Stórar smásölukeðjur í Bandaríkjunum hafna Apple Pay

Stórar banda­rískar smá­sölu­keðjur hafa hafnað nýkynntu greiðslu­kerfi Apple-ris­ans, sem kall­ast Apple Pay. Wal-Mart, Best Buy, Rite Aid og CVS hafa allar sagt að þær vilji ekki, og muni ekki, bjóða upp á greiðslu­leið­ina fyrir sína við­skipta­vini. Bæði Rite Aid og CVS próf­uðu að bjóða upp á þjón­ust­una en hættu því um liðna helgi. Frá þessu er greint á vef Business Insider.

Apple kynnti Apple Pay, snerti­lausa greiðslu­leið, í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Með Apple Pay eru korta­upp­lýs­ingar geymdar í iPhone tæk­inu og sím­anum rennt í gegnum þar til gerðan posa til að greiða fyrir vörur. Með þessu áttu eig­endur iPhone síma ekki lengur að ganga með veski til að hýsa fjöl­mörg greiðslu­kort og/eða pen­inga­seðla.

Samkvæmt umfjöllun um málið á vef The Verge hefur alls ekki gengið vel hjá Apple að sanka að sér sam­starfs­að­ilum til að taka upp Apple Pay greiðslu­leið­ina. Þar segir að sam­kvæmt upp­lýs­ingum á heima­síðu Apple séu ein­ungis 34 smá­sölu­sam­starfs­að­ilar sem not­ast við Apple Pay leið­ina í Banda­ríkj­unum. Átta þeirra eru mis­mun­andi útgáfur af Foot Locker fyr­ir­tæk­inu og einn sam­starfs­að­il­inn er Apple sjálft. Þegar búið er að gera ráð fyrir þessu eru sam­starfs­að­il­arnir því í raun ein­ungis 26 tals­ins.

Ástæða þessa að stórar smá­sölu­keðjur vilja ekki taka upp Apple Pay kerfið, sem er þrátt fyrir allt mjög háþróað og not­enda­vænt kerfi þar greitt er fyrir með einni snert­ingu, er ein­föld: þær vilja ekki að Apple komi sér upp ein­okun á verð­mætum upp­lýs­ingum um hegðun við­skipta­vina þeirra. Sum önnur greiðslu­kerfi, sem verið er að þróa fyrir snjall­tæki, munu gefa stóru keðj­unum kleift að halda eftir þeim upp­lýs­ingum. Þetta eru kerfi á borð við CurrentC, sem Wal Mart ætlar sér að not­ast við.

Þótt illa hafi gengið hjá Apple að koma Pay-leið sinni að þá er ekki talið úti­lokað að hún muni síðar meir fá annað tæki­færi til að ná fót­festu. Þægindin sem leið Apple býður upp á fyrir neyt­endur til að greiða fyrir vörur sínar er ein­fald­lega talin vera mun betri en þær leiðir sem sam­keppn­is­að­ilar hafa boðið upp á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár