Sérfræðingar og nemar við CBS rannsaka kaupasýki Dana

Talið er að um 300 þús­und Danir séu haldnir því sem kallað er kaupa­sýki (köbem­ani). Nú ætla nemar og sér­fræð­ingar við Við­skipta­há­skól­ann í Kaup­manna­höfn (CBS) að freista þess að kom­ast að hvað veldur þess­ari sýki, til­gang­ur­inn er að finna aðferðir til að lækna kaupa­sýk­ina.

Flestir hafa heyrt um eða þekkja jafn­vel ein­hvern sem að sögn er hald­inn kaupa­sýki. Erfitt er að skil­greina þetta fyr­ir­bæri með nákvæmum hætti, en það lýsir sér oft­ast þannig að sá eða sú kaupa­sjúka getur varla stigið fæti inn í verslun án þess að kaupa eitt­hvað. Þá iðu­lega hluti sem við­kom­andi hefur enga þörf fyrir og keypti bara án þess að hafa leitt hug­ann að því fyr­ir­fram að akkúrat þennan hlut (jakka, blóma­vasa o.s.frv. o.s.frv.) væri þörf á að eign­ast.

Iðulega endar það sem keypt er með þessum hætti inni í skáp, ónotað, og endar loks í rusl­inu eða í ein­hvers konar end­ur­nýt­ingu. Þeir sem eru illa haldnir af sýk­inni missa algjör­lega stjórn­ina, eyða öllum sínum pen­ingum í inn­kaupin, taka svo lán á lán ofan til að geta haldið áfram að kaupa og leggja á end­anum fjár­hag sinn og fjöl­skyld­unnar í rúst. Í mörgum löndum eru stofn­anir sem reyna að hjálpa fólki að takast á við kaupa­sýk­ina. Hér í Danmörku eru fleiri en ein slík, sú þekktasta er Dansk Misbrugs Behand­ling (DMB) sem reyndar hefur margt fleira á sinni könnu svo sem með­ferð við áfeng­is­sýki og spilafíkn.

Stór hópur sem fer ört stækkandi


Í Danmörku hefur kaupa­sýkin verið tals­vert rann­sökuð. Fyrir nokkrum árum birt­ust í skýrslu stofn­unar sem heitir Psyki­at­ri­fonden tölur um kaupa­sjúka Dani, shopaholics eins og þeir eru nefndir. Mörgum kom á óvart hve margir eru, sam­kvæmt skýrsl­unni haldnir kaupa­sýk­inni, 300 þús­und manns. Þessi tala er þó ekki mjög áreið­an­leg og ýmis­legt bendir til að hún sé of lág. Til­tölu­lega fleiri konur en karlar eru haldnar sýk­inni að því er fram kemur í skýrsl­unni.

Hvað veldur kaupasýkinni?


Á und­an­förnum árum hafa margir spurt þess­arar spurn­ingar en fátt verið um svör. Óánægja og lífs­leiði er iðu­lega nefnt til skýr­ingar, öfund­sýki og sam­an­burður við náung­ann (hann á fjöl­hraða bor­vél en ekki ég, Sigga í næsta húsi er barasta með nýja hanska á hverjum degi, hún er líka með nýtt borð­stofu­sett o.s.frv.). Sér­fræð­ingar DMB segja að þessar skýr­ingar geti vissu­lega stundum átt við en flestum til­vikum sé orsakanna þó að leita ann­ars staðar. En hvar? Það er stóra spurn­ingin.

Rannsóknir Viðskiptaháskólans


Í fyrra gerðu sér­fræð­ingar og nemar við Við­skipta­há­skól­ann, CBS rann­sókn sem segja má að sé und­an­fari þeirrar rann­sóknar sem nú er að hefj­ast. Í þeirri rann­sókn (sem 100 konur tóku þátt í) fékk hver um sig afhenta til­tekna pen­inga­upp­hæð sem eyða mátti til kaupa á fatn­aði, skóm eða töskum. Konunum voru jafn­framt sýndar myndir af ýmsum frekar dýrum merkja­vörum. Í ljós kom að af þessum hópi, sem val­inn var af handa­hófi voru um það bil 10 pró­sent sem flokka mætti kaupa­sjúkar. Þessi 10 pró­sent hættu ekki að kaupa þótt pen­ing­arnir sem þær fengu úthlutað væru búnir.

Rann­sóknin sem nú er að hefj­ast er með öðrum hætti. Hver þáttak­andi fær sér­stök gler­augu sem mæla augn­hreyf­ingar og með sér­stökum mæli­tækjum (komið fyrir á höfð­inu, undir húfu) verður hægt að mæla við­brögð heil­ans meðan versl­un­ar­ferðin stendur yfir. Eftir á verða svo tekin við­töl við þáttak­endur. Sér­fræð­ing­arnir von­ast til að kom­ast að því hvenær þær kaupa­sjúku lenda út af spor­inu, ef svo má segja, er það áður en þær fara inn í búð­ina eða þegar þær sjá hlut­inn eða hlut­ina sem þær verða að eign­ast. Nokkrar versl­anir í Kaup­manna­höfn taka þátt í þessu verk­efni, en ekki hefur verið látið uppi hvaða versl­anir það eru og ekki heldur nákvæm­lega hvenær rann­sóknin hefst. Sér­fræð­ing­arnir hjá CBS von­ast til að þessi rann­sókn leiði til þess að auð­veld­ara verði að hjálpa þeim sem glíma við kaupa­sýk­ina að sigr­ast á henni.

„Við gerum okkur grein fyrir því að slík lækn­ing hentar kannski ekki þeim sem standa í versl­ana­rekstri en hún er þeim mun gagn­legri fyrir þá sem haldnir eru sýk­inni,“ sagði einn sér­fræð­inga Við­skipta­há­skól­ans í blaða­við­tali fyrir nokkrum dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár