Viðræður Sam-félagsins við Netflix langt komnar

Sam-félagið ehf, sem á og rekur Sambíóin og Samfilm, er í við­ræðum við Netflix um að láta efn­isveit­una hafa efni sem félagið á rétt á. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er Árni Sam­ú­els­son, eig­andi og stjórn­ar­for­maður Sam-félags­ins, nú staddur í Los Angeles á fundum með for­svars­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins vegna þessa. Sam-félagið er stærsta kvik­mynda­fyr­ir­tæki og og rekstr­ar­að­ila kvik­mynda­húsa á Íslandi, bæði í dreif­ingu kvik­mynda í kvik­mynda­húsum og útgáfu dvd diska. Fyr­ir­tækið er því rétt­hafi mik­ils magns efnis sem myndi verða aðgengi­legt hjá Netflix þegar veitan opnar hér­lendis ef samn­ingar nást. Heim­ildir Kjarnans herma að það muni draga til tíð­inda í við­ræð­unum innan skamms.

[quote font="0" align="right"]Heim­ildir Kjarnans herma að það muni draga til tíð­inda í við­ræð­unum innan skamms.[/quote]

Netflix er streymi­þjón­usta þar sem hægt er að nálg­ast mikið magn kvik­mynda, sjón­varps­þátta, barna­efnis, heim­ild­ar­mynda og ann­ars áhorf­an­legs efnis. Þjón­ustan hefur þann aug­ljósa kost fram yfir línu­lega sjón­varps­dag­skrá að not­endur geta horft á það efni sem þeir vilja þegar þeir vilja í nán­ast hvaða tæki sem þeir vilja. Áskrift að Netflix er auk þess mun ódýr­ari en áskrift að þeim sjón­varps­stöðum sem hægt er að ger­ast áskrif­andi að á Íslandi.

Um 20 þúsund heimili þegar með Netflix


Nokkuð er síðan að Netflix lýsti yfir áhuga á að opna fyrir þjón­ustu sína á Íslandi. Viðræður við suma rétt­hafa íslensks efnis hafa staðið yfir í um ár. Nú virð­ist vera komin mjög góður gangur á þær og heim­ildir Kjarnans herma að vilji sé hjá fyr­ir­tæk­inu til að semja við stóra rétt­hafa og jafn­vel finna sér sam­starfs­að­ila til að sjá um þjón­ust­una hér­lendis. Von er á nið­ur­stöðu í þessar við­ræður mjög fljót­lega.

Þrátt fyrir að þjón­usta Netflix sé ekki í boði hér­lendis er samt sem áður talið að um 20 þús­und íslensk heim­ili séu með aðgang að veit­unni. Vin­sældir hennar hafa farið ört vax­andi und­an­farin ár, sér­stak­lega eftir að Netflix fór að fram­leiða eigin efni. Þar best hæst þátt­arað­irnar House of Cards, Orange is the New Black og fjórða ser­ían af Arrested Develop­ment. Netflix bauð upp á þá sér­stöðu að setja þátt­arað­irnar inn í heilu lagi og gefa not­endum því fullt svig­rúm til að ákveða hversu marga þætti þeir horfðu á í röð. Hjá línu­legum sjón­varps­stöðvum hefur á hinn bóg­inn lengi tíðkast að sýna ein­ungis einn þátt í þátta­röð í hverri viku.

[caption id="attachment_11290" align="aligncenter" width="960"] House of Cards þátt­arað­irnar, og leik­sigur Kevin Spacey í hlut­verki Frank Underwood, hefur átt mik­inn hlut í vel­gengni Netflix.[/caption]

Íslensk afþrey­ing­ar­fyr­ir­tæki, á borð við 365 miðla og Símann, hafa brugð­ist skarpt við hinni óform­legu inn­reið Netflix inn á mark­að­inn, meðal ann­ars með því að setja þátt­araðir í heilu lagi inn í sam­bæri­lega þjón­ustu og Netflix býður upp á, sem er ein­ungis aðgengi­leg þeirra áskrif­endum.

Metið á tvær landsframleiðslur


Vöxtur Netflix und­an­farin ár hefur verið ævin­týra­legur. Fyr­ir­tækið er nú með starf­semi í yfir 40 löndum og virði þess um miðjan sept­em­ber síð­ast­lið­inn var um 28 millj­arðar dala, rúm­lega 3.400 millj­arðar króna. Það eru tæp­lega tvær árlegar íslenskar lands­fram­leiðslur.

Netflix er orðið einn af kyndil­berum nýmiðl­unar í heim­inum og stefnir að því að vera komið með um 57 millj­ónir not­endur út um allan heim í lok þessa árs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár