Gagnanotkun Íslendinga í gegnum snjalltæki þrefaldast á milli ára

Gagna­flutn­ingur Íslend­inga í gegnum snjall­tæki hefur marg­fald­ast á milli ára. Á fyrri hluta árs­ins 2012 not­uðu Íslend­ingar sam­tals 590 millj­ónir mega­bæta á far­síma­kerf­inu. Á fyrri hluta árs­ins 2013 not­uðu þeir 898 millj­ónir mega­bæta. Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2014 var sú notkun hins vegar 2.539 millj­ónir mega­bæta. Notkunin hefur því þre­fald­ast á einu ári. Þetta kemur fram í nýrri töl­fræði­skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unnar um íslenska fjar­skipta­mark­að­inn sem birt var í lok síð­ustu viku. Skýrslan sýnir stöð­una á mark­aðnum um mitt ár 2014.

Í skýrsl­unni kemur fram að við­skipta­vinir Nova nota miklu meira gagna­magn en við­skipta­vinir hinna fjar­skipta­fyr­ir­tækj­anna. Alls not­uðu við­skipta­vinir Nova 1.926 millj­ónir mega­bæta á fyrri helm­ingi þessa árs, sem þýðir að fyr­ir­tækið er með 75 pró­sent mark­aðs­hlut­deild þegar slík er mæld í niður- eða upp­hlöðnum mega­bætum. Síminn, sem er næst stærstur á þessum mark­aði, er með 16,3 pró­sent mark­aðs­hlut­deild.

Farsímatímabilinu lokið, gagnaflutningstímabilið hafið


Ástæðan fyrir þess­ari miklu breyt­ingu er sú að far­síma­tíma­bil fjar­skipta­geirans er að líða undir lok og gagna­flutn­inga­tíma­bilið að taka við. Tíðni­heim­ildir fyrir 3G, fyrsta háhraða­kyn­slóð far­síma­nets­kerfið, voru boðnar út á Íslandi í lok árs 2006. Kerfið er í raun mun frekar net­kerfi en far­síma­kerfi og gerði gagna­flutn­ing mögu­legan. Allt í einu var mögu­legt að hlaða niður tón­list, horfa á kvik­myndir eða þætti í sím­anum sínum.

[caption id="attachment_10340" align="aligncenter" width="640"] Snjall­símar á borð við iPhone hafa stökk­breytt far­síma­notkun Íslend­inga. Í stað þess að nota tækin fyrst og fremst til að hringja þá notum við þau t.d. til að horfa á mynd­bönd, vafra um netið, hlusta á tón­list og ýms­legt fleira. Allt þetta útheimtir mikla gagna­notkun.[/caption]

Nú stendur næsti fasi yfir. 4G-væð­ingin er í fullum gangi. Skrefið sem verður tekið upp á við með henni er stærra en margir átta sig á. Hraðinn á 4G-teng­ingu er tíu sinnum hrað­ari en í 3G og um þrisvar sinnum hrað­ari en hröð­ustu ADSL-teng­ingar.

Mun auka notkun á snjalltækjum


Síminn, Nova, Vodafone og 365-miðlar hafa öll fengið úthlutað tíðnum til að byggja upp 4G þjón­ustu. Inn­leið­ing hennar er þegar hafin og stór svæði á land­inu hafa þegar aðgang að 4G-neti fjar­skipta­fyr­ir­tækj­anna.

[quote font="0" align="right"]Inn­leið­ingin hefur aukið til muna notkun á snjall­tækjum, enda­hefur hún þau áhrif að not­endur geta sótt miklu meira efni á snjall­tækin sín, hvort sem það eru símar, spjald­tölvur, úr eða ann­ars­konar klæð­an­leg tækni­lausn.[/quote]

Inn­leið­ingin hefur aukið til muna notkun á snjall­tækjum, enda­hefur hún þau áhrif að not­endur geta sótt miklu meira efni á snjall­tækin sín, hvort sem það eru símar, spjald­tölvur, úr eða ann­ars­konar klæð­an­leg tækni­lausn. Neyslu­mynstur þjóð­ar­innar hefur breyst hratt sam­hliða þessu. Miklu meira af fréttum, afþr­ey­ingu eða öðru efni sem mögu­legt er að miðla staf­rænt mun verða neytt á snjall­tækjum. Og grunn­ur­inn er sann­ar­lega til staðar. Í lok árs 2012 átti þriðja hvert heim­ili á Íslandi spjald­tölvu sam­kvæmt neyslu- og lífstíl­skönnun Capacent. Ári síðar átti annað hvert heim­ili slíka. Spjald­tölvum Íslend­inga fjölg­aði um 21.500 á einu ári.

Snjall­síma­eignin er líka orðin nán­ast almenn. Í könnun sem MMR gerði í sept­em­ber í fyrra kom fram að tveir af hverjum þremur Íslend­ingum á snjall­síma. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá sölu­að­ilum þess­arra tækja hefur ekk­ert dregið úr hinni hröðu aukn­ingu það sem af er þessu ári. Eftir að stóru fjar­skipta­fyr­ir­tækin þrjú und­ir­rit­uðu samn­inga við Apple um að kaupa Iphone snjall­síma milli­liða­laust, sem lækk­aði verðið á þeim um allt að 50 þús­und krónur, hefur þvert á móti bæst tölu­vert við. Sam­ing­arnir tóku gildi um miðjan des­em­ber síð­ast­lið­inn og verðið á iPhone tækj­unum er eftir það svipað hér­lendis og í stærri löndum Evrópu. Salan á iPhone hefur sam­hliða þessu flust inn fyrir lands­stein­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár