Brotthvarf Swift af Spotify snýst um sölu á útgáfufyrirtæki

Líkt og Kjarninn greindi frá í gær þá ákvað Taylor Swift, stærsta popp­stjarna sam­tím­ans, að láta fjar­lægja allar plötur sem hún hefur gefið út af tón­list­ar­veit­unni Spotify. Sú aðgerð er gríð­ar­legt áfall fyrir Spotify enda Swift á meðal vin­sæl­ustu lista­manna hjá tugum millj­óna not­enda sem borga mán­að­ar­lega fyrir aðgang að veit­unni.

Nú greinir Business Insider frá því að ástæðan fyrir því að plötur Swift eru ekki lengur aðgengi­legar á Spotify sé sú að Scott Borchetta, aðal­eig­andi og for­stjóri útgáfu­fyr­ir­tækis Swift, The Big Machine Label Group, sé að reyna að selja fyr­ir­tækið sitt. Borchetta vill fá um 200 millj­ónir dali, um 24,4 millj­arða króna, og er víst þeirrar skoð­unar að vænt­an­legir kaup­endur muni ein­ungis horfa til þess hversu margar plötur fyr­ir­tækið selji þegar þeir taka afstöðu til verð­mið­ans. Samkvæmt frétt Business Insider er hann þeirrar skoð­unar að spil­anir laga á Spotify muni ekki hafa nein telj­andi áhrif á kaup­verðið.

[caption id="attachment_11207" align="aligncenter" width="1024"] Þetta er við­mótið sem mætir not­endum Spotify þegar þeir reyna að spila plötur og lög Taylor Swift.[/caption]

Virkar til skamms tíma, veldur skaða til langs tíma


Því er Borchetta að fjar­lægja tón­list Swift til að skapa skort á tón­list Swift og þar með ýta áhan­gendum hennar í átt að því að kaupa nýj­ustu plötu hennar 1989, sem kom út í síð­ustu viku, annað hvort á geisla­disk eða í gegnum nið­ur­hal á síðum á borð við iTu­nes, sem skilar meiru í vas­ann en hlust­anir á Spotify.

Til skamms tíma virð­ist aðgerð­ar­fræðin vera að virka. Talið er að ný plata Swift hafi selst í 1,3 millj­ónum ein­taka fyrstu helg­ina eftir að hún kom út. Reynist það rétt er um að ræða mestu sölu á plötu á einni helgi í Banda­ríkj­unum frá árinu 2002, sem er ári áður en iTu­nes varð til og ger­bylti tón­list­ar­geir­anum.

Uni­ver­sal Music Group, sem sér um dref­ingu á tón­list Swift fyrir útgáfu­fyr­ir­tæki Borchetta, hefur reynt mikið að fá hann til að skipta um skoðun og telur nálgun hans vera mjög gam­al­dags. Til lengri tíma muni hún líka hafa nei­kvæð áhrif á vin­sældir Swift, sem er gríð­ar­lega vin­sæl á Spotify. Fjórði hver not­andi tón­list­ar­veit­unnar hefur streymt lagi eftir hana og lög hennar eru á um 20 milljón spil­un­ar­listum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár