Nigel Farage deilir ESB-skoðun Bjarna á Twitter

Ummæli Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um að við­ræður Íslend­inga við Evr­ópu­sam­bandið væru komnar á enda­stöð hafa vakið athygli víðar en á Íslandi. Í ræðu sinni á flokks­ráðs­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins um helg­ina sagði Bjarni meðal ann­ars að „þær við­ræður sem fyrri stjórn setti af stað eru komnar á enda­stöð. Aðdrag­andi máls­ins á Alþingi, sýnd­ar­við­ræð­urnar síð­asta kjör­tíma­bil og við­skiln­aður vinstri stjórn­ar­innar við málið var með þeim hætti að það er rétt að hreinsa borðið og hefja umræð­una á nýjum og réttum for­sendum.“

Í morgun birti blogg­ar­inn Paul Staines, sem skrifar undir nafn­inu Guido Fawkes og er yfir­lýstur hægri­maður, ummæli eftir Bjarna í flokknum ummæli dags­ins (e. Quote of The Day). Hann gerir reyndar þau mis­tök að halda Bjarna vera utan­rík­is­ráð­herra. Guido Fawkes bloggið er mjög mikið lesið og var meðal ann­ars lýst af breska dag­blað­inu The Daily Tel­egraph sem „einni af mest leið­andi pólitisktu blogg­síð­unum“ í Bret­landi árið 2007.

Síðar í dag birti Guido Fawkes síðan ummælin á Twitter. Þar tók Nigel Farage, leið­togi UKIP-flokks­ins í Bret­landi, sem er mjög andsnú­inn Evr­ópu­sam­band­inu, færsl­una upp og endur-twittaði henni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár