Íslendingar borða sex sinnum meira af alifuglum en árið 1983

Íslend­ingar eru sólgn­ari í kjúkling og svína­kjöt en þeir voru fyrir 30 árum. Alls hefur neysla á ali­fugla­kjöti sexfald­ast síðan þá og neysla á svína­kjöts­af­urðum fjór­fald­ast. Með­al­neysla Íslend­inga á kjöti hefur auk­ist um tæp­lega fjórð­ung á tíma­bil­inu en áhugi okkar á kinda­kjöti dreg­ist skarpt saman. Áður fyrr var neysla á því um 70 pró­sent af allri kjöt­neyslu okkar, en er nú rétt um fjórð­ungur hennar. Þetta kemur fram í sam­an­tekt Hag­stof­unnar um árlega kjöt­neyslu Íslend­inga.

Alífuglar og svín vinsæl á diskum landsmanna


Árið 1983 borð­aði hver og einn Íslend­ingur 4,3 kiló af ali­fugla­kjöti, aðal­lega kjúklingum, á ári. Fimmtán árum síðar, árið 1998, hafði neyslan rúm­lega tvö­fald­ast og var árlega um 9,6 kíló á mann. Síðan þá hefur orðið spreng­ing á neyslu íslend­inga á kjúklingum og öðru alí­fugla­kjöti. Árið 2004 snæddum við 17,9 kíló hver. Í fyrra náði neysla okkar á þessu vin­sæla hvíta kjöti nýjum hæðum. Þá borð­uðum við 26,8 kíló af kjúklingum á haus, eða rúm­lega sex sinnum meira en Íslend­ingar gerðu árið 1983.

[quote font="0" align="right"]Landinn hefur líka aukið svína­kjötsát sitt mikið á und­an­förnum ára­tugum. Fyrir 30 árum borð­aði hver Íslend­ingur að með­al­tal um 4,9 kíló af svína­kjöti. [/quote]

Landinn hefur líka aukið svína­kjötsát sitt mikið á und­an­förnum ára­tugum. Fyrir 30 árum borð­aði hver Íslend­ingur að með­al­tal um 4,9 kíló af svína­kjöti. Í fyrra hafði svína­kjötsátið næstum fjór­fald­ast frá því sem þá var, en hver íbúi setti um 19,2 kíló af svína­af­urðum ofan í sig á árinu 2013.

[caption id="attachment_11617" align="alignnone" width="1024"] Neysla Íslend­inga á svína­kjöts­af­urðum hefur auk­ist mikið á und­an­förnum ára­tugum.[/caption]

Við erum líka orðin sólgn­ari í nauta­kjöt en áður var. Neysla þess hefur vaxið úr 8,8 kílóum árið 1983 í 13,4 kíló í fyrra. Áhugi okkar á að snæða hross fer hins vegar þverr­andi. Þegar hrossa­kjötsátið náði hámarki, árið 1984, var með­al­neysla hvers Íslend­ings um 3,7 kíló á ári. Í fyrra var sú tala komin niður í um tvö kíló og hefur verið nokkuð stöðug um margra ára skeið.

Borðum meira af kjöti en minna af kindum


Sú mikla aukn­ing sem átt hefur sér stað á neyslu ali­fugla- og svína­kjöts er að hluta til vegna þess að nútíma Íslend­ing­ur­inn borðar mun meira kjöt en meðal Íslend­ingur gerði árið 1983. Þá var borð­aði hver lands­maður að með­al­tali um 66,5 kíló af kjöti. Í dag er sú tala um 81,9 kíló. Neyslan hefur því auk­ist um tæpan fjórð­ung á þessum 30 árum.

En ástæð­una er líka að finna í miklum sam­drætti á neyslu kinda­kjöts. Árið 1983 var íslenska sauð­kindin helsta mat­vara Íslend­inga. Hver og einn okkar át að með­al­tali 45,3 kíló af afurðum hennar það árið. Áhugi þjóð­ar­innar á kinda­kjöt­inu hefur hins vegar minnkað mikið. Í fyrra átum við ein­ungis um 20,5 kíló hver af afurðum kind­ar­innar. Það er sam­dráttur upp á 120 pró­sent á 30 árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár