Eru danskir stjórnmálamenn gungur?

Þessa fyr­ir­sögn mátti sjá í einu dönsku dag­blað­anna fyrr í vik­unni. Tilefni hennar var sú ákvörðun danska menn­ing­ar­mála­ráð­herr­ans, Marianne Jelved, að aflýsa fyr­ir­hug­uðum fundi með Ai Weiwei einum þekktasta and­ófs­manni Kína. Danskir frétta­skýrendur segja stjórn­mála­menn æ oftar setja við­skipta­hags­muni ofar mann­rétt­indum í sam­skiptum sínum við stór­þjóðir og þessi ákvörðun ráð­herr­ans sé nýjasta dæmið.

Í lok síð­asta mán­aðar hófst í Kína dönsk lista­há­tíð sem stendur fram á mitt næsta ár. Þessi hátíð er sú lang umfangs­mesta sem Danir hafa staðið fyrir utan heima­lands­ins og þar verður í boði margt af því besta sem Danir hafa upp á að bjóða, á sviði tón- og mynd­listar, kvik­mynda og sviðs­lista. Margir danskir lista­menn hafa ásamt emb­ætt­is­mönnum menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins um nokk­urra ára skeið unnið að und­ir­bún­ingi hátíð­ar­innar í sam­vinnu við kín­verska emb­ætt­is­menn. Það er þó ekki bara þessi lista­há­tíð í Kína sem kín­versk og dönsk stjórn­völd hafa tekið saman höndum um. Kín­verska ríkið keypti nefni­lega fyrir skömmu stórt hús á besta stað hér í Kaup­manna­höfn og þar verður innan nokk­urra mán­aða opnað kín­verskt menn­ing­ar­hús.

[caption id="attachment_11957" align="alignnone" width="620"] Marianne Jelved, menn­ing­ar­mála­ráð­herra Dan­merkur, ásamt kín­verskum emb­ætt­is­manni, við form­lega opnun dönsku lista­há­tíð­ar­innar í Kína.[/caption]

Þetta umrædda hús stendur skammt frá Löngubrú, hýsti áður Musikkonservator­iet, tón­list­ar­há­skól­ann. Í næsta húsi er Ny Carlsberg Glyp­to­tek, eitt þekktasta lista­safn Dan­merkur, Tívolí er svo þar við hlið­ina. Þetta nýja kín­verska menn­ing­ar­hús er því eng­inn úthverfa­kofi (eins og einn þing­maður orð­aði það) og þar ætla Kín­verjar sér að reka öfl­uga menn­ing­ar­starf­semi. Dönsk stjórn­völd lögðu blessun sína yfir þessar áætl­anir og lýstu mik­illi ánægju. Ekki munu for­dæmi fyrir slíku kín­versku menn­ing­ar­húsi utan Kína. Kín­verjar og Danir eru semsé í nánu sam­starfi á menn­ing­ar­svið­inu

Kínareisa Litlu hafmeyjunnar


Augljóst tákn þess hve mikla áherslu Danir leggja á sam­vinnu við Kínverja er þeir lán­uðu sjálfa Litlu haf­meyj­una á heims­sýn­ing­una í Shanghai árið 2010. Hún hafði setið á steini sínum við Löngu­línu frá því í ágúst 1913, og þrátt fyrir mörg hund­ruð beiðnir um að fá þessa þekkt­ustu mynda­styttu á Norð­ur­löndum „lán­aða“ á sýn­ingar, utan lands og innan hafði öllum slíkum beiðnum verið synjað. Þangað til Kín­verjar föl­uð­ust eftir henni. Eins og vænta mátti vakti styttan mikla athygli á sýn­ing­unni og dönsku ferða­mála­sam­tökin telja að sú athygli og umfjöllun kín­verskra fjöl­miðla eigi stóran þátt í því að kín­verkum ferða­mönnum í Danmörku hefur fjölgað mikið á síð­ustu fjórum árum. Séu Kín­verjar spurðir um Danmörku nefna þeir fyrst af öllu Litlu haf­meyj­una, svo H.C Andersen (sögur hans njóta mik­illa vin­sælda í Kína), í þriðja lagi danska hönnun og hús­gögn, þar á eftir nefna þeir vind­myllur og danska bjór­inn.

[caption id="attachment_11963" align="alignnone" width="640"] Hér má sjá þegar Litla haf­meyjan lagði af stað í langt ferða­lag sitt til Kína.[/caption]

"Kína er land danskra viðskiptatækifæra"


Þessi orð lét danskur ráð­herra falla í blaða­við­tali fyrir skömmu. Hann sagði að sú mikla land­kynn­ing og með­byr sem Danmörk hefði fengið í Kína væri járn sem Danir ættu sann­ar­lega að hamra meðan það væri heitt, eins og hann komst að orði. Ráð­herr­ann nefndi sér­stak­lega hús­búnað, mjólk­ur­vörur (sem Kín­verjar sækj­ast mjög eftir) og alls kyns tækni­búnað. Hann gat í þessu sam­bandi sér­stak­lega um Grundfos og Danfoss, tvö heims­þekkt dönsk fyr­ir­tæki sem sam­tals eru með nálægt fimm­tíu þús­und starfs­menn. Fyrir utan svo svína­kjötið og allt annað, bætti ráð­herr­ann við.

Allar dyr ekki lengur galopnar


Banda­ríska dag­blaðið The New York Times (NYT) fjall­aði fyrir skömmu ítar­lega um kín­versk efna­hags­mál og starf­semi erlendra fyr­ir­tækja í land­inu. Þar kemur fram að eftir að Kín­verjar fengu aðild að Alþjóða við­skipta­stofn­un­inni árið 2001 sótt­ust þeir ákaft eftir að fá erlend fyr­ir­tæki, einkum stór­fyr­ir­tæki til lands­ins. Þetta er að breyt­ast og nú standa ekki allar dyr lengur opnar, Kín­verjar gera aðrar og meiri kröfur til erlendra fyr­ir­tækja, farnir að velja vin­ina, eins og NYT orðar það. Þeir sem nú þegar eru góð­vinir Kínverja standa því mun betur að vígi segir blaða­maður NYT og þótt hann nefni engin nöfn fer ekki á milli mála að Danmörk er í góð­vina­hópnum.

Af hverju hætti ráðherrann við að hitta andófsmanninn?


Þessa spurn­ingu lögðu nokkrir danskir þing­menn fyrir Marianne Jelved. Var það vegna þess að ekki var pláss í dag­skránni eða var það kannski vegna þess að ráð­herr­ann vildi ekki styggja kín­verska ráða­menn sem eru ekki par hrifnir af Ai Weiwei?

Marianne Jelved svar­aði því til að þegar hún var komin til Kína og hitti þar ýmsa af æðstu ráða­mönnum lands­ins hefði runnið upp fyrir sér að kannski væri rétt­ast af sér að sleppa því að hitta Ai Weiwei. Hún hefði hins­vegar rætt mann­rétt­inda­mál við kín­verska ráða­menn og hitt ýmsa and­ófs­menn aðra. Þetta er, segja sumir danskir fjöl­miðlar, ekk­ert annað en und­ir­lægju­háttur og ótti við kín­versk stjórn­völd.

Síður en svo eina dæmið


Þótt hér hafi aðeins verið fjallað um sam­skipti danskra ráða­manna við Kínverja væri hægt að nefna mörg hlið­stæð mál. Fyrir nokkru var greint frá því í fjöl­miðlum að Tyrkir hefðu sleppt úr haldi manni sem talið var að hefði, í febr­úar í fyrra, reynt að skjóta danska rit­höf­und­inn Lars Hedegaard. Til­ræði­mað­ur­inn var hand­tek­inn í Istanbúl í apríl síð­ast­liðnum. Þegar það frétt­ist hingað til Dan­merkur að mann­inum hefði verið sleppt varð uppi fótur og fit, sumir þing­menn heimt­uðu að stjórn­mála­sam­bandi við Tyrki yrði slitið, farið yrði fram á refsi­að­gerðir af hálfu ESB og fleira var nefnt. Ekkert gerð­ist þó og fyrir nokkrum dögum lýsti utan­rík­is­ráð­herr­ann því yfir að góð sam­skipti við Tyrki væru mik­il­væg­ari en svo að þeim yrði stefnt í hættu út af einum manni sem sleppt hefði verið úr fang­elsi.

[caption id="attachment_10410" align="alignnone" width="640"] Lars Hedegaard.[/caption]

Gunguháttur eða skynsemi?


Dag­blaðið sem varp­aði fram spurn­ing­unni sem er yfir­skrift þessa pistils bar hana undir nokkra danska stjórn­mála­menn og framá­menn í við­skipta­líf­inu. Enginn þeirra vildi taka svo djúpt í árinni að tala um gungu­hátt. Flestir sögðu sem svo að danskir stjórn­mála­menn yrðu að hafa hags­muni þess­arar smá­þjóðar að leið­ar­ljósi og stíga var­lega til jarðar hverju sinni. Það þýddi hins­vegar ekki að menn yrðu að beygja sig í duftið.

„Línudans er list” sagði einn sem við var rætt og bætti við „ef maður heldur ekki jafn­væg­inu dettur maður af kaðl­inum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár