Skrautleg saga Skeljungs endar í milljarðahagnaði

Halla Sigrún Hjart­ar­dótt­ir, stjórn­ar­for­maður Fjár­mála­eft­ir­lits­ins (FME), hagn­að­ist um lið­lega 830 millj­ón­ir króna þegar gengið var frá sölu á Skelj­ungi og fær­eyska olíu­fé­lag­inu P/​F Magn í lok árs 2013. Frá þessu var greint í Morg­un­blað­inu í dag. Í blað­inu kemur enn fremur fram að Halla Sigrún hafi neitað því að hafa átt í félag­inu til þessa, en hún var skipuð for­maður stjórnar FME í des­em­ber í fyrra.

Afhjúpun Morg­un­blaðs­ins er enn einn kafl­inn í skraut­legri sögu Skelj­ungs und­an­farin ára­tug. Á þeim tíma hefur fyr­ir­tækið verið selt marg­sinnis fram og til baka, oft milli tengdra aðila. Miklar efa­semdir hafa skap­ast um hvort þeir sem fóru með sölu félags­ins hafi haft hags­muni selj­enda eða kaup­enda að leið­ar­ljósi og á end­anum virð­ist lít­ill en tengdur hópur sem starf­aði í fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Glitnis/Íslands­banka þegar Skelj­ungur var seldur af bank­anum í tveimur skrefum sum­arið 2008 og árið 2009, og nýir aðal­eig­endur Skelj­ungs, hafa hagn­ast um marga millj­arða króna á við­skiptum með félagið og fær­eyska dótt­ur­fé­lagið P/F Magn.

Selt fram og til baka


Í febr­úar 2004 keypti eign­ar­halds­fé­lag á vegum Pálma Har­alds­sonar, sem oft­ast er kenndur við Fons, og þáver­andi við­skipta­fé­laga hans, Jóhann­esar Krist­ins­sonar, Skeljung af Kaup­þingi. Tæpu ári síðar var félagið selt til Haga, sem þá voru í eigu Baugs­fjöl­skyld­unnar, en náið við­skipta­sam­band var á milli Pálma og hennar. Í kjöl­farið var versl­un­ar­rekstur Skelj­ungs færður yfir til 10-11, sem þá var einnig í eigu Haga.

Ári síðar, 1. mars 2006, var Skelj­ungur seldur að nýju og í þetta sinn til félags­ins Upp­sprettu ehf., dótt­ur­fé­lags Fons. Rekstur bens­ín­stöðv­anna var sam­hliða færður aftur frá 10-11 til Skelj­ungs. Sömu aðilar voru því að selja félagið fram og til baka á milli sín.

[quote font="0" align="right"]Á manna­máli þýddi það að bank­inn skuld­batt sig til að kaupa olíu­fé­lagið á því verði ef eng­inn annar væri til­bú­inn til þess.[/quote]

Þannig hélst eign­ar­haldið fram í des­em­ber 2007 þegar Glitnir ákvað að sölu­tryggja allt hlutafé Upp­sprettu í Skelj­ungi fyrir 8,7 millj­arða króna. Á manna­máli þýddi það að bank­inn skuld­batt sig til að kaupa olíu­fé­lagið á því verði ef eng­inn annar væri til­bú­inn til þess. Sú varð raunin og því eign­að­ist bank­inn félagið. Í árs­lok þess árs námu skuldir Skelj­ungs rúmum tíu millj­örðum króna en þorri þeirra var í erlendum gjald­eyri. Þær hækk­uðu því mikið við fall krón­unnar.

Borguðu með fasteignum í Danmörku


Í ágúst 2008 keypti félagið BG Partners 51 pró­senta hlut í Skelj­ungi. Eigendur þess voru hjónin Svan­hildur Nanna Vig­fús­dóttir og Guð­mundur Þórð­ar­son og við­skipta­fé­lagi þeirra, Birgir Þór Bielt­vedt. Heild­ar­virði Skelj­ungs var í þeim við­skiptum talið vera um þrír millj­arðar króna, sem er rúmur þriðj­ungur af sölu­trygg­ing­unni sem Glitnir veitti og tap­aði síðar. BG Partners greiddi sam­kvæmt því um 1,5 millj­arð króna fyrir ráð­andi hlut í Skelj­ungi.

Reyndar liggur ekki alveg fyrir hvert loka­verðið var því hluti kaup­verðs­ins var greiddur með fast­eignum í Danmörku sem hríð­lækk­uðu í verði eftir að alþjóða­lega fast­eigna­bólan sprakk með látum árið 2008. Staða Skelj­ungs á þessum tíma var ekki góð. Skuldir höfðu vaxið úr tíu millj­örðum króna í 18 millj­arða króna á einu ári og eigið fé félags­ins var nei­kvætt um rúm­lega 1,8 millj­arða króna.

[caption id="attachment_10672" align="alignnone" width="640"] Glitnir sölu­tryggði Skeljung fyrir 8,7 millj­arða króna og tap­aði stór­kost­lega á því þegar félagið var selt.[/caption]

Sá 49 pró­senta hlutur sem Glitnir hélt eftir var færður yfir til Íslands­banka eftir banka­hrunið og bank­inn fékk tvo menn í fimm manna stjórn. Í lok maí 2009 var Einar Örn Ólafsson ráð­inn for­stjóri Skelj­ungs. Full­trúar Íslands­banka í stjórn félags­ins, þeir Ríkharð Ottó Rík­harðs­son og Hörður Felixson, greiddu ekki atkvæði með ráðn­ingu Einars. Einar hafði áður unnið hjá fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Íslands­banka og var meðal ann­ars for­stöðu­maður hennar frá stofnun bank­ans í októ­ber 2008. Einar hafði einnig séð um söl­una á 51 pró­senta hlut í Skelj­ungi frá Glitni til BG Partners, félags þeirra Svan­hildar Nönnu, Guð­mundar og Birgis, í ágúst 2008. Á meðal sam­starfs­fé­laga Einars í fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Glitnis, og síðar Íslands­banka, voru Halla Sigrún Hjart­ar­dóttir og Kári Þór Guð­jóns­son. Þau áttu eftir að koma mikið við sögu Skelj­ungs­við­skipta síðar meir.

Hætti vegna trúnaðarbrests


Þegar Einar var ráð­inn for­stjóri Skelj­ungs var það gert að til­lögu stjórnar félags­ins, þeirra Svan­hildar Nönnu, Guð­mundar og Birgis. For­svars­menn Íslands­banka voru afar ósáttir við að ekk­ert sam­ráð var haft við þá áður en til­lagan var lögð fram, enda hafði Einar skömmu áður hætt störfum hjá bank­anum.

[quote font="0" align="right"]For­svars­menn Íslands­banka komust á snoðir um þetta og mátu það svo að óheppi­legt væri að Einar héldi áfram að vinna þar, meðal ann­ars vegna þess að hann hafði aðgang að trún­að­ar­upp­lýs­ingum í bank­anum sem gætu nýst Skelj­ungi. [/quote]

Samkvæmt frétt DV um starfs­lok hans urðu þau vegna trún­að­ar­brests sem skap­ast hafði milli Einars og for­svars­manna bank­ans. Einar hafði, sam­kvæmt frétt­inni, verið að hugsa um að finna sér aðra vinnu um nokk­urt skeið og var far­inn að ræða við eig­endur Skelj­ungs um að taka við félag­inu á meðan hann starf­aði enn í bank­anum. For­svars­menn Íslands­banka komust á snoðir um þetta og mátu það svo að óheppi­legt væri að Einar héldi áfram að vinna þar, meðal ann­ars vegna þess að hann hafði aðgang að trún­að­ar­upp­lýs­ingum í bank­anum sem gætu nýst Skelj­ungi. Einari var því gert að hætta með skömmum fyr­ir­vara.

Bankinn lét fara fram óháða rannsókn


Í kjöl­far ráðn­ingar Einars lét Íslands­banki óháðan aðila rann­saka sölu bank­ans á ráð­andi hlut í Skelj­ungi, sem Einar hafði séð um, því bank­inn vildi ganga úr skugga um að eðli­lega hefði verið staðið að söl­unni. Mikið var rætt um málið í stjórn Íslands­banka á þessum tíma og ljóst var að afstaða sumra stjórn­ar­manna var sú að BG Partners hefði fengið að kaupa gott rekstr­ar­fé­lag fyrir alltof lágt verð og auk þess borgað fyrir það með eignum sem stjórn­ar­menn­irnir töldu full­víst að væru minna virði en upp­haf­lega var af látið.

[quote font="0" align="right"]Ráðning Einars til Skelj­ungs ýtti enn frekar undir þessa skoðun stjórn­ar­mann­anna. Eitt af því sem hinn óháði aðili var lát­inn rann­saka var hvort eðli­legt hefði verið að taka við greiðslu fyrir Skeljung í formi þeirra fast­eigna sem not­aðar voru til að greiða fyrir hlut­inn.[/quote]

Ráðning Einars til Skelj­ungs ýtti enn frekar undir þessa skoðun stjórn­ar­mann­anna. Eitt af því sem hinn óháði aðili var lát­inn rann­saka var hvort eðli­legt hefði verið að taka við greiðslu fyrir Skeljung í formi þeirra fast­eigna sem not­aðar voru til að greiða fyrir hlut­inn. Þessi rann­sókn virð­ist ekki hafa leitt neitt óeðli­legt í ljós. Bankinn greip að minnsta kosti ekki til neinna aðgerða gegn nýjum eig­endum Skelj­ungs né Einari sjálfum. Rann­sóknin hefur hins vegar aldrei verið gerð opin­ber.

Þrjú tilboð í hlutinn


Eftir að lægja tók var eft­ir­stand­andi eign­ar­hlutur Íslands­banka í Skelj­ungi síðan settur í form­legt sölu­ferli í nóv­em­ber 2009. Ljóst var að það ferli yrði erfitt, enda um minni­hluta­eign að ræða. BG Partners myndi alltaf ráða Skelj­ungi þótt ein­hverjir alls óskyldir fjár­festar kæmu að félag­inu.

[quote font="0" align="right"]Tilboð þeirra Nönnu, Guð­mundar og Birgis reynd­ist á end­anum hag­stæð­ast og var því tekið. Þau greiddu mun lægra verð fyrir en þegar þau keyptu upp­runa­lega hlut­inn.[/quote]

Þrátt fyrir það sýndu um 20 fjár­festar hlutnum áhuga í fyrstu og þrjú til­boð bár­ust í hann að lokum: Frá sænska fyr­ir­tæk­inu Atlantic Tank Storage, félagi í eigu Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur, eig­anda Ísfé­lags­ins í Vest­manna­eyjum og að lokum frá meiri­hluta­eig­end­unum í félag­inu, sem áttu for­kaups­rétt sam­kvæmt fyrri kaup­samn­ingi. Tilboð þeirra Nönnu, Guð­mundar og Birgis reynd­ist á end­anum hag­stæð­ast og var því tekið. Þau greiddu mun lægra verð fyrir en þegar þau keyptu upp­runa­lega hlut­inn.

Birgir seldi sinn hlut í Skelj­ungi árið 2011. Hann er í dag aðal­eig­andi Domino´s Pizza á Íslandi. Svan­hildur Nanna og Guð­mundur áttu eftir það um 92 pró­senta hlut í Skelj­ungi.

Allt gengur upp


Á síð­ustu árum virð­ist allt hafa gengið upp hjá Skelj­ungi. Félagið hagn­að­ist um tæpan 1,5 millj­arð króna á árunum 2010 og 2011. Í febr­úar 2012 end­ur­fjár­magn­aði Arion banki allar skuldir móð­ur­fé­lags Skelj­ungs sem greiddi með því upp allar skuldir sínar við Íslands­banka. Þar með var slitið á tengslin við for­tíð­ina. Heild­ar­skuldir voru enn háar, um 10,6 millj­arðar króna í lok árs 2011, en eig­in­fjár­staðan var jákvæð um 3,7 millj­arða króna.

Í til­kynn­ingu frá félag­inu vegna þess­arar afkomu sagði að mark­miðið með þessum við­skiptum hefði verið að stuðla „að vexti félags­ins, auka verð­gildi þess og jafn­framt að gera það að áhuga­verð­ari fjár­fest­ing­ar­kosti". Þar sagði enn­fremur að „mikil umbreyt­ing [hefði] átt sér stað á rekstri og efna­hag Skelj­ungs á und­an­förnum árum […] Nettó vaxta­ber­andi skuldir þess eru kr. 4.882 millj. og hafa lækkað um kr. 6.980 millj. síðan núver­andi eig­endur komu að rekstr­inum haustið 2008".

Skýr­ingar á þess­ari lækkun á skuldum voru nokkrar. Sú sem mestu skipti var svokölluð höf­uð­stólsleið­rétt­ing á skuldum sem Íslands­banki bauð fyr­ir­tækjum upp á. Við hana voru erlend lán Skelj­ungs færð yfir í krónur. Í öðru lagi hafði hagn­aður félags­ins verið ágætur auk þess sem það seldi höf­uð­stöðvar sínar árið 2011. Það gerði Skelj­ungi kleift að greiða hraðar niður skuldir.

Eignast 66 prósent í P/F Magn


Í frétt Morg­un­blaðs­ins í morgun kemur fram að Svan­hildur og Guð­mundur, í gengum eign­ar­halds­fé­lagið Heddu, hafi keypt fær­eyska félagið P/F Magn af þrota­búi Fons vorið 2009 og að kaup­verðið hafi ein­ungis verið á þriðja hund­rað millj­ónir króna. Sú tala þykir mjög lág því á síð­asta ári, 2013, var velta félags­ins 17 millj­arðar króna og hagn­aður þess um 440 millj­ónir króna.

Morg­un­blaðið segir að á árinu 2011 hafi Halla Sigrún Hjart­ar­dóttir, Einar Örn Ólafsson og Kári Þór Guð­jóns­son, sem öllu unnu í fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Glitnis/Íslands­banka þegar Guð­mundur og Nanna keyptu Skeljung, eign­ast 66 pró­sent hlut í Heddu, sem á þeim tíma átti P/F Magn að öllu leyti. Hvert og eitt þeirra átti eftir þetta 22 pró­sent hlut í Heddu.

[caption id="attachment_10673" align="align­right" width="150"] Halla Sigrún Hjalta­dóttir, stjórn­ar­for­maður FME og fjár­festir.[/caption]

Í mars 2012, mán­uði eftir að Skelj­ungur var end­ur­fjár­magn­aður, var Skelj­ungur lát­inn kaupa 34 pró­sent hlut í P/F Magn af Heddu, félagi þeirra Svan­hildar og Guð­mundar. Í aðdrag­anda kaupanna var hlutafé Skelj­ungs aukið um 447 millj­ónir króna á geng­inu þrjár krónur á hlut. Samkvæmt því var kaup­verðið á hlutnum í fær­eyska félag­inu í kringum 1,3 millj­arðar króna. Kaup­verðið var greitt með nýju hlutafé í Skelj­ungi, og eftir við­skiptin átti Hedda 25 pró­sent í Skelj­ungi auk 66 pró­sent hlutar í P/F Magn. Morg­un­blaðið segir hins vegar að fjórð­ungs­hlutur Heddu í Skelj­ungi hafi áfram verið einka­eign Guð­mundar og Svan­hildar Nönnu. P/F Magn hafi Skelj­ungs­hjónin átt ásamt þre­menn­ing­unum Höllu Sigrúnu, Einari og Kára.

Félögin seld á átta milljarða


Í árs­reikn­ingi fyrir árið 2011 hjá einu þeirra félaga sem Svan­hildur Nanna og Guð­mundur áttu og hélt á hlut í Skelj­ungi kom fram að heild­ar­virði Skelj­ungs hefði verið 6,9 millj­arðar króna í lok þess árs. Það byggði á mati sem Straumur fjár­fest­inga­banki hafði unnið fyrir félagið og var unnið út frá núvirtu sjóð­streymi þess. Miðað við það hafði virði Skelj­ungs, sem keypt var af Íslands­banka á minna en þrjá millj­arða króna, auk­ist mikið á árunum eftir banka­hrun. Á sama tíma er ljóst að Íslands­banki hafði tapað stór­kost­lega á félag­inu, bæði vegna 8,7 millj­arða króna sölu­trygg­ing­ar­innar sem fyr­ir­renn­ari bank­ans veitti Pálma Har­alds­syni og vegna afskrifta á skuldum sem fylgdu hinni svoköll­uðu höf­uð­stólsleið­rétt­ingu sem félagið fékk hjá bank­anum.

Árið 2013 var svo greint frá því að Svan­hildur Nanna og Guð­mundur hefðu ákveðið að selja allan hlut sinn í olíu­fé­lag­inu Skelj­ungi og dótt­ur­fé­lag­inu P/F Magn. SÍA II, sjóður sem rek­inn er af sjóðs­stýr­inga­fé­lag­inu Stefni, dótt­ur­fé­lagi Arion banka, leiddi kaupin. Morg­un­blaðið segir að kaup­verðið fyrir Skeljung hafi verið yfir fjórir millj­arðar króna. Auk þess hafi 3,95 millj­arðar króna verið greiddir fyrir fær­eyska félagið. Samtals var því greitt um átta millj­arðar króna fyrir félögin tvö.

Neitaði að eiga í Skeljungi eða tengdum félögum


Halla Sigrún var skipuð stjórn­ar­for­maður FME í des­em­ber í fyrra af Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra. Hún hafði áður starfað hjá Straumi í tvö ár en starfs­lok hennar þar bar skyndi­lega að. Fullyrt var í fjöl­miðlum að starfs­lokin hefðu verið til­komin vegna þess að upp komst um fjár­fest­ingar hennar í Skelj­ungi og P/F Magn. Halla neit­aði því í sam­tali við DV og sagð­ist aðspurð að hún ætti ekk­ert í Skelj­ungi eða félögum sem tengj­ast olíu­fé­lag­inu. „Ég vil ekki tjá mig um fjár­fest­ingar mínar í fjöl­miðlum […] Ég hef ekki átt nein við­skipti við Skeljung umfram það að kaupa bensín.“ Hún neitar því að komið hafi upp trún­að­ar­brestur á milli hennar og Straums áður en hún lét af störfum hjá bank­anum. „Nei, alls ekki.“ Halla Sigrún seg­ist kann­ast við þessa „leið­in­legu kjafta­sögu“ en segir að hún vilji ekki ræða málið í fjöl­miðlum.

[caption id="attachment_10653" align="aligncenter" width="950"] Halla Sigrún Hjalta­dóttir var skipuð stjórn­ar­for­maður Fjár­mála­eft­ir­lits­ins í lok árs 2013. Um svipað leyti fór fram sala á Skelj­ungi og P/F Magn.[/caption]

Morg­un­blaðið greindi frá því í morgun að Halla Sigrún hefði hagn­ast um lið­lega 830 millj­ónir króna þegar gengið var frá söl­unni á Skelj­ungi og fær­eyska olíu­fé­lag­inu P/F Magn í lok árs 2013. Samkvæmt því hefur Halla Sigrún því átt tölu­verð við­skipti við Skeljung umfram það að kaupa bensín.

Frétta­skýr­ingin byggir að hluta til á kafla úr bók­inni „Ísland ehf – auð­menn og áhrif eftir hrun“, eftir höf­und frétta­skýr­ing­ar­innar og Magnús Hall­dórs­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár