Velta kvikmyndaiðnaðarins hefur margfaldast á örfáum árum

Velta í fram­leiðslu á kvik­myndum, mynd­böndum og sjón­varps­efni hér­lendis var nán­ast jafn mikil á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2014 og hún var allt árið 2011. Hún hefur vaxið gríð­ar­lega síð­ast­lið­inn ár eftir að end­ur­greiðslur hins opin­bera til þeirra sem ákveða að taka upp kvik­myndir, mynd­bönd eða sjón­varps­efni á Íslandi var hækkuð í 20 pró­sent af fram­leiðslu­kostn­aði. Þetta kemur fram í tölum yfir veltu í skatt­flokki þess­arar starf­semi sem Hag­stofan birtir.

Endurgreiðslur skipta miklu máli


Íslenska ríkið end­ur­greiðir 20 pró­sent af fram­leiðslu­kostn­aði sem til fellur við fram­leiðslu kvik­mynda eða sjón­varps­efnis hér­lendis. Þessu aðstoð­ar­kerfi var komið á árið 1999 og var end­ur­greiðslan upp­runa­lega tólf pres­ent, var síðan hækkuð í fjórtán pró­sent og loks upp í 20 pró­sent 2009.Í sinni núver­andi mynd gilda lög um end­ur­greiðslur til árs­ins 2016.

Ástæða þess að þau eru ein­ungis látin gilda til nokk­urra ára í senn er sú að þá gefst yfir­völdum svig­rúm til að bregð­ast við athuga­semdum Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA (ESA) um lög­mæti end­ur­greiðsln­anna. Svona end­ur­greiðslur eru nefni­lega rík­is­styrkur til til­tek­innar atvinnu­starf­semi og slíkur er almennt bann­aður innan Evrópska Efna­hags­svæð­is­ins (EES).

[caption id="attachment_11019" align="aligncenter" width="1024"] Hin gríð­ar­vin­sæla þátta­röð Game of Thrones hefur að hluta til verið tekin upp á Íslandi. Þær upp­tökur höfðu veru­leg áhrif á veltu iðn­að­ar­ins hér­lendis og sköp­uðu fjöl­mörg störf fyrir fólk í honum.[/caption]

Ekki bara á Íslandi


Það eru alls ekki bara Íslend­ingar sem end­ur­greiða fram­leiðslu­kostnað með þessu móti til að lokka erlenda fram­leið­endur til að taka upp sitt efni hér­lendis, og letja inn­lenda fram­leið­endur frá því að taka sitt efni upp erlendis. Þvert á móti er þetta gert víða um heim, meðal ann­ars í öðrum löndum sem eru aðilar að Evr­ópu­sam­band­inu og þar af leið­andi hluti af EES-samn­ingnum.

[quote font="0" align="right"]Ein ástæða þess að ESA gerir ekki athuga­semdir við fyr­ir­komu­lagið eins og það er núna er sú að það eru ákveðin skil­yrði sem þarf að upp­fylla til að hljóta hana.[/quote]

Ein ástæða þess að ESA gerir ekki athuga­semdir við fyr­ir­komu­lagið eins og það er núna er sú að það eru ákveðin skil­yrði sem þarf að upp­fylla til að hljóta hana. Sú helsta er að end­ur­greiðslan sé til þess fallin að koma íslenskri menn­ingu á fram­færi, kynna sögu lands og nátt­úru eða að við­kom­andi sé til þess fallin að stuðla að auk­inni reynslu, þekk­ingu og list­rænum metn­aði þeirra sem að fram­leiðsl­unni standa.

Veltan tæplega fjórfaldast


Hækkun á end­ur­greiðslum hefur heldur betur aukið veltu kvik­mynda­iðn­að­ar­ins und­an­farin ár. Árið 2008, ári áður en að end­ur­greiðslu­hlut­fallið var hækkað í 20 pró­sent, var heild­ar­velta fram­leiðslu á kvik­myndum, mynd­böndum og sjón­varps­efni tæpir 4,5 millj­arðar króna. Árið 2012 var sú velta komin upp í 13,5 millj­arða króna. Hún hafði því þre­fald­ast á fjórum árum.

Á fyrri helm­ingi árs­ins 2014 er veltan 8,2 millj­arðar króna. Eg hún yrði jafn­mikil á seinni hluta þessa árs myndi veltan í ár verða 16,4 millj­arðar króna, eða tæp­lega fjórum sinnum meiri en hún var fyrir sex árum síðan. Veltan á fyrri helm­ingi árs er auk þess nán­ast jafn­mikil og hún var allt árið 2011.

[quote font="0" align="right"]Veltan á fyrri helm­ingi árs er auk þess nán­ast jafn­mikil og hún var allt árið 2011.[/quote]

Þessi gríð­ar­lega aukn­ing á veltu er að stóru leyti til­komin vegna erlendra verk­efna. Það sem af er árinu 2014 eru 83 pró­sent þeirra verk­efna sem hafa fengið end­ur­greiðslu frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu.

Tölurnar hér að ofan eru allar teknar af vef Hag­stof­unar, sem byrj­aði í ár að gefa reglu­lega út tölur yfir veltu í skatt­flokknum 59.11, sem nær yfir skatt­greiðslur á kvik­myndum, mynd­böndum og sjón­varps­efni.

[caption id="attachment_10899" align="aligncenter" width="640"] „Ég hitti Illuga og við áttum ákveðnar við­ræður upp á vest­firsku. Hann gerði athuga­semdir við ræð­una mína, hann hefur jú mál­frelsi eins og ég hef mál­frelsi. Eru stjórn­mála­menn ekki ann­ars með harðan skráp?,“ sagði Benedikt Erlings­son í sam­tali við Kjarnann eftir að hafa gagn­rýnt stjórn­völd í ræðu sinni þegar mynd hans hlaut kvik­mynda­verð­laun Norð­ur­landa­ráðs.[/caption]

Gagnrýndi íslensk stjórnvöld harkalega


Þrátt fyrir þennan mikla upp­gang í grein­inni ákváðu íslensk stjórn­völd að skera niður fjár­fram­lög til kvik­mynda­gerðar á þessu ári um 42 pró­sent. Talsmenn kvik­mynda­iðn­að­ar­ins hafa verið mjög opin­skáir með þá skoðun sína að þessi nið­ur­skurður geti, að þeirra mati, eyði­lagt það mikla upp­bygg­ing­ar­starf sem hefur átt sér stað innan hans und­an­farin ár.

Benedikt Erlings­son, leik­stjóri kvik­mynd­ar­innar Hross í oss, vand­aði íslenskum stjórn­völdum ekki kveðj­urnar þegar hann tók við kvik­mynda­verð­launum Norð­ur­landa­ráðs í vik­unni. Þar hvatti hann aðra nor­ræna ráða­menn til að nýta fok­dýra eft­irpar­tíið eftir verð­launa­af­hend­ing­una til að útskýra fyrir íslenskum kol­legum sínum, sem sátu í salnum, mik­il­vægi þess að standa fast að baki menn­ingu. Ræðan fór fyrir brjóstið á Illuga Gunn­ars­syni, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, sem fór bak­sviðs eftir hana og átti orða­skipti við Benedikt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár