Taylor Swift lætur fjarlægja allar plötur sínar af Spotify

Popp­stjarnan Taylor Swift, sem er á meðan vin­sæl­ustu tón­list­ar­manna í heimi í dag, setti ekki nýj­ustu plöt­una sína, sem kall­ast eftir fæð­ing­ar­ári hennar 1989, á tón­list­ar­veit­una Spotify. Auk þess stað­festi tals­maður Spotify í sam­tali við Business Insider að Swift hafi látið fjar­lægja allar plötur sem hún hefur gefið út af veit­unni. Aðdá­endur hennar munu því þurfa að leita ann­arra leiða til að hlusta á tón­list Swift en að greiða mán­að­ar­lega áskrift af Spotify.

Ein króna af hverri spilun


Tón­list­ar­menn græða mun minna á því að selja tón­list­ina sína í gegnum tón­list­ar­veitur á borð við Spotify en þeir gera á því að selja staf­rænar plötur og lög í gegnum þjón­ustur á borð við iTu­nes. Spotify greiðir reyndar 70 pró­sent af öllum tekjum sínum til plötu­út­gef­anda, í ár verður sú tala um millj­arður Banda­ríkja­dala eða 123 millj­arðar króna. Spotify áætlar að hver spilun skili lista­manni á milli 0,006 og 0,0084 Banda­ríkja­dala í höf­unda­rétt­ar­greiðslum, sem gera um 0,7 upp í rúma eina krónur. Það finnst mörgum lista­mönnum, meðal ann­ars Taylor Swift, alls ekki vera nóg.

Spotify segist elska Taylor Swift


Spotify birti yfir­lýs­ingu á heima­síðu sinni í dag vegna aðgerða Swift. Þar segir að fyr­ir­tækið elski Taylor Swift og að yfir 40 millj­ónir Spotify-not­endur elski hana enn meira. Nálægt 16 millj­ónir þeirra hafi hlustað á lag með henni síð­asta mán­uð­inn og tón­list hennar væri að finna á meira en 19 þús­und spil­un­ar­listum not­enda Spotify.

„Við von­umst til þess að hún skipti um skoðun og legg­ist á árar með okkur við að byggja upp nýtt tón­list­ar­hag­kerfi sem virkar fyrir alla. Við trúum því að aðdáa­endur eigi að geta hlustað á tón­list hvar sem er og hvenær sem er, og að lista­menn eigi algjöran rétt til þess að fá greitt fyrir verk sín og verja sig fyrir sjó­ræn­ingja­starf­semi. Þess vegna borgum við næstum því 70 pró­sent af tekjum okkar aftur til tón­list­ar­sam­fé­lags­ins“.

Spotify er metið á nærri fjóra millj­arða dala, um 490 millj­arða króna. The Journal greindi frá því í sumar að Spotify sé mögu­lega til sölu fyrir yfir tíu millj­arði dala, um 1.225 millj­arða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár