Sagan endalausa um Eurovision

Eftirmál vegna Eurovision söngvakeppn­innar í Kaup­manna­höfn, sem fram fór í maí­mán­uði síð­ast­liðnum, ætla engan enda að taka. Kostn­að­ur­inn varð marg­falt meiri en áætl­anir gerðu ráð fyrir en við­brögðin minna helst á „Litlu gulu hæn­una” þar sem allir, nema sú litla gula, sögðu "ekki ég.“ Í Eurovision sög­unni vill hins­vegar eng­inn vera litla gula hænan og taka á sig ábyrgð­ina. Sitja uppi með apann eins og Danir kalla það.

Sig­ur­víman var varla runnin af Dönum eftir sigur Emmelie de Forest í Eurovision söngvakeppn­inni í maí í fyrra þegar byrjað var að bolla­leggja hvar í Danmörku keppnin skyldi haldin árið 2014. Nokkrir staðir voru nefndir, fyrir utan Kaup­manna­höfn var einkum talað um Boxen í Herning á Jótlandi. Boxen (heitir Jyske Bank Boxen) er fjöl­nota­hús, var tekið í notkun 2010 og er einkum notað fyrir tón­leika, sýn­ingar, íþrótta­keppnir og ýmis­konar stærri við­burði. Boxen getur tekið allt að 15 þús­und manns í sæti og hljóm­burð­ur­inn í hús­inu þykir góður. Forum höllin í Horsens og Ráð­stefnu­höllin í Óðins­véum voru einnig nefndar.

Sjónir danska útvarps­ins, DR, beindust þó fyrst og fremst að Kaup­manna­höfn. Fyrir því voru ýmsar ástæður nefndar. Flug­völl­ur­inn á Kastrup er í tæp­lega níu kíló­metra fjar­lægð frá mið­borg­inni, höf­uð­stöðvar DR eru í Kaup­manna­höfn og fyr­ir­séð að ef staður utan höf­uð­borg­ar­innar yrði fyrir val­inu myndi allt til­standið við keppn­ina og und­ir­bún­ing hennar kosta mikil ferða­lög, tíma og fyr­ir­höfn. Auk þess var nefnt að til dæmis í Herning væri ekki nægt gisti­rými fyrir allan þann mann­skap sem tengd­ist við­burði sem þessum. Þess vegna þótti stjórn­endum DR strax í upp­hafi Kaup­manna­höfn lang væn­leg­asti kost­ur­inn.

Stálgrindahús verður tónleikahöll


Þann 2. sept­em­ber var til­kynnt að keppnin færi fram í höf­uð­borg­inni. Þótt það kæmi ekki sér­stak­lega á óvart duttu mörgum dauðar lýs úr höfði þegar greint frá keppn­is­staðum sjálfum. DR hafði semsé valið að halda keppn­ina í stóru stál­grinda­húsi á Refs­haleöen (sem er nú hluti Amager) á gamla athafna­svæði Burmeister & Wain skipa­smíða­stöðv­ar­innar. Síðan B&W varð gjald­þrota hafa bygg­ing­arnar á Refs­haleöen verið nýttar til ýmissa hluta og stóra stál­grinda­húsið um nokk­urra ára skeið verið notað sem leik­tjalda og bún­inga­geymsla fyrir Kon­ung­lega leik­húsið.

Margar efa­semd­arraddir heyrð­ust, þessi for­ljóta skipa­smíða­skemma væri ekki boð­leg sem tón­list­ar­höll, sam­göng­urnar við svæðið erf­iðar, húsið yrði ekki til­búið o.s.frv. o.s.frv.

For­svars­menn DR og fyr­ir­tæk­is­ins Propjektselska­bet, und­ir­fyr­ir­tæki Wonderful Copenhagen (Ferða­mála­sam­tök Kaup­manna­hafnar), sem skipu­lagði og sá um und­ir­bún­ings­vinn­una full­yrtu að allt yrði til­búið í tíma, slíkar áhyggjur væru ástæðu­lausar. Sam­göngu­málin yrðu leyst, þótt skemman, að utan, væri vissu­lega eng­inn feg­urð­ar­auki yrði hún því glæsi­legri að innan.

Allt gekk þetta eftir og flestir eða allir eru sam­mála um að keppnin sem slík hafi í alla staði tek­ist vel, sviðið verið glæsi­legt o.s.frv.

[caption id="attachment_10958" align="alignnone" width="640"] Þótt margir hafi efast um að stál­grind­ar­hús væri hent­ugt hús­næði undir Eurovision, er sam­dóma álit flestra að síð­asta keppni hafi verið hin glæsi­leg­asta.[/caption]

Mjög langt eftirpartí


Eftir að keppnin var afstaðin kom fljótt í ljós að ekki hafði allt verið með felldu við und­ir­bún­ing­inn. Kannski væri rétt­ara að segja að ekk­ert hefði þar verið með eðli­legum hætti. Að minnsta kosti hvað fjár­málin varð­aði. Nokkrum dögum fyrir keppn­ina greindu danskir fjöl­miðlar frá því að kostn­að­ur­inn yrði meiri en áætl­anir gerðu ráð fyrir, lík­lega um 23 millj­ónir danskra króna (ca 475 millj­ónir íslenskar). Þótt það séu miklir pen­ingar hefðu lík­lega flestir sætt sig við það hefði sagan öll þar með verið sögð. En það var ekki svo, þessar 23 millj­ónir voru bara upp­hafið, topp­ur­inn á ísjak­anum. og þótt nú séu brátt liðnir sex mán­uðir frá keppn­inni eru fréttir af eft­ir­málum hennar nán­ast dag­lega í fjöl­miðlum

Þann 2. maí, þegar keppnin var nýaf­staðin, kröfð­ust nokkrir borg­ar­full­trúar skýr­inga á þessum 24 millj­óna króna auka­reikn­ingi. Ekki voru komin nein við­hlít­andi svör þegar til­kynnt var að auka­reikn­ing­ur­inn væri ekki 23 heldur 70 millj­ónir (1.450 millj­ónir íslenskar) Einn borg­ar­full­trúi sagði þá að hann væri nokk­urn­vegin viss um að á end­anum yrði þessi tala miklu hærri. Hann reynd­ist hafa rétt fyrir sér.

Hvernig í veröldinni stendur á þessu?


Þetta er spurn­ingin sem danskir stjórn­mála­menn kröf­uð­ust þess að fá svör við og jafn­framt hver bæri ábyrgð­ina. Varðandi ábyrgð­ina bendir hver á annan en böndin ber­ast alltaf að Wonderful Copenhagen (WF) og und­ir­fyr­ir­tæki þess. For­svars­menn segja að samn­ing­ur­inn við WF sé ekk­ert leynd­ar­mál, WF tók að sér að sjá um allan und­ir­bún­ing fyrir til­tekna upp­hæð, punktur og basta. Fyrir nokkrum dögum var skipuð sér­stök nefnd sem á að kom­ast til botns í mál­inu. Rík­is­end­ur­skoðun er líka að rann­saka málið og tvær nefndir á vegum danskra ráðu­neyta, semsé fjórar rann­sókn­ar­nefndir. Þessar rann­sóknir taka vænt­an­lega nokkra mán­uði en á að vera lokið fyrir vorið. Nokkrir af stjórn­endum WF hafa verið reknir og stjórn­ar­for­mað­ur­inn sagði af sér dag­inn áður en hann átti að fá upp­sagn­ar­bréfið

Komnir á fremsta hlunn með að aflýsa keppninni


DR hefur nú, eftir mik­inn þrýst­ing stjórn­mála­manna, birt 600 blað­síðna skýrslu um und­ir­bún­ing keppn­innar og samn­inga við WF. Það er fróð­leg lesn­ing og margt sem kemur á óvart. Til dæmis að verk­lýs­ing og kostn­að­ar­á­ætlun WF komst fyrir á einu blaði í A4 stærð. Í skýrsl­unni kemur líka fram að þangað til hálfum mán­uði fyrir keppn­ina ótt­uð­ust for­svars­menn DR að aflýsa yrði keppn­inni vegna þess að WF og und­ir­fyr­ir­tæki þess voru komin í þrot. Til að bjarga mál­inu lán­aði DR tugi millj­óna króna til að tryggja að keppnin félli ekki niður. WF hefur haldið því fram að DR hafi sífellt komið með nýjar kröfur um allt mögu­legt sem hafi hleypt kostn­að­inum upp, þessum ásök­unum vísar DR á bug.

307 milljónir?


Fyrir nokkrum dögum sagði dag­blaðið MX Metroex­press frá því að sam­kvæmt gögnum sem blaðið hefði undir höndum hefði kostn­að­ur­inn við Eurovision keppn­ina í heild numið 307 millj­ónum danskra króna (ca 6.4 millj­arðar íslenskir). Þing­maður sem blaðið ræddi við sagði að sér hefði svelgst á morg­un­kaff­inu þegar hann sá þessa tölu. DR hefur ekki stað­fest að þessi tala sé rétt, en hvort svo er kemur vænt­an­lega í ljós þegar rann­sókn­ar­nefnd­irnar birta sín gögn.

Fjöl­miðlar hér í Danmörku hafa eytt miklu púðri í þetta mál og tala alltaf um það sem “skandale” hneyksli. Þeir hafa týnt allt mögu­legt til sem ekki er hægt að koma fyrir í pistli sem þessum. En eftir að hafa fylgst með þessu máli vikum og mán­uðum saman getur þessi pistla­höf­undur tekið undir með blaða­manni sem sagði eitt­hvað á þá leið að„hér var ekki bara pottur brot­inn heldur heil bús­á­halda­búð."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár