Leiðréttingin: Sáttmáli kynslóða eða greiðsla fyrir valdataumana?

Í dag var hald­inn þriðji blaða­manna­fund­ur­inn í röð slíkra þar sem farið er yfir kosti skulda­nið­ur­fell­inga­á­forma rík­is­stjórn­ar­innar, sem bera heitið „Leið­rétt­ingin“. Á morgun munu þeir 91 þús­und ein­stak­lingar, um 28 pró­sent þess mann­fjölda sem býr á Íslandi, fá að vita hvað þeir fá í sinn hlut.

Þessi tíma­mót eru afleið­ing mik­ils þrýst­ings, síbreyti­legra lof­orða og auð­vitað íslenska efna­hags­hruns­ins. Kjarninn ákvað að rifja upp sögu skulda­nið­ur­fell­inga­kröf­unnar.

Verðtryggð þjóð verður fyrir verðbólguskoti

Eftir banka­hrunið virt­ist fremur svört mynd blasa við íslenskum almenn­ingi. Krónan féll eins og steinn og verð­bólga náði hæðum sem höfðu ekki sést frá því á níunda ára­tug síð­ustu aldar. Í jan­úar 2009 fór verð­bólgan til að mynda upp í 18,6 pró­sent á árs­grund­velli.

[quote font="0" align="right"]Lán íslenskra heim­ila voru á þessum tíma að lang­mestu leyti verð­tryggð. Því þýddi aukin verð­bólga hækkun á höf­uð­stóli lána þeirra.[/quote]

Lán íslenskra heim­ila voru á þessum tíma að lang­mestu leyti verð­tryggð. Því þýddi aukin verð­bólga hækkun á höf­uð­stóli lána þeirra. Sum heim­ili tóku lán sem sveifl­uð­ust til eftir gengi erlendra mynta með það fyrir augum að spara sér hinn mikla vaxta­kostnað sem fylgdi sér­ís­lensku verð­tryggðu lán­unum. Slík lán voru mjög vin­sæl sem fjár­mögnun á bíla­kaupum en þús­undir Íslend­inga ákváðu líka að fjár­magna hús­næð­is­kaup sín með þeim. Þegar krónan féll stökk­breytt­ust þessi lán.

Lán heim­il­anna voru að mestu hjá þremur aðilum: Íbúða­lána­sjóði, nýjum bönkum sem end­ur­reistir voru á grunni hinna föllnu og líf­eyr­is­sjóðum lands­ins. Mikill þrýst­ingur skap­að­ist fljótt á að þessir aðilar, eða þeir sem stýrðu þeim, myndu beita sér fyrir því að laga þá mjög erf­iðu skulda­stöðu sem komin var upp hjá heim­ilum lands­ins. Skuldir heim­il­anna voru enda, þegar verst lét, hátt í 130 pró­sent af lands­fram­leiðslu.

20 prósent loforðin

Fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar 2009 komu fram kröfur um beinar skulda­nið­ur­fell­ing­ar­að­gerðir handa heim­ilum lands­ins. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mark­aði sér sér­stöðu með því að segj­ast ætla að bjóða upp á 20 pró­sent lækkun á skuldum heim­ila lands­ins.

Flokk­ur­inn gerði líka mynd­bönd til að koma þessum áherslum á fram­færi með öðrum hætti.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn var ekki einn á þess­ari veg­ferð. Til urðu hin áhrifa­miklu Hags­muna­sam­tök heim­il­anna (stofnuð 15. jan­úar 2009), auk þess sem fjöl­margir álits­gjafar og stjórn­mála­menn hófu að reka harðan áróður fyrir stór­tækum skulda­nið­ur­fell­ingum.

Ríkið afhendir kröfuhöfum tvo banka

Hið stóra lof­orð nægði ekki til að fleyta Fram­sókn­ar­flokknum í rík­is­stjórn árið 2009. Þar sett­ust Sam­fylk­ing og Vinstri-grænir. Sú rík­is­stjórn réð­ist í að semja við slita­stjórnir föllnu bank­ana um hvernig ætti að gera upp við þær vegna þeirra eigna sem íslenskra ríkið hafði fært yfir í nýja banka sem reistir voru á grunni þeirra gömlu.

[quote font="0" align="right"] Á móti missti ríkið yfir­ráð yfir tveimur bönkum og átti því erf­ið­ara um vik að „skikka“ þá í skulda­nið­ur­fell­ing­ar­að­gerðir. [/quote]

Á end­anum samdi rík­is­stjórnin um að kröfu­hafar föllnu bank­ana eign­uð­ust tvo þeirra, Arion banka og Íslands­banka, að mestu en að ríkið myndi halda Lands­bank­anum gegn því að hann myndi greiða nokkur hund­ruð millj­arða króna í erlendum gjald­eyri fyrir eign­irnar sem hann erfði. Rökin fyrir þessu voru þau að sam­komu­lagið myndi spara rík­inu gríð­ar­legt fjár­magn sem það þyrfti ann­ars að inna af hendi til þrota­búa þeirra föllnu. Auk þess átti ríkið ekki fé til að fjár­magna alla bank­ana. Á móti missti ríkið yfir­ráð yfir tveimur bönkum og átti því erf­ið­ara um vik að „skikka“ þá í skulda­nið­ur­fell­ing­ar­að­gerðir. Þessir samn­ingar hafa alla tíð verið harð­lega gagn­rýnir úr ýmsum áttum.

44 prósent afsláttur af skuldum heimila

Í nóv­em­ber 2009 var greint frá því í skýrslu Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins (AGS) um end­ur­skoðun á efna­hags­á­ætlun Íslands, að nýju bank­arnir þrír hefðu fengið 44 pró­sent afslátt á skuldum íslenskra heim­ila. Inni í þess­ari tölu voru allar skuldir þeirra. Íbúðalán, bíla­lán, yfir­drættir og jafn­vel lán til hluta­bréfa­kaupa. Ljóst var að hluti þess­arra lána yrði aldrei inn­heimt­an­legur.

Þegar búið var að semja um bank­ana, og þar með fjár­magna þá, var hægt að byrja að taka til í þeim gríð­ar­lega skulda­haug sem þurfti að grisja eftir fall fjár­mála­kerf­is­ins, enda búið að vera morg­un­ljóst lengi að fjöldi ein­stak­linga, heim­ila og fyr­ir­tækja myndi aldrei geta greitt þær skuldir sem þau hefðu stofnað til. Og það var gert með ýmsum hætti.

Hinar sértæku aðgerðir

Í lok árs 2012 var búið að færa niður lán til heim­ila vegna 110 pró­sent leið­ar­innar um 46 millj­arða króna, vegna sér­tækrar skulda­að­lög­unar um 7,3 millj­arða króna, vegna sér­tækra vaxta­nið­ur­greiðslna um 12,3 millj­arða króna, vegna greiðslu­jöfn­unar hjá Íbúða­lána­sjóði um 7,6 millj­arða króna, vegna greiðslu­fresta um 33,1 millj­arð króna og vegna vaxta­bóta um 9,2 millj­arða króna.

[caption id="attachment_9691" align="alignnone" width="1024"] Árni Páll Árnason var efna­hags- og við­skipta­ráð­herra á þeim árum sem flestum aðgerðum síð­ustu rík­is­stjórnar var hrint í fram­kvæmd. Lög um end­ur­út­reikn­inga geng­is­tryggðra lána, sem síðar voru hrakin fyrir dóm­stólum, eru meðal ann­ars kennd við hann.[/caption]

Stærsta nið­ur­fell­ingin var hins vegar ekki val­kvæð, heldur til komin vegna þess að íslenskir dóm­stólar dæmdu fjölda­mörg erlend lán ólög­mæt. Í lok árs 2012 var búið að færa niður erlend fast­eigna­lán hjá bönk­unum 109,6 millj­arða króna vegna þessa og end­ur­út­reikn­ingur erlendra bíla­lána hafði skila 38,6 millj­örðum króna.

En það sem mestu máli skipti var að landið tók að rísa. Frá byrjun árs 2009 hófst hlut­falls­leg skulda­lækkun heim­il­anna sem staðið hefur síðan. Eign­ar­verð tók að hækka, bönd komust á verð­bólg­una og sam­hliða skán­aði staða heim­il­anna mikið.

Framsóknarsigurinn og 300 milljarðarnir

En þrýst­ing­ur­inn á frek­ari aðgerðir í þágu heim­il­anna minnk­aði samt sem áður ekk­ert. Fyrir síð­ustu kosn­ingar, sem fram fóru í apríl 2013, voru þónokkrir þrýsti­hópar og fram­boð með það á stefnu­skrá sinni að stuðla að frek­ari nið­ur­færslu skulda heim­il­anna með sér­tækum eða almennum hætti.

Sá flokkur sem stal hins vegar algjör­lega sen­unni í þessum efnum var Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn. Flokk­ur­inn lagði alla áherslu á tvö mál í aðdrag­anda kosn­inga: skulda­nið­ur­færslur og afnám verð­trygg­ingar.

Í við­tali við Frétta­blaðið í mars 2013 sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, að það væri „óhjá­kvæmi­legt að ráð­ast í þessar aðgerðir því eins og staðan er núna er nán­ast heil kyn­slóð á Íslandi eigna­laus og með nei­kvætt eigið fé. Það er mjög hættu­legt ástand fyrir sam­fé­lag, bæði félags­lega og efna­hags­lega, því þessar kyn­slóðir eru þær sem við­halda þurfa vext­inum. Því segjum við að það sé á end­anum dýr­ara að bregð­ast ekki við vand­anum heldur en að gera það. Það er nokkuð á reiki um hvaða tölur er að ræða en verð­tryggð fast­eigna­lán eru í kringum 1.200 millj­arða króna. Ef við notum 20 pró­sentin sem við­mið, þó að það sé ekki endi­lega nið­ur­neglt, erum við að tala um 240 millj­arða króna.

Það er hins vegar ekki þar með sagt að þessir 240 millj­arðar séu eitt­hvað sem komi til greiðslu í einu lagi. Ávinn­ing­ur­inn af leið­rétt­ingu skulda getur farið að skila sér áður en kostn­að­ur­inn fellur allur til“.

Í For­ystu­sæt­inu, kosn­inga­þætti RÚV, skömmu síðar var Sig­mundur Davíð þrá­spurður um fyr­ir­ætl­anir sínar um að lækka skuldir heim­ila um 300 millj­arða króna, sem eru sú upp­hæð sem ansi margir töldu flokk­inn vera að lofa.

Í þætt­inum nefndi Sig­mundur Davíð aldrei töl­una 300 millj­arðar króna. En hann neitar henni heldur aldrei þegar spyrl­arnir tveir end­ur­taka hana í sífellu.

Á baki þessa kosn­inga­lof­orðs vann Fram­sókna­flokk­ur­inn hins vegar glæsi­legan kosn­inga­sigur og hlaut rúm­lega 24 pró­sent atkvæða. Árang­ur­inn fleytti for­manni flokks­ins í stól for­sæt­is­ráð­herra og fljót­lega fór að bera á miklum þrýst­ingi gagn­vart flokknum um að hann efndi stóra lof­orðið.

80 milljarða úr ríkissjóði

Þrátt fyrir að vænt­ingar margra kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins hafi staðið til þess að ráð­ist yrði í nið­ur­fell­ingar á skuldum þeirra strax í kjöl­far kosn­ing­anna gerð­ist ekki mikið fyrstu mán­uð­ina.

Það var í raun ekki fyrr en 30. nóv­em­ber í fyrra sem dró til tíð­inda. Þá var boðað til blaða­manna­fundar í Hörpu þar sem aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar varð­andi leið­rétt­ingu verð­tryggðra hús­næð­is­lána voru kynntar. Formaður sér­fræð­inga­hóps hennar, Sigurður Hann­es­son, kynnti þar for­sendur og fram­kvæmd aðgerð­anna. Í stuttu máli áttu þær að fela í sér að 80 millj­arðar króna yrðu greiddir inn á höf­uð­stól verð­tryggðra hús­næð­is­lána á fjög­urra ára tíma­bili og að Íslend­ingum yrði gert kleift að nota sér­eign­ar­sparnað sinn til að nið­ur­greiða hús­næð­is­lán á sama tíma­bili skatt­frjálst.

[caption id="attachment_11717" align="alignnone" width="640"] Leið­rétt­ingin var kynnt með við­höfn í Hörpu þann 30. nóv­em­ber 2013. Bjarni Bene­dikts­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son héldu tölu.[/caption]

Fjár­mögnun nið­ur­fell­ing­ar­innar yrði með þeim hætti að íslenska ríkið notar skatt­heimtu­vald sitt til að leggja sér­stakan banka­skatt á fjár­mála­fyr­ir­tæki. En á eftir að koma í ljós hvort slík skatt­lagn­ing stand­ist lög.

Tímabilið þrengt og ekkert verðbólgumarkmið lengur

Í mars síð­ast­liðnum var blásið til ann­ars blaða­manna­fundar til að kynna útfærsl­urnar. Í þetta sinn var stríðsletrið fyrir aftan ráða­menn­ina „150 millj­arðar króna“. Ástæðan var sú að búið var að reikna sig niður á að lands­menn myndu eyða um 50 millj­örðum króna af sér­eigna­sparn­aði sínum í að borga niður hús­næð­is­lán og þegar við bætt­ust þeir 20 millj­arðar króna sem ríkið myndi gefa þeim hópi í skatt­afslátt var hægt að setja fram þá tölu.

[caption id="attachment_11718" align="alignnone" width="803"] Í mars síð­ast­liðnum voru kynnt tvö laga­frum­vörp um skulda­nið­ur­fell­ingu. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Bjarni Bene­dikts­son voru vita­skuld með tölu.[/caption]

Í stjórn­ar­sátt­mála Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks stóð að flokk­arnir ætl­uðu „að ná fram leið­rétt­ingu vegna verð­bólgu­skots áranna 2007-2010[...]um verður að ræða almenna óháð lán­töku­tíma með áherslu á jafn­ræði“.

Þegar frum­varp til laga um leið­rétt­ingu fast­eigna­veð­lána var lagt fram í lok mars hafði það tíma­bil verið þrengt tölu­vert, og náði nú til verð­tryggðra hús­næð­is­lána til eigin nota sem voru til staðar á árunum 2008 og 2009.

Í frum­varp­inu var ekki heldur lengur neitt um hvaða verð­bólgu­við­miði yrði gengið út frá við leið­rétt­ing­una „heldur er gert ráð fyrir að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra ákvarði það með reglu­gerð“. Með þeim hætti var hægt að stýra því að upp­hæðin færi ekki yfir 80 millj­arða króna. Verð­bólgu­við­miðið var ein­fald­lega valið eft­irá.

Þriðji fundurinn á innan við ári

Síðustu skrefin í skulda­nið­ur­fell­ing­ar­sög­unni voru svo stígin í dag, þegar blásið var til þriðja blaða­manna­fund­ar­ins á innan við ári til að kynna áformin. Það sem var nýtt á fund­inum í dag var tvennt: ann­ars vegar að fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra var búinn að ákveða hvert verð­bólgu­við­miðið átti að vera svo nákvæm­lega 80 millj­arðar króna myndu fara úr rík­is­sjóði til skuld­ara. Miðað er við að verð­bólga umfram fjögur pró­sent á árunum 2008 og 2009 verði leið­rétt.

[caption id="attachment_11688" align="alignnone" width="639"] Bjarni Bene­dikts­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son voru mættir í þriðja sinn á innan við ári til að kynna skulda­nið­ur­fell­ing­ar­á­form sín í Hörpu í dag.[/caption]

Hins vegar er búið að flýta greiðslum úr rík­is­sjóði vegna aðgerð­anna. Nú verða millj­arð­arnir 80 greiddir út á þremur árum í stað fjög­urra.

Um 91 þús­und ein­stak­lingar fá nið­ur­fell­ingu og meðal fjár­hæð þeirra er 1.350 þús­und krónur.

Á morgun, þriðju­dag, fá þessi ein­stak­lingar svo að vita hvað fellur þeim í skaut.

Mark­að­ur­inn þegar búinn að leið­rétta sig

Þegar verst lét voru skuldir heim­ila á Íslandi hátt í 130 pró­sent af lands­fram­leiðslu. Skaplegt hlut­fall þykir undir 100 pró­sent. Í júní síð­ast­liðnum var hlut­fallið komið niður í 99 pró­sent, sam­kvæmt tölum frá Seðla­banka Íslands.

Þetta þykir, að mati Seðla­bank­ans, vel við­un­andi skulda­hlut­fall í alþjóð­legum sam­an­burði, einkum þegar hofr væri til þjóða sem væru með hús­næð­is­kerfi sem byggði mikið á sér­eign­ar­stefnu líkt og hér tíðkast.

Auk þess hefur fast­eigna­verð hækkað mjög mikið und­an­farin ár og þar af leið­andi lagað eig­in­fjár­stöðu fjöl­margra. Mark­að­ur­inn hefur leið­rétt sig sjálfur.

Í sömu kynn­ingu Seðla­bank­ans og greint er frá hér að ofan, sem fór fram í októ­ber, kom líka í ljós að „for­sendu­brest­ur­inn“ sem fólk taldi sig hafa orðið fyrir vegna verð­trygg­ing­ar­innar, og ríkið er í dag að bæta þeim, hefur ekki ýtt fólki frá því að taka verð­tryggð lán. Þvert á móti.

Verð­bólga hefur verið lág á Íslandi í tölu­vert langan tíma og undir verð­bólgu­mark­miði Seðla­banka Íslands í níu mán­uði í röð. Þetta hefur leitt til þess að um 70 pró­sent af nýjum íbúð­ar­lánum eru verð­tryggð. Og þau vin­sæl­ustu eru 40 ára jafn­greiðslu­lán, sem bera lægstu greiðslu­byrð­ina. Það þýðir að lán­tak­endur eru mun frekar að horfa til greiðslu­byrði ekki eign­ar­mynd­unar.

Nú er bara að vona að það komi ekki verð­bólgu­skot svo það þurfi að leið­rétta öll þessi nýju lán líka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár