Þýski fjármálaráðherrann: Tími bankaleyndar liðinn

Wolgang Schäuble, fjár­mála­ráð­herra Þýska­lands, greindi frá því við upp­haf skatta­ráð­stefnu sem fram fer í Berlín í dag að tími banka­leyndar, eins og henni hefur verið fram­fylgt víða um heim­inn til þessa, væri lið­inn.

Í sam­tali við Bild í morgun sagði Schäuble: „Banka­leynd í sínu gamla formi er úr sér gengin.“ Á morgun, mið­viku­dag, munu þýsk stjórn­völd skrifa undir stóran alþjóð­legan samn­ing um að skipt­ast á upp­lýs­ingum um mögu­leg skatt­svik og fjár­fest­ingar útlend­inga árlega í fram­tíð­inni. Á meðal þeirra ríka sem verða aðilar að samn­ingnum eru öll Evr­ópu­sam­bands­ríkin og þekkt skatta­skjól á borð við Liecthenstein, Bermúda og Cayman-eyjar. Alls munu 50 ríki und­ir­gang­ast hann. Banda­ríkin verða ekki á meðal þeirra ríkja, en þau vinna hins vegar mjög stíft að því á öðrum vett­vöngum að upp­ræta skatt­svik og banka­leynd­ina sem hylur þau.

Schäuble segir að í náinni fram­tíð verði sá reikn­ingur sem skattsvik­arar þurfa að greiða kom­ist upp um þá verði „mjög stór“.

[caption id="attachment_10684" align="alignnone" width="1024"] Falið fé í þekktum skatta­skjólum verður ekki lengur öruggt fyrir löngum armi skatta­yf­ir­valda.[/caption]

Geisladiskar með nöfnum skattsvikara verða verðlausir


Þýsk stjórn­völd hafa verið mjög dug­leg á und­an­förnum árum við að kaupa upp­lýs­ingar um þýska skattsvik­ara sem geyma háar fjár­hæðir í fjar­lægum skatta­skjóðum. Á árunum 2006 til 2012 hafa þau keypt slíkar upp­lýs­ingar fyrir sam­tals 20 millj­ónir evra. Talið er að þær upp­lýs­ingar hafi skilað um 2.000 millj­óna evra hagn­aði fyrir þýsk stjórn­völd í formi end­ur­á­lagn­inga.

Auk þess hafa fjöl­margir þýskir skattsvik­arar valið að snúa heim með faldar eignir sínar, greiða af þeim gjöld og sektir fyrir felu­leik­inn til að forð­ast mögu­lega fang­els­is­dóma. Schäuble segir að þessi leið, að selja geisla­diska með upp­lýs­ingum um skattsvik­ara fyrir stórar fjár­hæðir, verði fljót­lega ekki lengur fær. Gögnin verði einskis virði vegna þess að rík­is­stjórnir munu geta nálg­ast þau sjálfar eftir form­legum leiðum.

Kjarninn greindi frá því í morgun að emb­ætti Skatt­rann­sókn­ar­stjóra hafi fengið nöfn 50 íslenskra aðila sem vís­bend­ingar eru um að hafi stundað skattaund­an­skot frá manni sem bauð emb­ætt­inu slík gögn til sölu. Fjár­mála­ráðu­neytið er nú með það til ákvörð­unar hvort frek­ari gögn verði keypt af mann­inum, en sýn­is­hornin sem skatt­rann­sókn­ar­stjóri fékk er um tíu pró­sent þeirra gagna sem mað­ur­inn, sem er erlendur, er með undir höndum og fjalla um íslenska aðila.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár