Skuldir Hótel Sögu niðurfelldar í fyrra og hótelið nú til sölu

Tilkynnt var um það í dag að Hótel Saga, sem er í eigu Bænda­sam­taka Íslands, sé til sölu og sagt að mik­ill áhugi fjár­festa sé á að kaupa þetta sögu­fræga hótel við Hagatorg. Hótelið sjálft er 209 her­bergi en auk þess er ýmis önnur starf­semi í þessu 19 þús­und fer­metra stóra húsi. Þar á meðal eru skrif­stofur Bænda­sam­taka Íslands.

Í til­kynn­ingu þeirra vegna fyr­ir­hug­aðrar sölu á hót­el­inu segir að „sam­hliða miklum vexti í ferða­þjón­ustu hefur rekstur Hótel Sögu gengið vel[...]Nú er rétti tím­inn til að skoða hvort það geti verið hag­fellt fyrir Bænda­sam­tökin að eft­ir­láta sér­hæfðan hót­el­rekstur í hendur aðila sem vilja byggja sig upp á þeim vett­vangi en ávaxta þess í stað eignir sam­tak­anna með öðrum hætti“.

Eigið fé var neikvætt um 1,8 milljarða króna


Samkvæmt síð­asta birta árs­reikn­ingi Bænda­sam­taka Íslands, fyrir árið 2013, er það hins vegar ofsögum sagt að rekstur Hótel Sögu hafi gengið vel und­an­farin ár. Árið 2009 var eigið fé hót­els­ins nei­kvætt um 1,8 millj­arða króna og vegna mik­illa skulda var virði eigin fjár Bænda­sam­tak­anna fært niður í núll á árinu 2010. Það þýðir að virði eign­ar­hlut­ar­ins var á þeim tíma talið ekk­ert.

[caption id="attachment_12453" align="align­right" width="150"] Sindri Sig­ur­geirs­son.[/caption]

Í fyrra gekk Hótel Saga í gegnum fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu. Kjarninn greindi frá því í mars síð­ast­liðnum að Bænda­sam­tökin hefðu lagt Hótel Sögu til 250 millj­ónir króna í nýtt eigið fé gegn því að fá skuldir Hótel Sögu nið­ur­felldar. Þetta var á meðal sam­komu­lags­at­riða í þrí­hliða sam­komu­lagi Bænda­sam­tak­anna, Arion banka og Hótel Sögu ehf. um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu hót­els­ins. Sindri Sig­ur­geirs­son, for­maður stjórnar Bænda­sam­tak­anna, vildi þá ekki upp­lýsa um hversu miklar skuldir hefðu verið nið­ur­felldar. Í til­kynn­ingu sem hann sendi í kjöl­far umfjöll­unar Kjarnans sagði Sindri hins vegar að hluta­fjár­hækk­un­unin hafi verið fjár­mögnuð „að stærstum hluta með lánsfé, eða 165 millj­ónir króna, og að hluta með sjálfsaflafé, eða 85 millj­ónir króna“.

Í skýr­ingum í árs­reikn­ingnum kemur hins vegar fram að Arion banki hafi leyst til sín allt hlutafé í Hótel Íslandi, sem var einnig í eigu Bænda­sam­tak­anna, í tengslum við upp­gjörið en það hefur nú verið selt til nýrra eig­enda. Tekið var fram að víkj­andi lán Bænda­sam­tak­anna til Hótel Sögu hafi verið fellt niður og nýír lána­samn­ingar gerðir við Arion banka. „Með þessum aðgerðum er sú bið­staða, sem lesa hefur mátt út úr árs­reikn­ingum Bænda­sam­tak­anna und­an­farin ár um Hótel Sögu ehf., að baki.“

Bókfærðu Hótel Sögu á 410 milljónir króna


Bænda­sam­tökin fá tekjur meðal ann­ars af fjár­lögum og fá sam­tals 503,5 millj­ónir króna sam­kvæmt fjár­lögum fyrir árið 2015. Í ár fá þau um 492 millj­ónir króna. Fjár­fram­lag Bænda­sam­tak­anna til Hótel Sögu í tengslum við end­ur­skipu­lagn­ing­una nemur því ríf­lega helm­ingi fjár­hæð­ar­innar sem sam­tökin fá úr rík­is­sjóði á þessu ári.

[quote font="0" align="right"]Fjár­fram­lag Bænda­sam­tak­anna til Hótel Sögu í tengslum við end­ur­skipu­lagn­ing­una nemur því ríf­lega helm­ingi fjár­hæð­ar­innar sem sam­tökin fá úr rík­is­sjóði á þessu ári.[/quote]

Eignir Bænda­sam­tak­anna námu 835,8 millj­ónum króna í lok árs 2013 en heild­ar­skuld­bind­ingar, að teknu til­liti til alls geymslu­fjár, þar á meðal fram­leiðslu­tengdra sjóða, nema ríf­lega 990 millj­ónum.

Bókfært virði fast­eigna sam­tak­anna nam 263,3 millj­ónum króna í árs­lok 2013. Fast­eigna­mat eign­anna var nokkuð hærra eða sem nemur 346,9 millj­ónum króna. Eign­ar­hlutir í tengdum félögum eru metnir á 490,3 millj­ónir króna sam­kvæmt bók­færðu verði. Þar af vegur Hótel Saga ehf. mest, eða sem nemur ríf­lega 410 millj­ónum króna, það er 160,5 millj­ónir að nafn­virði að við­bættri 250 milljón króna hluta­fjár­aukn­ingu.

Athugasemd bætt við frétt klukkan 20:30:


Sindri Sig­ur­geirs­son, for­maður stjórnar Bænda­sam­taka Íslands, vill koma athuga­semdum um frétt­ina á fram­færi.

Sindri segir að eftir efna­hags­hrunið 2008 hafi rekstur hót­els­ins þyngst eins og raunin varð með mörg fyr­ir­tæki á land­inu. Í lok árs­ins 2013 hafi verið skrifað undir sam­komu­lag við Arion banka um frá­gang skulda sem fólst í því að Bænda­sam­tökin lögðu Hótel Sögu ehf. til nýtt hlutafé og hluti lang­tíma­skulda voru end­ur­fjár­magn­aðar. Sam­komu­lagið fól einnig í sér að Bænda­sam­tökin og Hótel Saga fram­seldu hluta­bréf sín í Hótel Íslandi, sem keypt var af Bún­að­ar­bank­anum 1994 eftir að hafa rekið það fyrir bank­ann í tvö ár á undan. Arion banki seldi svo Hótel Ísland og runnu þeir fjár­munir sem eftir stóðu til þess að lækka skuldir Hótel Sögu, þetta leiddi til þess að ekki kom til afskrifta af hálfu Arion.

Sindri gerir einnig athuga­semd við eft­ir­far­andi í frétt Kjarnans: ,,Í skýr­ingum í árs­reikn­ingnum kemur hins vegar fram að Arion banki hafi leyst til sín allt hlutafé í Hótel Íslandi, sem var einnig í eigu Bænda­sam­tak­anna, í tengslum við upp­gjörið en það hefur nú verið selt til nýrra eig­enda. Tekið var fram að víkj­andi lán Bænda­sam­tak­anna til Hótel Íslands hafi verið fellt niður og nýír lána­samn­ingar gerðir við Arion banka."

Sindri segir þetta rangt. Bænda­sam­tökin hafi ein­ungis átt 1,25 pró­sent í Hótel Íslandi en Hótel Saga ehf. 98,75% . Það er mik­ill munur þarna á. Auk þess var víkj­andi lán Bænda­sam­tak­anna til Hótels Sögu en ekki Hótels Íslands.

Að lokum gerir Sindri athuga­semd við eft­ir­far­andi: ,,Fjár­fram­lag Bænda­sam­tak­anna til Hótel Sögu í tengslum við end­ur­skipu­lagn­ing­una nemur því ríf­lega helm­ingi fjár­hæð­ar­innar sem sam­tökin fá úr rík­is­sjóði á þessu ári."

Sindri segir að fjar­fram­lög frá rík­inu vegna bún­að­ar­laga­samn­ings renni alls ekki til rekst­urs Bænda­sam­tak­anna og því enn síður til rekstur Hótel Sögu.

Athugasemdir ritstjórnar:


Ekki er talað um afskriftir á skuldum Bænda­sam­tak­anna í frétt Kjarnans. Þar er talað um nið­ur­felldar skuldir, líkt og var gert í frétt Kjarnans um málið frá því í mars á þessu ári. Þá gerði Sindri engar athuga­semdir við það orða­lag.

Ef Hótel Ísland er í eigu Hótel Sögu og Hótel Saga er í eigu Bænda­sam­tak­anna, þá voru Bænda­sam­tökin end­an­legur eig­andi Hótel Íslands. Beðist er vel­virð­ingar á því að hafa sagt að víkj­andi lán hafi verið til Hótel Sögu. Það hefur verið leið­rétt.

Bænda­sam­tökin eru á fjár­lögum og hafa tekjur úr rík­is­sjóði, beint og óbeint. Það er stað­reynd. Í frétt Kjarnans er ekki með neinum hætti full­yrt að fjár­fram­lög frá rík­inu hafi runnið til rekst­urs Hótel Sögu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár