Danir leita í örvæntingu að þjóðarréttinum sínum

Hver skyldi vera þjóð­ar­réttur Dana? Er það rauð pylsa eða kjöt­bollur? Gæti það verið pur­u­steik eða kannski medister­pysla? Þótt allur þessi matur sé í margra augum „peru­danskur“ er eng­inn þeirra á meðal þeirra átta sem Danir velja nú sem þjóð­ar­rétt.

Á allra síð­ustu árum hefur mikið verið rætt um „hið nor­ræna eld­hús“ eins og það er kallað. Ekki eru það háglans­andi skápa­hurðir eða hæg­lok­andi hljóð­lausar skúffur sem þarna er átt við þótt orða­lagið gefi það ef til vill til til kynna, heldur mat­ur­inn sjálfur. Þegar svo er spurt hvað sé átt við með „hinu nor­ræna eld­húsi“ svara sér­fræð­ingar því til að þá séu menn að meina mat sem til verður eða aflað er á heima­slóðum en ekki fluttur yfir hálfan hnött­inn, ein­faldur matur og ein­föld til­gerð­ar­laus mat­reiðsla. Þekkt­asti veit­inga­stað­ur­inn í „hinu nor­ræna eld­húsi“ NOMA getur þó engan veg­inn flokk­ast undir þennan ein­fald­leika og til­gerð­ar­lausa mat­reiðslu, að ekki sé nú minnst á verðið á veit­ing­unum, sem tæp­ast telst við alþýðu­hæfi.

[quote font="0" align="right"]„Ráð­herr­ann lýsti því yfir fyrir nokkru að ekki nái nokk­urri átt að Danir skuli ekki eiga einn sann­kall­aðan þjóð­ar­rétt. Danir séu miklir mat­menn, tali mikið um mat, borði mikið og dreymi jafn­vel um mat (að sagt er), en þegar spurt er um þjóð­ar­rétt­inn klóra þeir sér í koll­inum og líta hver á annan.“[/quote]

Hér í Danmörku brosa margir að þessu tali um nor­rænan mat en allir geta lík­lega verið sam­mála um að æski­legt sé að nýta sem mest og best það sem fæst á heima­slóðum. Umræðan um allan þann mat sem endar í rusla­tunn­unum hefur um nokk­urt skeið verið mjög áber­andi hér og mat­væla­ráð­herr­ann Dan Jörg­en­sen hefur látið þau mál mjög til sín taka. Hann hefur líka reynt að koma af stað umræðum um hversu mik­il­vægt það sé að varð­veita þjóð­legar mat­ar­hefðir. Ráð­herr­ann lýsti því yfir fyrir nokkru að ekki nái nokk­urri átt að Danir skuli ekki eiga einn sann­kall­aðan þjóð­ar­rétt. Danir séu miklir mat­menn, tali mikið um mat, borði mikið og dreymi jafn­vel um mat (að sagt er), en þegar spurt er um þjóð­ar­rétt­inn klóra þeir sér í koll­inum og líta hver á annan. „Þessu breytum við!“ sagði ráð­herr­ann.

[caption id="attachment_11434" align="alignnone" width="600"] Dan Jörg­en­sen, mat­væla­ráð­herra Dana, á góðri stundu.[/caption]

Matarkosningin mikla


Mat­væla­ráð­herr­ann lét ekki sitja við orðin tóm. Að frum­kvæði hans var settur saman listi með 24 þekktum dönskum réttum og svo gafst almenn­ingi kostur á að velja „sinn“ rétt. Landinu var skipt upp í átta svæði og skyldi sá réttur sem flest atkvæði fengi á hverju svæði kom­ast í úrslit. Tugir þús­unda tóku þátt í þess­ari kosn­ingu og rétt­irnir átta sem end­an­lega verður valið á milli eru þessir:

Kar­bon­aði (Kreben­ettur) með kart­öflumús.

Brændende kær­lig­hed (smá­brytjað beikon steikt á pönnu með lauk) ásamt kart­öflumús og sult­uðum rauðrófum, berjum eða sveppum.

Smurt brauð (Smör­rebröd) sam­sett að eigin vali hvers og eins.

Steikt flesk (þykkar beikon­sneiðar) steikt á pönnu, með stein­seljusósu og soðnum kart­öflum.

Eplaflesk (beikon skorið í all­stóra ten­inga) ásamt létt­steiktum epla­sneiðum og rauð­lauk. Borið fram á volgu rúg­brauði.

Steikt svína­kótel­etta, ásamt hvít­káls­mús (stu­vet) og vor­lauk.

Hakka­buff (úr nauta­kjöti) með soðnum kart­öflum, gul­rótum og/eða rauðrófum og mjúk­steiktum lauk og spældu eggi

Steikt síld með kart­öflumús, harðsoðnu brytj­uðu eggi, hrárri eggjar­auðu, asíu­sneiðum og rist­uðu rúg­brauði, skornu í bita.

Hvorki kjötbollur né purusteik


Á list­anum eru hvorki kjöt­bollur né pur­u­steik sem margir höfðu búist við að kæmust í úrslitin. Ekki heldur steikt rauð­spretta sem er vin­sæll réttur. Þótt spag­hetti með kjöt­sósu sé einn vin­sæl­asti hvers­dags­matur Dana bjugg­ust fæstir við að sá réttur kæm­ist á list­ann. Þekktur mat­reiðslu­maður lét hafa eftir sér að það yrði nú saga til næsta bæjar ef Danir veldu slíkt „gums“ sem þjóð­ar­rétt. Sá ótti reynd­ist sem­sagt ástæðu­laus. Danir eru ekki miklar fiskætur og þess vegna kemur það ekki sér­stak­lega á óvart að steikt síld skuli vera eini fisk­rétt­ur­inn sem kemst á blað. Það voru reyndar íbúar Borg­und­ar­hólms sem völdu síld­ina.

Flestir veðja á steikt flesk


Þessa dag­ana eru Danir að kjósa þjóð­ar­rétt­inn. Kosið er á net­inu og allir geta kosið, hver ein­stak­lingur þó aðeins einu sinni. Síðasti dagur atkvæða­greiðsl­unnar verður 16. nóv­em­ber.

Samkvæmt mjög óform­legum könn­unum fjöl­miðla hall­ast flestir að því að steikt flesk með stein­seljusósu verði fyrir val­inu. Hakk­buffið hafa líka margir nefnt og einnig eplafleskið. Þann 20. nóv­em­ber verða svo úrslitin til­kynnt.

Fastlega má búast við að „þjóð­ar­rétt­ur­inn“ verði áber­andi á mat­seðlum danskra veit­inga­staða á næst­unni og víst má telja að mikið verði um valið fjallað í fjöl­miðlum og skoð­anir örugg­lega skiptar. Ýmsir hafa gert góð­lát­legt grín að öllu þessu „þjóð­ar­rétt­ar­til­standi“ eins og það er gjarnan kallað en þótt engar tölur hafi verið birtar um „kjör­sókn­ina“ enn sem komið er. Virtur blaða­maður á einu stóru blað­anna hér í Danmörku sagði í sjón­varps­við­tali að þessar kosn­ingar væru alveg dæmi­gerðar fyrir Dani, „engri annarri þjóð hefði dottið slíkt og því­líkt í hug.“ Bætti svo við: „verður það ekki þjóð­ar­drykk­ur­inn næst?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár