Nýsköpunarhádegi í Innovation House á Seltjarnarnesi hefst klukkan 12:00 og verður í beinni útsendingu hér í Kjarnanum. Ingimar Guðjón Bjarnason, framkvæmdastjóri Applicon, mun opna hádegið og segja frá vöruþróun innan fyrirtækisins. Einnig tala Jón Grétar Guðjónsson, ráðgjafi hjá Coremotif, Eyrún Eggertsdóttir, framkvæmdastjóri og stofnandi Róró, og Egill Egilsson, yfirhönnuður í þróunardeild Össurar og stjórnarformaður Hönnunarmiðstöðvar Íslands.
Bein útsending frá Innovation House
Nýsköpunarhádegi eru samstarfsverkefni Klak Innovit og Nýherja og eru haldin reglulega á þriðjudögum í vetur.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir