Stjórnarformaður FME 36faldaði fjárfestingu sína á einu ári

Færeyska olíu­fé­lagið P/F Magn var selt út úr Fons, dag­inn áður en Fons var tekið til gjald­þrota­skipta, á 233,5 millj­ónir króna í apríl 2009. Nýir eig­endur þess seldu P/F Magn á um fjóra millj­arða króna í lok árs 2013, eða með um 3,7 millj­arða króna hagn­aði. Í milli­tíð­inni reyndi skipta­stjóri Fons að rifta söl­unni og þrír fyrrum starfs­menn fyr­ir­tækja­ráð­gjafar Glitnis fengu að eign­ast 66 pró­sent hlut í eig­anda P/F Magn á 24 millj­ónir króna hver.

Ári síðar seldi hóp­ur­inn, sem inni­hélt meðal ann­ars stjórn­ar­for­mann Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, hluti sína í P/F Magn með 36földum hagn­aði.

Keyptu daginn áður en Fons varð gjaldþrota


Færeyska félagið P/F Magn hét áður P/F Hedda. Það hélt ára­tugum saman utan um starf­semi undir merkjum Shell í Færeyjum. Árið 2007 seldi Shell rekst­ur­inn og Fons, einka­hluta­fé­lag Pálma Har­alds­sonar, eign­að­ist hann. Frá þeim tíma hefur þetta fær­eyska olíu­fé­lag heitir Magn.

Þegar Fons ákvað að losa sig við Skeljung á Íslandi í des­em­ber 2007 hélt félagið hins vegar eftir P/F Magn, eða fram til 29. apríl 2009. Þá var allt hluta­féð selt til Heddu eign­ar­halds­fé­lags. Kaup­verðið var, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans, um 233,5 millj­ónir króna. Daginn eftir, 30. apríl 2009, var Fons tekið til gjald­þrota­skipta.

Á árinu 2009 var velta P/F Magn 529 millj­ónir danskra króna, um ell­efu millj­arðar íslenskra króna á gengi dags­ins í dag. Félagið hagn­að­ist um 181 milljón króna á því ári. Síðan þá hefur allt verið upp á við hjá félag­inu. Veltan hefur auk­ist nær ár frá ári og var um 17,5 millj­arðar króna í fyrra. Hagnaður Magn á tíma­bil­inu 2010 til 2013 var sam­tals um 1,5 millj­arðar króna.

[caption id="attachment_11349" align="aligncenter" width="629"] P/F Magn var selt út úr Fons dag­inn áður en Fons var tekið til gjald­þrota­skipta á 233,5 millj­ónir króna. Í lok árs 2013 var félagið selt á fjóra millj­arða króna.[/caption]

Hluti af Skeljungsfléttu


Þegar Hedda keypti P/F Magn út úr Fons, dag­inn áður en Fons var sett í þrot, var eini skráði eig­andi Heddu Guð­mundur Örn Þórð­ar­son. Hann og Svan­hildur Nanna Vig­fús­dóttir, eig­in­kona hans, höfðu nokkru áður eign­ast 51 pró­sent hlut í Skelj­ungi með ótrú­legum hætti. Kjarninn greindi ítar­lega frá þeim við­skiptum í frétta­skýr­ingu í síð­ustu viku.

Umsjón­ar­maður söl­unnar á Skelj­ungi var Einar Örn Ólafsson, þáver­andi starfs­maður fyr­ir­tækja­ráð­gjafar Glitnis, síðar Íslands­banka. Hann var skömmu síðar ráð­inn for­stjóri Skeljung af þeim Guðmundi og Svan­hildi Nönnu. Á meðal sam­starfs­fé­laga Einars í fyr­ir­tækja­ráð­gjöf­inni á þessum tíma voru Halla Sigrún Hjart­ar­dóttir og Kári Þór Guð­jóns­son. Þre­menn­ing­arnar áttu allir eftir að koma mikið við sögu síðar í þeirri fléttu sem ofin var utan um við­skipti með Skeljung og P/F Magn.

Saga Capital verðmat P/F Magn fyrir Fons


Halla Sigrún, sem er nú stjórn­ar­for­maður Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, sagði í yfir­lýs­ingu sem hún sendi frá sér í síð­ustu viku vegna umfjall­ana um við­skipti hennar að Hedda ehf. hefði keypt P/F Magn af þrota­búi Fons. Það er ákveð­inn hálf­sann­leikur.

[quote font="0" align="right"]Óskar Sig­urðs­son, skipta­stjóri þrota­bús Fons, segir nefni­lega að hann hafi reynt að rifta söl­unni á P/F Magn til Heddu með bréfi dag­settu 9. júní 2009.[/quote]

Óskar Sig­urðs­son, skipta­stjóri þrota­bús Fons, segir nefni­lega að hann hafi reynt að rifta söl­unni á P/F Magn til Heddu með bréfi dag­settu 9. júní 2009. Hedda hafi mót­mælt rift­un­inni. Óskar segir að í ljósi ágrein­ings aðila og hags­muna bús­ins „sem og að fengnu mati Saga Capital á verð­mæti félags­ins og yfir­vof­andi upp­sagnar á lána­samn­ingum þess, þótti rétt að gera nýjan kaup­samn­ing milli þrota­bús Fons hf. og Heddu eign­ar­halds­fé­lags ehf. dags 1. ágúst 2009 um kaup þess á öllum hlutum Fons hf. í P/F Magn. Kaup­samn­ing­ur­inn var kynntur og sam­þykktur af öllum kröfu­höfum á skipta­fundi 14. ágúst 2009.“

Óskar vildi ekki stað­festa sölu­verðið á P/F Magn. Sagði hann að trún­að­ar­á­kvæði í samn­ingnum hindri það.

Félagið metið á 233,5 milljónir í reikningum Heddu


Þegar árs­reikn­ingar Heddu eru skoð­aðir kemur í ljós að eignir félags­ins voru metnar á 240 millj­ónir króna í lok árs 2009. Eina eign félags­ins utan fjár­muna var 100 pró­sent hlutafé í P/F Magn sem var verð­met­inn á 233,5 millj­ónir króna. Inn­greitt hlutafé í Heddu á árinu 2009 var 110,5 millj­ónir króna. Auk þess tók félagið lán upp á 123,5 millj­ónir króna. Þetta fé var notað til að greiða fyrir allt hlutafé í P/F Magn, félags með um ell­efu millj­arða króna veltu, á þessum tíma.

[caption id="attachment_10673" align="align­right" width="213"] Halla Sigrún Hjalta­dóttir, stjórn­ar­for­maður Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, hagn­að­ist um á níunda hund­rað millj­ónir króna á við­skiptum með hlutafé í P/F Magn.[/caption]

Samkvæmt árs­reikn­ingum Heddu gerð­ist lítið innan félags­ins næstu árin. Guð­mundur var áfram skráður eini eig­andi þess og skuldir þess voru greiddar hratt niður. Arð­greiðslur úr P/F Magn hafa lík­ast til hjálpað til við þær nið­ur­greiðslur. Alls greiddi P/F Magn út arð til eig­enda sinna upp á 216,3 millj­ónir króna, á gengi dags­ins í dag, vegna áranna 2009 til 2012. Eini eig­and­inn á þessu tíma­bili var Hedda.

Á árinu 2013 urðu eig­enda­breyt­ingar á Heddu. Samkvæmt árs­reikn­ingi félags­ins það ár höfðu þrjú eign­ar­halds­fé­lög: Nolt ehf., Ein­arsmelur ehf. , og B 10 ehf. eign­ast 66 pró­sent hlut í Heddu. Fyrir 22 pró­sent hlut greiddi hvert félag 24,3 millj­ónir króna. Eigendur félag­anna þriggja eru áður­nefnd Halla Sigrún, Einar Örn og Kári Þór. Engar rök­rænar skýr­ingar hafa feng­ist á því hvað olli því að eig­endur Heddu ákváðu að gefa frá sér slík verð­mæti fyrir jafn lítið fé og raun ber vitni.

36földuðu fjárfestingu sína


Í lok árs 2013 var P/F Magn selt til SÍA II, sjóðs sem rek­inn er af sjóðs­stýr­inga­fé­lag­inu Stefni, dótt­ur­fé­lagi Arion banka. Sölu­verðið var 3,95 millj­arðar króna. Samkvæmt árs­reikn­ingi Heddu fyrir árið 2013 var hagn­aður af söl­unni 3.718 millj­ónum króna.

Samhliða var Skelj­ungur seldur til sama sjóðs á yfir fjóra millj­arða króna. Fyrrum eig­endur Skelj­ungs, sem fengu að kaupa meiri­hluta í félag­inu með því að greiða hrakvirði fyrir það sum­arið 2008, hafa því hagn­ast gríð­ar­lega á við­skiptum sínum með félagið og P/F Magn.

Það hefur þrenn­ingin sem vann í fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Glitnis þegar Skelj­ungur var seldur, þau Halla Sigrún, Einar Örn og Kári Þór, líka gert.

Í árs­reikn­ingum Nolt ehf., félags Kára Þórs, kemur fram að á árinu 2012 hafi það eign­ast hluta­fjár­eign sem metin er á 24,3 millj­ónir króna. Ári síðar hafði virði hluta­fjárs­ins hækkað úr 24,3 millj­ónum króna í 887,4 millj­ónir króna og hagn­aður Nolt það árið var 860 millj­ónir króna.

[quote font="0" align="right"]Þre­menn­ing­arnir fengu því að kaupa 22 pró­sent hver í P/F Magn á 24 millj­ónir króna, félagi sem innan við ári síðar var metið á um fjóra millj­arða króna[/quote]

Þre­menn­ing­arnir fengu því að kaupa 22 pró­sent hver í P/F Magn á 24 millj­ónir króna, félagi sem innan við ári síðar var metið á um fjóra millj­arða króna. Á þessu ári græddu þau 860 millj­ónir króna. Þre­menn­ing­arnir 36föld­uðu fjár­fest­ingu sína á einu ári.

Finnst langt seilst þegar viðskipti hennar eru gerð tortryggileg


Morg­un­blaðið greindi frá því í síð­ustu viku að Halla Sigrún, sem er stjórn­ar­for­maður Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, hafi hagn­ast um 830 millj­ónir króna á söl­unni á Skelj­ungi og P/F Magn þegar hún fór fram í des­em­ber­lok 2013.

[quote font="0" align="right"] Hins vegar finnst mér langt til seilst þegar við­skipti mín eru gerð tor­tryggi­leg og fræjum efa­semda sáð um heil­indi mín.[/quote]

Halla Sigrún sendi frá sér yfir­lýs­ingu sama dag þar sem hún til­tók að hún hafi alltaf farið eftir gild­andi lögum og reglum í sínum fjár­fest­ingum. „ Mér þykir miður þegar reynt er að gera þessi per­sónu­legu við­skipti mín tor­tryggi­leg, ekki síst þegar gefið er í skyn að ég hafi ekki gætt að hugs­an­legum hags­muna­á­rekstrum í störfum mínum eða jafn­vel sagt ósatt. Slíkar ásak­anir tek ég alvar­lega[...]Ég geri mér grein fyrir því að gerð er rík krafa til ein­stak­linga sem taka að sér störf á vegum hins opin­bera. Á það ekki síst við um for­mennsku í stjórn Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Þeir sem taka að sér slík störf þurfa að þola að um þá sé fjallað og geri ég engar athuga­semdir við það. Hins vegar finnst mér langt til seilst þegar við­skipti mín eru gerð tor­tryggi­leg og fræjum efa­semda sáð um heil­indi mín. Þegar við bæt­ist að fjöl­skylda mín er áreitt af frétta­mönnum get ég ekki annað en brugð­ist við“.

Viðbrögð hennar voru þau að til­kynna Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra að hún myndi ekki óska eftir að skipun hennar sem stjórn­ar­for­maður Fjár­mála­eft­ir­lits­ins yrði fram­lengd þegar hún rennur út í lok árs.

Skömmu síðar var greint frá því að Íslands­banki hefði kært Höllu Sigrúnu til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins og Sérstaks sak­sókn­ara eftir að hún hætti störfum þar og hóf störf hjá Straumi. Kærurnar voru látnar niður falla hjá báðum emb­ættum og mun það hafa verið gert áður en Halla hóf störf hjá Straumi. Lauk mál­unum því fyrir ára­mót 2011-2012. Höllu var gefið að sök að hafa tekið með sér upp­lýs­ingar úr bank­anum þegar hún skipti um vinnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár