Niðurstaða EFTA-dóms gæti fært þúsund milljarða til lántakenda

EFTA-dóm­stóll­inn komst að þeirri nið­ur­stöðu í morgun að ekki sé heim­ilt að miða við 0 pró­sent verð­bólgu við útreikn­ing á heild­ar­lán­töku­kostn­aði ef verð­bólgan er hærri eða lægri en sú tala. Dóm­stóll­inn var beð­inn um að gefa ráð­gef­andi álit í máli Sævars Jóns Gunn­ars­sonar gegn Lands­bank­anum, sem höfðað hafði verið vegna verð­tryggðs neyt­enda­láns sem Sævar tók haustið 2008. Í nið­ur­stöð­unni segir einnig að það sé lands­dóm­stóls að meta hvaða áhrif það hafi að gefa rangar upp­ýs­ingar um heild­ar­lán­töku­kostnað og hvaða úrræðum sé hægt að beita til að bæta fyrir þær upp­lýs­ingar.

[quote font="0" align="right"]Þessi nið­ur­staða gæti haft ótrú­lega víð­tæk áhrif á íslenskt sam­fé­lag. Hæsti­réttur Íslands hefur nú tvo val­kosti: annað hvort horfir hann til fyrstu máls­greinar 14. greinar gömlu laga okkar um neyt­enda­mál. [...]Hæsti­réttur getur líka horft til þriðju máls­greinar sömu laga og kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að verð­tryggð lán séu ekki ólög­mæt. [/quote]

Þessi nið­ur­staða gæti haft ótrú­lega víð­tæk áhrif á íslenskt sam­fé­lag. Hæsti­réttur Íslands hefur nú tvo val­kosti: annað hvort horfir hann til fyrstu máls­greinar 14. greinar gömlu lag­anna okkar um neyt­enda­mál. Þá verða öll verð­tryggð neyt­enda­lán ólög­mæt og verð­bætur vegna þeirra þarf þá vænt­an­lega að end­ur­greið­ast. Það þýðir að lán­veit­endur þurfa að borga til baka allar verð­bætur vegna fast­eigna­lána, bíla­lána, yfir­drátta og ann­arra verð­tryggðra neyt­enda­lána sem tekin hafa verið frá því að til­skipun Evr­ópu­sam­bands­ins var inn­leidd. Hæsti­réttur getur líka horft til þriðju máls­greinar sömu laga og kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að verð­tryggð lán séu ekki ólög­mæt.

Undir eru hund­ruð, ef ekki þús­undir, millj­arða króna. Ef fyrri kost­ur­inn verður ofan á eiga þeir fjár­munir að renna til íslenskra lán­tak­enda frá ríki, bönkum og líf­eyr­is­sjóðum. Ef seinni kost­ur­inn verður ofan á þá helst staðan eins og hún er.

Tveimur málum vísað til EFTA-dómstólsins


Tveimur málum var vísað til EFTA-dóm­stóls­ins. Það fyrra, sem var tekið fyrir þar í apríl 2014, snérist um hvort verð­trygg­ingin væri ósann­gjarn samn­ings­skil­máli í skiln­ingi til­skip­unar sem inn­leidd var í íselsnka lög­gjöf frá Evr­ópu­sam­band­inu. Í því máli beindi hér­aðs­dómur fimm spurn­ingum til EFTA-dóm­stóls­ins og óskaði eftir ráð­gef­andi áliti. EFTA-dóm­stóll­inn skil­aði áliti sínu í því máli 28. Ágúst síð­ast­lið­inn. Þar sagði að verð­trygg­ing neyt­enda­lána væri ekki í bága við Evr­óputil­skip­un­ina.

[caption id="attachment_1878" align="alignnone" width="720"] Fast­eigna­lán féllu undir lögin árið 2000. Allar greiddar verð­bætu frá þeim tíma yrðu að end­ur­greið­ast ef Hæsti­réttur tekur undir álit EFTA-dóm­stóls­ins.[/caption]

Seinna málið var flutt í júní. Í því var sömu fimm spurn­ing­unum beint til EFTA-dóm­stóls­ins en einni bætt við. Hún snýst til­skipun um hlut­falls­tölu kostn­aðar. Á manna­máli þýðir það að þegar ein­hver er að taka lán þá á að koma fram hver kostn­aður vegna láns­ins verður. Í Evrópu myndi slík tala sam­an­standa af vöxtum og lán­töku­gjaldi. Þegar íslensku bank­arnir og Íbúða­lána­sjóður hafa verið að reikna þessa hlut­falls­tölu þá hefur verð­trygg­ingin verið und­an­skilin, þrátt fyrir að hún hafi sann­ar­lega áhrif á hver kostn­aður láns­ins verður. Við útreikn­ingu kostn­aðar hefur ein­fald­lega bara verið miðað við að verð­bólgan sé 0 pró­sent.

0 prósent átti að sýna rétta stöðu


Þessi til­skipun var inn­leidd í íslensk lög árið 1994 og árið 2000 voru fast­eigna­lán felld undir hana. Þeir sem sækja málið vilja meina að frá þeim tíma hefði raun­kostn­aður vegna verð­trygg­ingar átt að koma fram í hlut­falls­töl­unni sem kynnt var lán­tak­endum, en ekki að það yrði ein­ungis miðað við að verð­bólgan sé 0 pró­sent. Bæði Eft­ir­lits­stofnun EFTA, ESA, og Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins hafa tekið undir þessa rök­semd­ar­færslu.

Rökin fyrir því að miða við enga verð­bólgu við útreikn­ing á kostnað lána eru þau að þannig sé staðan skýr­ust. Verð­bólga er þekkt fyr­ir­brigði á Íslandi og hún hefur sveifl­ast mikið í gegnum tíð­ina. Þeir sem hafa þessa skoðun segja þannig ómögu­legt að spá fyrir um hana og betra sé að gera lán­tak­anda ein­fald­lega grein fyrir því að verð­bólga muni hafa áhrif á lánið, í stað þess að giska á hver hún verður á láns­tím­anum. Eðli verð­trygg­ingar er auk þess þannig að laun og virði hús­næðis hækkar iðu­lega sam­hliða skuldum yfir lengri tíma vegna verð­bólgu. Því sýni 0 pró­sent rétt­ustu stöð­una. Þetta eru á meðal rök­semda lög­manna íslenska rík­is­ins í mál­inu.

Ríkið í andstöðu við sjálft sig


Lögum um neyt­enda­lán var breytt á Íslandi í fyrra. Samkvæmt nýju lög­unum á hlut­falls­legur kostn­aður verð­tryggðra lána ekki að miða lengur við 0 pró­sent heldur árs­verð­bólgu síð­ustu 12 mán­uði. Þessi breyt­ing veldur mála­rekstri íslenska rík­is­ins tölu­verðum erf­ið­leikum, enda er breyt­ingin í and­stöðu við málarök og hags­muni íslenska rík­is­ins.

[quote font="0" align="right"]Samkvæmt nýju lög­unum á hlut­falls­legur kostn­aður verð­tryggðra lána ekki að miða lengur við 0 pró­sent heldur árs­verð­bólgu síð­ustu 12 mán­uði. Þessi breyt­ing veldur mála­rekstri íslenska rík­is­ins tölu­verðum erf­ið­leikum, enda er breyt­ingin í and­stöðu við málarök og hags­muni íslenska rík­is­ins.[/quote]

Það sem aðskilur þessa spurn­ingu frá hinum fimm er sú að nið­ur­staða EFTA-dóm­stóls­ins verður alltaf annað hvort: já, þið megið und­an­skilja verð­bætur við útreikn­ing hlut­falls­tölu eða nei, þið megið það ekki.

EFTA-dóm­stóll­inn komst að þeirri nið­ur­stöðu í morgun að það megi ekki miða við 0 pró­sent við útreikn­ing hlut­falls­tölu, líkt og íslenska ríkið virð­ist raunar hafa þegar ákveðið með því að breyta lögum þannig að það er ekki lengur gert.

Nú mun Hæsti­réttur Íslands þurfa að taka afstöðu til þess­arrar spurn­ingar, sam­kvæmt gömlu lög­unum um neyt­enda­lán. Nánar til­tekið 14. grein þeirra.

Hæsti­réttur hefur þá tvo kosti: annað hvort að horfa til fyrstu máls­greinar 14. greinar þeirra laga eða þriðju máls­greinar hennar. Ef Hæsti­réttur horfir til fyrstu máls­grein­ar­innar verða öll verð­tryggð neyt­enda­lán ólög­mæt. Ef Hæsti­réttur horfir til þriðju mál­greinar verða þau það ekki.

Hæstiréttur hefur útgönguleið


Fyrsta máls­greinin segir að ef vextir og lán­töku­kostn­aður séu ekki til­greindir í lána­samn­ingi „er lán­veit­anda þá eigi heim­ilt að krefja neyt­enda um greiðslu þeirra“. Ef EFTA-dóm­stóll­inn segir að það hafi verið óheim­ilt að miða við 0 pró­sent verð­trygg­ingu þá er aug­ljóst að lán­töku­kostn­aður hafi ekki verið til­greindur í lána­samn­ingi.

[caption id="attachment_1003" align="alignnone" width="730"] Hæsti­réttur hefur nú örlög máls­ins í höndum sér. Hann getur annað hvort kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að öll verð­tryggð lán séu ólög­mæt, eða að þau séu það ekki.[/caption]

Þriðja máls­greinin gefur hins vegar Hæsta­rétti annan mögu­leika. Hún segir að ákvæði fyrstu máls­greinar eigi ekki við ef „lán­veit­andi getur sannað að neyt­anda hefði mátt vera ljóst hver lán­töku­kostn­að­ur­inn átti að vera“. Ríkið von­ast til þess að Hæsti­réttur muni velja að styðj­ast við þessa máls­grein komi til þess.

Úr einum vasa í annan


Komist Hæsti­réttur að nið­ur­stöðu i sam­ræmi við álit EFTA-dóm­stóls­ins þá þýðir það að allar greiddar verð­bætur frá inn­leið­ingu til­skip­un­ar­innar munu þurfa að end­ur­greið­ast sem nið­ur­greiðslur inn á höf­uð­stól. Það þýðir að sá sem greitt hefur t.d. tíu millj­ónir króna í verð­bætur vegna verð­tryggðs láns á tíma­bil­inu myndi fá tíu millj­óna króna nið­ur­færslu á höf­uð­stól sínum. Upp­söfnuð verð­bólga á því tíma­bili sem er undir hleypur enda á tugum pró­senta. Kostn­að­ur­inn við að „end­ur­greiða“ þessar verð­bætur til neyt­enda myndi hlaupa á hund­ruðum, ef ekki þús­undum millj­arða króna.

Íslenskir neyt­endur væru þá skyndi­lega með ein bestu lána­kjör í heimi. Aft­ur­virkt. Skuldir all­flestra sem tóku verð­tryggð fast­eigna- eða bíla­lán myndu lækka gíf­ur­lega, náms­lán í mörgum til­vikum þurrkast út, yfir­drættir hverfa osfr. En þar sem ein­hver „græðir“ þá þarf ein­hver að „tapa“. Eða borga.

Og í þessu til­felli lendir tapið að langstærstu leyti á þeim sömu sem græða, íslenskum skatt­greið­endum. Það yrði nefni­lega ríkið, sem eig­andi Íbúða­lána­sjóðs, Lands­bank­ans og nokk­urra minni fjár­mála­stofn­anna, ásamt líf­eyr­is­sjóðum lands­ins, sem eiga þorra skulda Íbúða­lána­sjóðs og eru sjálfur verð­tryggðir lán­veit­endur, sem myndu bera höggið vegna þessa.

Skaðabótaskylt gagnvart viðskiptavinum gömlu bankanna


Ríkið myndi einnig mögu­lega verða skaða­bóta­skylt gagn­vart við­skipta­vinum þeirra fjár­mála­stofn­anna sem eru ekki lengur til, eru farnar á haus­inn í kjöl­far hruns­ins, en lán­uðu verð­tryggt til við­skipta­vina sinna. Þannig þyrfti ríkið að taka á sig stóran hluta kostn­aðar sem ann­ars hefði lent á fjár­mála­fyr­ir­tækjum í einka­eigu.

[quote font="0" align="right"]Þannig væri verið að færa pen­inga úr einum vasa í annan. [/quote]

Þannig væri verið að færa pen­inga úr einum vasa í annan. Ein­stak­ling­arnir sem mynda sam­fé­lagið væru að fá greiðslu úr sam­eig­in­legum sjóðum sínum og nokk­urs­konar fyr­ir­fram­greiðslu á líf­eyr­inum sínum. Nið­ur­staðan yrði sú að skuldir ein­stak­linga myndu lækka gíf­ur­lega en staða rík­is­sjóðs yrði óbæri­leg og líf­eyr­is­kerfið myndi lík­ast til fara langt með að eyði­leggj­ast.

Hvorki ríkið, líf­eyr­is­sjóðir né einka­bank­arnir hafa áætlað hver mögu­legur kostn­aður þeirra yrði vegna slíkrar nið­ur­stöðu. Þessir aðilar hafa að minnsta kosti ekki viljað gera þær áætl­anir opin­berar. En ljóst er að um væri að ræða mestu ágjöf sem orðið hefur á það íslenska kerfi sem hefur verið byggt upp hér frá því að það vera reist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár