Norski herinn mun senda reikning fyrir hríðskotabyssunum

Talsmenn norska hers­ins segja að það sé alveg skýrt að reikn­ingur verði sendur til Íslands vegna þeirra 250 MP5-hríð­skota­byssa sem Íslend­ingar hafa fengið frá honum. Sam­komu­lag hafi orðið á milli aðila um að senda ekki slíkan reikn­ing fyrr en í lok árs vegna efna­hags­á­stands­ins á Íslandi. Frá þessu greinir norska blaðið Dag­bla­det.

Stóra hríðskotu­byssu­málið er orðið fyr­ir­ferða­mikið frétta­mál í norskum fjöl­miðlum. Þar er full­yrt að það hafi ollið stjórn­ar­krísu hjá íslensku rík­is­stjórn­inni.

Verið að vopnavæða NATO-bandamann?


Málið hófst á því að DV sagði íslensku lög­regl­unni hafa keypt um 200 MP5 hríð­skota­byssur frá Noregi. Það var síðar borið til baka af bæði full­trúum rík­is­stjórn­ar­innar og lög­reglu­yf­ir­völdum sem sögðu byss­urnar vera 150 og að þær hafi verið gjöf. Loks kom í ljós að það var í raun norski her­inn sem hafði látið íslensku Land­helg­is­gæsl­una hafa vopnin, fjöldi hríð­skota­byss­anna væri 250 og að gæslan hafi alls fengið um 310 vopn frá norska hernum frá árinu 2011. Þar af séu 150 fyrir lög­regl­una en 160 fyrir gæsl­una. Fyrir tveimur dögum síðan sendi Land­helg­is­gæslan síðan frá sér til­kynn­ingu, og opin­ber­aði farm­bréf, þar sem ítrekað var að um gjafir hafi verið að ræða.

Á vef­síðu Dag­bla­det í Noregi er fjallað ítar­lega um málið og rætt við tals­mann yfir­manns í norska hernum. Þar segir að það hafi vakið upp úlfúð meðal hluta almenn­ings að verið væri að eyða fé í byssu­kaup á sama tíma og Ísland stæði frammi fyrir stór­tækum efna­hags­legum vanda á ýmsum sviðum. Í umfjöll­un­inni er síðan rakið að því sé haldið fram að um gjafir sé að ræða og að Íslend­ingar hafi ekki, og muni ekki, greiða krónu fyrir þær. Á móti hafi það vakið upp spurn­ingar um hvort það sé þá Noregur sem ýti á NATO-banda­mann sinn Ísland til að vopna­væð­ast. Síðan er sagt frá því að nokkur hund­ruð manns hafi mót­mælt vopna­væð­ingu lög­reglu á föstu­dag og að stofnuð hafi verið Facebook-grúppa gegn henni sem sé nú með nálægt níu þús­und með­limi.

„Við munum senda reikning“


Í umfjöllun Dag­bla­det segir að hin hörðu við­brögð frá Íslandi hafi komið norska hernum í opna skjöldu. Sér­stak­lega að það sé sífellt verið að tala um að byss­urnar marg­um­ræddu hafi verið gjöf. „Við munum senda reikn­ing“, er haft eftir Bent- Ivan Myhre, tals­manni Haralds Sunde, yfir­manns í norska hernum sem er tal­inn ábyrgður fyrir því að gefa okkur byssur. Hann vísar síðan í að skrifað hafi verið undir samn­ing um sölu á 250 MP5-hríð­skota­byssum 17. des­em­ber í fyrra þar sem kaup­verðið var 625 þús­und norskar krónur, um 11,5 millj­ónir íslenskar krónur. Þessi upp­hæð á að greið­ast, segir Myhre.

Í umfjöllun Dag­bla­det er sagt að mið­ill­inn hafi vit­neskju um að norski her­inn hafi aldrei sent reikn­ing fyrir byss­unum, þrátt fyrir að þær hafi verið afhentar fyrir átta mán­uðum síðan. Þar segir einnig að slíkt þýði ekki að byss­urnar hafi verið gjöf, heldur hafi samn­ings­að­ilar orðið sam­mála um, vegna efna­hags­á­stands­ins á Íslandi, að senda ekki reikn­ing­inn fyrr en í lok upp­gjörsárs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár