Vilji til að skapa hagvöxt ól af sér risastórt skipulagsslys

Hvernig gerð­ist það að umfang höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins óx um fjórð­ung á árunum 2002 til 2008, að sam­an­lögð lengd hrað­brauta óx um 60 kíló­metra, ann­arra gatna um 163 kíló­metra, að mis­lægum gatna­mótum fjölg­aði um níu, að risa­vaxnar íþrótta­hallir risu víðs­vegar, að versl­un­ar­rými óx gíf­ur­lega á sama tíma og net­verslun gerir bygg­ingu versl­un­ar­hús­næðis æ úrelt­ari, en hjóla­stígar lagðir á tíma­bil­inu voru sama­lagt ein­ungis þrír kíló­metrar þrátt fyrir að heims­mark­aðs­verð á bens­íni hafi hækkað skarpt allt tíma­bilið?

Þessum spurn­ingum er reynt að svara í bók­inni „Hörgull í allsnægtum- Hið byggða umhverfi og hrunið á Íslandi“ (Scarcity in Excess – The Built Environ­ment and the Economic Crisis in Iceland), sem kom út á dög­unum. Þar er einnig velt upp fjöl­mörgum hug­myndum að lausnum á þeim vanda sem slæmt skipu­lag og hag­vaxta­drifin upp­bygg­ing hús­næðis, inn­viða og mann­virkja skap­aði.

Bókin, sem er á ensku, tekur saman greinar, verk og myndir yfir 60 manns. Höfundar þeirra eru bæði íslenskir og erlendir en rit­stjórar eru Arna Mathiesen, frá Apríl Arki­tektum í Osló, Dr. Giambattista Zaccariotto frá Arki­tekt­ar­skól­anum í Osló og pró­fessor Thomas Forget frá háskól­anum í Norður-Karólínu í Banda­ríkj­unum. Hægt er að kaupa bók­ina í Reykja­vík, en hún er í alþjóð­legri dreif­ingu.

Áhrif bankabólu á byggingar- og skipulagsmál


Bókin bætir úr skorti á umfjöllun á áhrifum banka­bólunnar á bygg­ingar- og skipu­lags­mál, en hún var blásin upp á Íslandi á árunum 2002 til 2008, og sprakk loks með látum. Í inn­gangi hennar segir að þótt Skýrsla Rann­sókn­ar­nefndar Alþingis, sem er um 2.400 blað­síður að lengd, sé mjög góður vitn­is­burður um það sem átti sér stað á Íslandi, þá sé þar ekk­ert fjallað um þá miklu upp­bygg­ingu hús­næðis og mann­virkja sem átti sér stað „þrátt fyrir að bank­arnir hafi verið aðaleik­endur í bygg­ing­ar­bólunni, sem örlátur lán­veit­andi fjár til bygg­ing­ar­fram­kvæmda og sem fjár­mögn­un­ar­að­ili bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja , sem sum hver voru meira að segja rek­inn úr bæki­stöðvum banka. Mörg bygg­ing­ar­fyr­ir­tæki urðu gjald­þrota sam­hliða bönk­unum og sum þeirra hafa nú hafið starf­semi að nýju á nýjum kenni­tölum og án skulda“.

[caption id="attachment_10491" align="aligncenter" width="1021"] Á mynd­inni sjást allir þeir vegir sem voru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í lok tíma­bils­ins. Sam­an­lögð lengd þeirra var 136 kíló­metrar. Sam­an­lögð lengd hjóla­stíga á sama svæði var þrír kíló­metrar.[/caption]

Í fyrsta kafla bók­ar­innar kemur fram að höf­uð­borg­ar­svæðið, sem nær yfir Reykja­vík og sex nágranna­sveit­ar­fé­lög hennar, hafi stækkað um 24 pró­sent að flata­máli á þessu sex ára tíma­bili. Gríð­ar­leg upp­bygg­ing á hús­næði, atvinnu­hús­næði, mann­virkjum, opin­berum bygg­ingum, innviðum, íþrótta­mann­virkjum og einu stykki fjár­mála­hverfi í Borg­ar­túni (sem er nán­ast jafn stórt og allt mið­bæj­ar­svæði Reyka­jvíkur) eru fyrir þess­ari miklu útþennslu. Til að und­ir­strika þær miklu breyt­ingar sem átt hafa sér stað er vísað í tölur Reykja­vík­ur­borgar sem sýna að á á fimmta ára­tug síð­ustu aldar hafi verið um 120 íbúar á hvern hekt­ara í Reykja­vík en sú tala hafi verið komin niður í 36 árið 2005.

Áhrif á heimili og allt of mikið af verslunarhúsnæði


Áhrif bygg­ing­ar­bólunnar á stöðu heim­il­anna eru líka rakin og vísað til þeirra rann­sókna sem fyr­ir­liggja nú sex árum eftir hrun. Hlutfall heim­ila sem voru með nei­kvætt eigið fé í hús­næði sínu var sex pró­sent árið 2007, en eftir að bólan sprakk fór það hlut­fall hæst upp í 37 pró­sent, í lok árs 2010. Auk þess hafa margir ekki átt fyrir afborg­unum af hús­næð­is­lánum. Tölurnar sýna ber­sýni­lega að heim­ilin tóku há íbúð­ar­lán til að kaupa nýbygg­ing­arnar sem ráð­ist var í, en sátu síðan uppi með stór fjá­hags­leg vanda­mál, að minnsta kosti tíma­bundið, þegar góð­ær­inu lauk.

[caption id="attachment_10492" align="aligncenter" width="1021"] Á mynd­inni má sjá allt það versl­un­ar­hús­næðis sem byggt var upp á Íslandi á tíma­bil­inu 2002 til 2008.Í lok þess var versl­un­ar­rými orðið 4,26 fer­metrar á hvern íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.[/caption]

Það var líka mikið kapps­mál að byggja upp stórt versl­un­ar­hús­næði á þessum árum. Stórir versl­un­ar­kjarnar, í námunda við fjöl­farnar umferð­ar­æðar, spruttu upp eins og gorkúlur. Á meðal þeirra minni­stæð­ustu eru Korpu­torg, Holta­garðar og Smára­lind og svæðið í kringum þá versl­un­ar­mið­stöð. Þessi mikla upp­bygg­ing hefur skilað því að versl­un­ar­hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var orðið 4,26 fer­metrar á hvern íbúa, meðan verslun á heims­vísu fer æ meira fram á net­inu og krefst æ minna hús­næðis.

Vildu skilja það sem hafði gerst


Arna Mathiesen, einn rit­stjóra bók­ar­innar, segir að til­gangur hennar hafi verið að reyna að skilja hvað hafi gerst á Íslandi sem hafi orsakað þessa stöðu og reyna að koma með upp­byggi­legar til­lögur til úrbóta. Fyrst sé mik­il­vægt sé að kort­leggja þá þróun sem hafi átt sér stað á tíma­bil­inu sem um ræðir, sér­stak­lega til að koma í veg fyrir að hún geti átt sér stað aftur. „Hvernig var þetta hægt? Bólgin bólgn­aði út, í and­stöðu við öll við­mið sjálf­bærar þró­unar. Nið­ur­staða okkar er sú að hag­vöxtur og bygg­ing­ar­magnið virð­ast hanga saman. Bank­arnir, sem í ein­hverjum til­felllum áttu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækin sjálfir, vildu verða stærri. Og til þess að ná því mark­miði lán­uðu þeir mjög mikið til margra bygg­inga­fyr­ir­tækja sem á móti byggðu bygg­ingar og inn­viði sem hent­uðu þeim mark­miðum, óháð þörfum íbú­anna. Skipu­lags­deildir sveit­ar­fé­laga sáu svo um að skipu­lagið hefði pláss fyrir allt þetta bygg­ing­ar­magn, óháð íbúa­fjölgun. Því hærri lán sem bank­arnir veittu til dýrra bygg­inga­fram­kvæmda, bæði vegna fram­kvæmda við inn­viði og hús­næði, því stærri urðu þeir. Þetta slóg ryki í augun á fólki, sem hélt að það væri gróða­væn­legt fyrir það sjálft að lána og byggja fyrst að fyr­ir­tæki og bankar gerðu það."

[caption id="attachment_10493" align="aligncenter" width="1024"] Það var ekki ein­ungis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem Íslend­ingar fóru fram úr sér í fram­kvæmdum. Hér sést loft­mynd af ætl­aðri búgarða­byggð í Flóanum. Fyrir framan hvern ætl­aðan búgarð var búið að mal­bika hring­torg.[/caption]

Sami hvati og að baki draugaborgunum í Kína


Að mati Örnu skipti líka máli að sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu voru í sam­keppni sín á milli um verslun, fólk og bygg­ingar. „Það hjálp­aði til að skapa þetta ástand. Það fyrsta sem verður að gera til að þetta end­ur­taki sig ekki er að sam­eina sveit­ar­fé­lögin. Það hefur ekk­ert uppá sig að spyrja sveit­ar­fé­lögin hvort þau vilji þetta, þar eru of margir eig­in­hags­munir á ferð. Þetta hlýtur ein­fald­lega að vera þjóð­hags­leg nauð­syn sem þarf að ger­ast á æðra stjórn­stigi, á Alþingi. Svo eru önnur stór­mál sem alþingi hefur alger­lega van­rækt. Í fyrsta lagi þarf að sjá til þess að bankar eigi ekki fyr­ir­tæki í sam­keppn­is­rekstri í bygg­inga­geir­anum. Borgin getur einnig gert sitt í að koma í veg fyrir frek­ari skaða með því að taka próf­mál á deiliskipu­lagið sem leiðir til að í hvert skipti sem bygg­ing­ar­á­form eru í mið­borg hefj­ist ferli sem minnir á samn­inga­við­ræður við ein­hverja mafíu. Svo er nátt­úru­lega gríð­ar­mik­il­vægt að efla neyt­endur til að láta ekki bjóða sér uppá hvað sem er, og að þeir séu gerðir með­vit­aðri um gildi góðrar hönn­unar og hvernig hún geti bætt sam­fé­lagið.“

[quote font="0" align="right"]Ein­hverjir myndu segja að Kín­verska dæmið sé miklu ýkt­ara, en á sinn hátt er íslenska dæmið alveg jafn alvar­legt. Við erum nú einu sinni að tala um gíf­ur­legar fjár­fest­ingar í einum fjórða hluta höf­uð­borg­ar­svæðis þar sem tveir þriðju hlutar þjóð­ar­innar búa.[/quote]

Aðspurð hvort hún viti til þess að sam­bæri­leg þróun hafi átt sér stað ann­ars staðar í heim­inum segir Arna að þar nefna megi Kína. „Þar er verið að byggja stórar drauga­borgir þar sem eng­inn býr, ein­ungis til að búa til hag­vöxt. held að þessi skipu­lags­slys sem urðu á Íslandi hafi fyrst og fremst verið til að fóðra aukin hag­vöxt. Það eru því ákveðin lík­indi þarna á milli að því leyt­inu til. Ein­hverjir myndu segja að Kín­verska dæmið sé miklu ýkt­ara, en á sinn hátt er íslenska dæmið alveg jafn alvar­legt. Við erum nú einu sinni að tala um gíf­ur­legar fjár­fest­ingar í einum fjórða hluta höf­uð­borg­ar­svæðis þar sem tveir þriðju hlutar þjóð­ar­innar búa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár