Þrotabú Landsbanka hefur ekki fengið svör, áttu að berast eftir helgi

Slita­stjórn Lands­bank­ans var til­kynnt af stjórn­völdum að hún gæti búist við að fá svör hvort, og þá hvaða, breyt­ingar þyrfti að gera á sam­komu­lagi hennar við nýja Lands­bank­ans um leng­ingu á greiðslum af skulda­bréfum upp á 228 millj­arða króna sem nýi bank­inn skuldar þeim gamla.

[quote font="0" align="right"]Hug­myndin var að við hefðum þá fáeina daga til að fara yfir málið og taka afstöðu til þess áður en frest­ur­inn rynni út. En við erum ekki búnir að fá nein svör. [/quote]

Páll Bene­dikts­son, upp­lýs­inga­full­trúi slita­stjórn­ar­innar, segir að á þeim grunni hafi verið ákveðið að fram­lengja loka­frest á frá­gangi sam­komu­lags­ins um viku, en upp­runa­legi frest­ur­inn rann út síð­ast­lið­inn föstu­dag. Sá nýji, sem var settur á föstu­dag, er 31. októ­ber 2014. „Hug­myndin var að við hefðum þá fáeina daga til að fara yfir málið og taka afstöðu til þess áður en frest­ur­inn rynni út. En við erum ekki búnir að fá nein svör. Þannig að við vitum ekki hvort þau eru á leið­inni eða hvað,“ segir Páll.

Greiðsla fyrir eignir sem voru færðar


Í des­em­ber 2009 var samið um upp­gjör milli þrota­bús gamla Lands­bank­ans og nýja Lands­bank­ans vegna þeirra eigna sem færðar voru þar á milli eftir banka­hrunið. Í sam­komu­lag­inu fólst meðal ann­ars að íslenska ríkið eign­að­ist nýja bank­ann utan lít­ils hlutar sem myndi renna til starfs­manna hans. Á móti gaf þrota­búið út upp­gjörs­skulda­bréf sem nýi bank­inn átti að greiða vegna þeirra eigna sem hann tók yfir.

Skulda­bréfin voru upp á mörg hund­ruð millj­arða króna í erlendum gjald­miðlum og loka­greiðsla átti að vera innt af hendi í októ­ber 2018, tíu árum eftir fall Lands­bank­ans. Því var ljóst að nýi Lands­bank­inn þurfti að verða sér úti um mikið magn af gjald­eyri til að standa við greiðsl­urnar.

Fljótt varð ljóst að svona miklar útgreiðslur á gjald­eyri, á jafn skömmum tíma, myndu ógna greiðslu­jöfn­uði þjóð­ar­bús­ins veru­lega. Því var þrýst veru­lega á að fyr­ir­komu­lag­inu yrði breytt.

228 milljarðar í erlendum gjaldeyri


Þann 8. maí síð­ast­lið­inn var til­kynnt um að sam­komu­lag hefði náðst milli Lands­bank­ans og þrota­bús gamla Lands­bank­ans um breyt­ingar á skil­málum skulda­bréf­anna, en eft­ir­stöðvar eru um 228 millj­arðar króna. Sam­komu­lagið snérist um að lengt yrði í greiðslum af skulda­bréf­unum til árs­ins 2026 gegn því að vaxta­kjör myndu hækka eftir árið 2018. Það var hins vegar bundið því að Seðla­banki Íslands myndi veita und­an­þágur frá lögum um gjald­eyr­is­mál, enda höft á fjár­magns­flutn­inga í gildi í land­inu.

[caption id="attachment_10261" align="alignnone" width="631"] Skrifað var undir nýtt sam­komu­lag milli nýja og gamla Lands­bank­ans í maí 2014. Það fellur úr gildi ef ekki semst um und­an­þágur vegna sam­komu­lags­ins í þess­ari viku.[/caption]

Tilboðið um nýja sam­komu­lagið gildir fram á næsta föstu­dag. Eftir þann tíma fellur það niður og gamla sam­komu­lagið heldur áfram gildi sínu. Samkvæmt því þarf að ljúka greiðslur í októ­ber 2018. Verði ekki af leng­ingu skulda­bréfa milli gamla og nýja Lands­bank­ans þyrfti inn­lend eft­ir­spurn að drag­ast sam­an og gengi krón­unn­ar að lækka til að þjóð­ar­búið geti skapað meiri gjald­eyris­tekj­ur til að standa und­ir greiðsl­un­um.Seðla­bank­inn metur að gengi krón­unnar þyrfti að lækka um átta pró­sent til að gera þetta mögu­legt.

Stál í stál hjá stjórnvöldum


Samkvæmt fjöl­mörgum heim­ildum Kjarnans er ástæða þess að Seðla­banki Íslands og fjár­mála­ráðu­neytið hafa ekki lagt fyrir þrotabú Lands­bank­ans til­lögur um skil­yrði sem þrota­búið þarf að mæta til að und­an­þág­urnar verði veittar er ein­föld, það er ekki ein­ing um að semja við kröfu­hafa með þessum hætti innan rík­is­stjórn­ar­innar.

[caption id="attachment_8266" align="alignnone" width="640"] Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra er sagður alfarið á móti því að semja um fram­leng­ingu á skulda­bréfum milli nýja og gamla Lands­bank­ans.[/caption]

Æðstu stjórn­endur Seðla­banka Íslands og Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra, eru sagðir vera hlynntir því að semja við þrota­búið um fram­leng­ingu á skulda­bréf­inu með ákveðnum breyt­ingum á fyr­ir­liggj­andi sam­komu­lagi. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra, og nán­ustu sam­starfs­menn hans eru algjör­lega á móti þess­ari nið­ur­stöðu.

Sig­mundur Davíð lýsti yfir and­stöðu við leng­ingu á gjald­dögum skulda­bréfa Lands­bank­ans í ræðu á Alþingi í maí síð­ast­liðnum. Þar sagði hann meðal ann­ars: Það að lengja í þessu bréfi og það á hærri vöxtum er hins vegar ekk­ert aug­ljós­lega góður kostur. Þegar ein­hver skuldar eitt­hvað sem hann getur ekki borgað leysir það ekki öll mál að hækka vext­ina og láta þá tikka í lengri tíma.

Það sem snýr hins vegar að stjórn­völdum í þessu máli er hvort for­svar­an­legt sé að veita und­an­þágu frá gjald­eyr­is­höft­unum bara fyrir þessa aðila á meðan aðrir verða áfram lok­aðir hér innan hafta. Það getur ekki verið for­svar­an­legt að veita und­an­þágu fyrir einn eða tvo til­tekna aðila til þess að sleppa út með gjald­eyri, jafn­vel nið­ur­greiddan gjald­eyri, gjald­eyri sem yrði þá nið­ur­greiddur af þeim sem eftir sætu í höftum og þar með talið íslenskum almenn­ingi, hugs­an­lega með var­an­legri skerð­ingu á raun­gengi krón­unnar sem þýðir ein­fald­lega lak­ari lífs­kjör í land­inu til fram­tíðar. Slík nið­ur­staða væri alltaf óásætt­an­leg og þar af leið­andi gætu stjórn­völd ekki heim­ilað und­an­þágu frá höft­unum sem leiddi til slíks.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár