Langhæstu launin í ensku deildinni, Danir borga best í Skandinavíu

Leikmenn ensku úrvalds­deild­ar­innar eru með lang­hæstu laun allra knatt­spyrnu­manna. Með­al­laun úrsvals­deild­ar­leik­manns í Englandi eru 43,717 pund, um 8,5 millj­ónir króna, á viku. Árslaun þeirra eru því að með­al­tali tæp­lega 2,3 millj­ónir punda, eða um 440 millj­ónir króna. Næst hæstu launin eru greidd í Þýsku Bundeslig­unni. Leikmenn þar fá um 2/3 hluta af því sem leik­menn­irnir í ensku deild­inni fá greitt. Þetta kemur fram í sam­an­tekt sem Daily Mail birti fyrir skemmstu.

[caption id="attachment_12699" align="alignnone" width="3592"] Wayne Rooney, sókn­ar­maður Manchester United, er á meðal hæst laun­uð­ustu leik­manna heims. Hann fær um 300 þús­und pund, rúm­lega 58 millj­ónir króna, á viku frá félagið sínu.[/caption]

Hver leik­maður í ensku úrvals­deild­inni þénar því um 1,2 millj­ónir króna á hverjum degi, eða um 36,5 millj­ónir króna á mán­uði. Reglu­leg mán­að­ar­laun full­vinn­andi launa­manna á ís­lensk­um vinnu­mark­aði voru 436 þús­und krón­ur að með­al­tali árið 2013. Það tekur því með­al­mann­inn á Íslandi um 84 mán­uði að vinna sér inn mán­að­ar­laun með­al­leik­manns í ensku úrvals­deild­inni.

Einn íslenskur leik­maður leikur í efstu deild í Englandi. Hann heitir Gylfi Sig­urðs­son og leikur með Swansea.

Danir borga best í Skandinavíu


Meðalaun leik­manna í þýsku Bundeslíg­unni eru um 5,4 millj­ónir króna á viku, eða um 281 millj­ónir króna á viku. Laun leik­manna þar eru lítið eitt hærri en með­al­laun leik­manna í Serie A á Ítalíu (4,9 millj­ónir króna á viku) og í La Liga á Spáni (4,5 millj­ónir króna).

Í fimmta sæt­inu er síðan efsta deild í Frakk­landi þar sem hið mold­ríka PSG-lið spilar sinn fót­bolta. Rúss­neska deildin fylgir þar á eftir og hæst­laun­að­asta knatt­spyrnu­deild utan Evrópu, sú brasil­íska, situr í sjö­unda sæt­inu. Þar á eftir kemur síðan næstefsta deildin í Englandi, sem nefn­ist Championship-deildin.

Af skand­in­av­ísku deild­unum borgar danska Superligan best, eða um 550 þús­und krónur á viku. Hin norska Tipp­eligaen er ekki langt undan en með­al­viku­laun leik­manna í henni eru um 430 þús­und á viku. Lið í hinni sænsku Alls­venskan borga tölu­vert minna að með­al­tali, eða um 324 þús­und krónur á viku.

Sú deild sem rekur lest­ina í sam­an­tekt Daily Mail, og situr í 34. sæti á list­anum, er sú níger­íska. Þar fá leik­menn ein­ungis um 25 þús­und krónur að með­al­tali á viku. Sam­an­tektin náði ekki yfir hina íslensku Pepsí-deild.

Hægt er að sjá list­ann í heild sinn hér að neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár