Tilræðismaður Hedegaard látinn laus í óþökk Dana

Dönsk stjórn­völd eru ævareið Tyrkjum fyrir að hafa sleppt úr haldi dönskum rík­is­borg­ara sem reyndi að ráða danskan rit­höf­und af dögum. Til­ræð­is­mað­ur­inn var hand­tek­inn í Tyrk­landi, dönsk stjórn­völd höfðu óskað eftir fram­sali hans en mann­inum var sleppt áður en til þess kom.

Forsagan


Þann 5. febr­úar 2013 hringdi dyra­bjallan hjá Lars Hedegaard rit­höf­undi á heim­ili hans á Frið­riks­bergi við Kaup­manna­höfn. Sá sem hringdi bjöll­unni var í rauðum jakka, eins og póst­menn klæð­ast, og sagð­ist vera með pakka til rit­höf­und­ar­ins. Eftir að “póst­mað­ur­inn” hafði rétt Hedegaard pakk­ann dró hann upp byssu, mið­aði á höfuð hans og hleypti af. Ekki var miðið nákvæmara en svo að skotið geig­aði og þegar til­ræð­is­mað­ur­inn ætl­aði að bæta um betur stóð byssan á sér. Til handa­lög­mála kom sem end­uðu með því að til­ræð­is­mað­ur­inn komst undan og tókst lög­regl­unni ekki að hafa uppi á honum þrátt fyrir mikla leit.

Bíl sem til­ræð­is­mað­ur­inn hafði komið á, og skyldi eftir skammt frá húsi Hedegaards, hafði hann keypt og notað til þess fölsuð skil­ríki. Þótt ekki hafi verið stað­fest hver ástæða þessa mis­heppn­aða til­ræðis var hafa danska lög­reglan og rit­höf­und­ur­inn sjálfur aldrei verið vafa um að skýr­ing­anna væri að leita í skrifum og ummælum Lars Hedegaard um múslima, sem voru oft á tíðum mjög umdeild.

Hedegaard hafði meðal ann­ars verið dreg­inn fyrir rétt vegna ummæla í umræðu­þætti sem birtur var á net­inu, en mála­ferlin vöktu mikla athygli hér í Danmörku. Hedegaard var sýkn­aður á lægsta dóm­stigi (Byretten), fyrir milli­dóm­stigi (Lands­retten) var hann dæmdur til að greiða 5000 króna sekt en loks sýkn­aður í Hæsta­rétti. Margir litu á þessi mála­ferli sem próf­stein á mál­frelsi en í áður­nefndum umræðu­þætti hafði Hedegaard kveðið mjög fast að orði, svo fast að mörgum þótti nóg um.

"Póstmaðurinn" handtekin


Strax vakn­aði grunur um að til­ræð­is­mað­ur­inn í rauða jakk­anum hefði reynt að kom­ast úr landi en um það var þó ekk­ert vitað. Að sögn rit­höf­und­ar­ins tal­aði mað­ur­inn lýta­lausa dönsku, sem talið var ótví­rætt merki um að hann væri danskur eða hefði að minnsta kosti dvalist hér um langt skeið. En hann var horf­inn og öruggt talið að hann hefði strax farið úr landi.

[quote font="0" align="right"]"Að sögn rit­höf­und­ar­ins tal­aði mað­ur­inn lýta­lausa dönsku, sem talið var ótví­rætt merki um að hann væri danskur eða hefði að minnsta kosti dvalist hér um langt skeið. En hann var horf­inn og öruggt talið að hann hefði strax farið úr landi."[/quote]

Leið nú og beið.

Þann 5. apríl síð­ast­lið­inn hand­tók tyrk­neska lög­reglan 27 ára karl­mann, danskan rík­is­borg­ara, sem danska lög­reglan telur öruggt að sé “póst­mað­ur­inn”. Lög­reglan hefur ann­ars verið mjög spör á upp­lýs­ingar vegna hand­tök­unnar en strax var haf­inn und­ir­bún­ingur þess að fá mann­inn fram­seldan hingað til Dan­merkur. Slíkt getur tekið tíma og þykir ekki óeðli­legt. Rit­höf­und­ur­inn Hedegaard lýsti yfir í við­tölum að hann von­að­ist til að í rétt­ar­höldum í Danmörku kæmi fram hvort þetta til­ræði hefði verið einka­fram­tak við­kom­andi manns eða hvort hann hefði verið full­trúi ein­hverra sam­taka og þá hvaða sam­tök ættu hlut að máli.

[caption id="attachment_10412" align="alignnone" width="640"] Lög­reglu­yf­ir­völd í Danmörku upp­lýsa blaða­menn um hand­töku til­ræð­is­manns Hedegaard í Tyrk­landi, á blaða­manna­fundi 27. apríl síð­ast­lið­inn.[/caption]

Óvæntar fréttir


Þann 2. októ­ber síð­ast­lið­inn hitti starfs­maður danska sendi­ráðs­ins í Tyrk­landi tyrk­neska emb­ætt­is­menn. Þar fékk hann þær óvæntu fréttir að “kannski” væri danski rík­is­borg­ar­inn laus úr fang­elsi, þessar fréttir voru þó óljósar. Rúmri viku seinna, 10. októ­ber, hafði danska rann­sókn­ar­lög­reglan (PET) sam­band við Lars Hedegaard og tjáði honum að “póst­mað­ur­inn” sæti ekki lengur í fang­elsi í Tyrk­landi. Um líkt leyti óskar danska sendi­ráðið í Ankara eftir svörum við því hvort mað­ur­inn hefði verið lát­inn laus. Svör Tyrkja voru loðin og ekki afdrátt­ar­laus og það var ekki fyrr en sendi­nefnd danskra emb­ætt­is­manna fór til Ankara og kraf­ist skýrra svara að tyrk­nesk stjórn­völd stað­festu að danski rík­is­borg­ar­inn “póst­mað­ur­inn” sæti ekki lengur í fang­elsi.

Þegar óskað var skýr­inga á hverju það sætti var í fyrstu fátt um svör. Ekki fékkst stað­fest að mað­ur­inn væri einn þeirra sem Tyrkir slepptu í svo­nefndum fanga­skiptum við Íslamska ríkið svo­nefnda (ISIS) en það hafði verið nefnt í fjöl­miðlum. Danskir þing­menn reidd­ust mjög og ekki urðu upp­lýs­ingar sem síðar bár­ust til að bæta úr skák. Tyrknesk stjórn­völd til­kynntu þá Dönum að þau hefðu ekki viljað að mann­inum yrði sleppt en dóm­stóll hefði ákveðið að það skyldi gert, ástæðan sögð sú að lög­maður manns­ins hefði óskað eftir því. Hvar “póst­mað­ur­inn” væri nið­ur­kom­inn sögðu tyrk­nesk stjórn­völd ekk­ert um, sögð­ust þó ekki vita til að hann væri far­inn úr landi.

Danskir þingmenn æfir


Nú fór allt í háa­loft í danska þing­inu. Sumir kröfð­ust þess að stjórn­mála­sam­bandi við Tyrki yrði þegar í stað slitið, aðrir kröfð­ust refsi­að­gerða gegn Tyrkjum. Tyrk­neski sendi­herr­ann í Kaup­manna­höfn var kall­aður í Utan­rík­is­ráðu­neytið og hund­skammaður (“fik en skideballe”eins og eitt blað­anna orð­aði það) og honum gerð grein fyrir því að þetta mál drægi dilk á eftir sér og Danir myndu ekki orða­laust sætta sig við fram­komu Tyrkja.

Hvað geta Danir gert?


Bæði Helle Thorning-Schmidt for­sæt­is­ráð­herra og Martin Lidegaard utan­rík­is­ráð­herra sögðu marg­sinnis í við­tölum í fjöl­miðlum, fyrst eftir að upp­víst varð um málið, að sú ákvörðun að sleppa “póst­mann­inum” úr haldi væri bæði óskilj­an­leg og óásætt­an­leg. For­sæt­is­ráð­herr­ann sagði að þetta mál yrði tekið upp innan Evr­ópu­sam­bands­ins í tengslum við umfjöllun um ESB umsókn Tyrkja. Hvaða áhrif það hefur er óvíst. Þrátt fyrir að Tyrkir hafi fengið mikla gagn­rýni, ekki síst vegna mann­rétt­inda­mála, vilja stóru og áhrifa­miklu þjóð­irnar innan ESB ekki ganga of hart fram gagn­vart þeim.

[caption id="attachment_10411" align="alignnone" width="640"] Helle Thorning-Schmidt, for­sæt­is­ráð­herra Dana, botnar hvorki upp né niður í ákvörðun tyrk­neskra stjórn­valda um að sleppa til­ræð­is­mann­inum úr haldi.[/caption]

Það er athygl­is­vert að und­an­farna daga hefur tónn dönsku ráð­herr­anna mild­ast nokkuð. Í útvarps­við­tali föstu­dag­inn 24. októ­ber síð­ast­lið­inn sagði Martin Lidegaard utan­rík­is­ráð­herra að hann hefði rætt við tyrk­neska sendi­herr­ann fyrr um dag­inn, í alvar­legum tón. For­sæt­is­ráð­herr­ann notar sömu­leiðis mild­ara orða­lag. Eitt dönsku blað­anna getur sér þess til að það hafi runnið upp fyrir dönsku ráð­herr­unum að innan ESB væri það, að mann­inum hafi verið sleppt ekki talið stór­mál. Þess vegna væri rétt­ast að spara stóru orðin þótt menn láti hvína í tálkn­unum “í tún­inu heima”.

Rithöfundurinn andar rólega


Þrátt fyrir að Lars Hedegaard sé mjög ósáttur við að Tyrkir hafi sleppt mann­inum seg­ist hann anda rólega. Þótt mað­ur­inn hafi reynst svo léleg skytta að hann hitti ekki manns­höfuð á eins metra færi sé hann varla svo skyni skropp­inn að hann komi aftur til Dan­merkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár