Þetta ætlar Facebook að gera næsta áratuginn

Facebook kynnti nið­ur­stöðu þriðja árs­fjórð­ungs í rekstri fyr­ir­tæk­is­ins í gær. Alls voru tekjur Facebook á tíma­bil­inu 1. júlí til 30. sept­em­ber 2014 3,2 millj­arðar dala, eað um 387 millj­arðar króna. Þar af voru 358 millj­arðar króna aug­lýs­inga­tekjur og juk­ust þær um 64 pró­sent frá sama árs­fjórð­ungi 2013.

Á kynn­ing­unni sögðu Dave Wehner, fjár­mála­stjóri Facebook, og Mark Zuckerberg, for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, einnig frá því að kostn­aður Facebook myndi lík­lega aukast um 70 pró­sent á næsta ári, 2015. Ástæðan væri sú að fyr­ir­tækið ætl­aði sér að ráð­ast í umsvifa­miklar ráðn­ingar á hæfi­leika­fólk og upp­kaup á tækni­fyr­ir­tækjum sem hent­uðu starf­semi Facebook.

Zuckerberg opin­ber­aði líka þriggja ára, fimm ára og tíu ára áætl­anir Facebook. Í mjög grófum dráttum vill hann að ýmsar Facebook vörur,WhatsApp, Messen­ger, Search, Video, NewsFeed, Oculus og Instagram), muni hver um sig tengja um einn millj­arð not­enda. Þegar því tak­marki verði náð ætlar Zuckerberg sér, af mik­illi áræðni, að búa til pen­inga úr öllum þessum tengslum.

Zuckeberg vill líka bæta aug­lýs­inga­upp­lifun, sér­stak­lega á snjall­símum. Til að gera þetta mun Facebook miða út og mæla mark­hópa með nákvæm­ari hætti í gegnum þær upp­lýs­ingar sem fyr­ir­tækið býr yfir. Í dag eyða aug­lýsendur í Banda­ríkj­unum ein­ungis ell­efu pró­sent af aug­lýs­ingafé sínu í að birta á snjall­símum. Í því sér Facebook mikil tæki­færi.

Að lokum ætlar Facebook sér að leiða næstu stóru nýj­ung í tölvu­fram­þróun fyrir mass­ann, og er nokkuð ljóst að þar á að veðja á sýnd­ar­veru­leika Oculus, en Facebook keypti Oculus á um 240 millj­arða króna í mars síð­ast­liðnum. Fyr­ir­tækið ætlar líka að færa fleira fólki aðgang að inter­net­inu í gegnum www.internet.org, sem á að lækka kostnað vegna slíks aðgangs mikið.

Hægt er að lesa útskrift af áætlun Zuckerberg á vef Business Insider.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár