndum nú þegar: Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Hollandi, Bret­landi, Þýska­landi, Frakk­landi, Lúx­em­borg, Írlandi, Ítalíu, Króatíu, Möltu og Slóveníu.

Kjarninn mun halda áfram að fjalla um líf­eyr­is­kerfi lands­manna næstu daga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár