Kröfuhafar búast við skrefum í átt að afnámi hafta í vikunni

Kröfu­hafar þrota­bús gamla Lands­bank­ans búast við því að til­kynnt verði um fram­vindu um sam­komu­lag um leng­ingu á 226 millj­arða króna skuld nýja Lands­bank­ans við búið í þess­ari viku. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans telja þeir að upp­lýst verði um fram­vindu í mál­inu á kröfu­hafa­fundi sem hefst í fyrra­málið klukkan 9 og fer fram á Hotel Reykja­vík Natura. Slita­stjórn þrota­bús Lands­bank­ans, upp­lýs­inga­full­trúi nýja Lands­bank­ans og rit­stjóri Seðla­bank­ans vildu ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað.

Uppgjör vegna tilfærslu eigna


Í des­em­ber 2009 var samið um upp­gjör milli þrota­bús gamla Lands­bank­ans og nýja Lands­bank­ans vegna þeirra eigna sem færðar voru þar á milli eftir banka­hrunið. Í sam­komu­lag­inu fólst meðal ann­ars að íslenska ríkið eign­að­ist nýja bank­ann utan lít­ils hlutar sem myndi renna til starfs­manna hans. Á móti gaf þrota­búið út upp­gjörs­skulda­bréf sem nýi bank­inn átti að greiða vegna þeirra eigna sem hann tók yfir.

Skulda­bréfin voru upp á mörg hund­ruð millj­arða króna í erlendum gjald­miðlum og loka­greiðsla átti að vera innt af hendi í októ­ber 2018, tíu árum eftir fall Lands­bank­ans. Því var ljóst að nýi Lands­bank­inn þurfti að verða sér úti um mikið magn af gjald­eyri til að standa við greiðsl­urnar.

[quote font="0" align="right"]Fljótt varð ljóst að svona miklar útgreiðslur á gjald­eyri, á jafn skömmum tíma, myndu ógna greiðslu­jöfn­uði þjóð­ar­bús­ins veru­lega. Því var þrýst veru­lega á að fyr­ir­komu­lag­inu yrði breytt.[/quote]

Fljótt varð ljóst að svona miklar útgreiðslur á gjald­eyri, á jafn skömmum tíma, myndu ógna greiðslu­jöfn­uði þjóð­ar­bús­ins veru­lega. Því var þrýst veru­lega á að fyr­ir­komu­lag­inu yrði breytt.

Má ekki ógna greiðslujöfnuði


Þann 8. maí síð­ast­lið­inn var til­kynnt um að sam­komu­lag hefði náðst milli Lands­bank­ans og þrota­bús gamla Lands­bank­ans um breyt­ingar á skil­málum skulda­bréf­anna, en eft­ir­stöðvar þeirra á þeim tíma voru 226 millj­arðar króna. Sam­komu­lagið snérist um að lengt yrði í greiðslum af skulda­bréf­unum til árs­ins 2026 gegn því að vaxta­kjör myndu hækka eftir árið 2018. Það var hins vegar bundið því að Seðla­banki Íslands myndi veita und­an­þágur frá lögum um gjald­eyr­is­mál, enda höft á fjár­magns­flutn­inga í gildi í land­inu.

Seðla­bank­inn svar­aði beiðni þrota­bús­ins um und­an­þágur þann 14. júli síð­ast­lið­inn. Í svar­bréf­inu kemur fram að jákvæðir fletir séu á sam­komu­lag­inu. Greiðslu­byrði inn­lendra aðila á gjald­eyr­is­skuldum við bú fall­inna banka lækki til skamms tíma og Lands­bank­inn fái betri erlenda fjár­mögnun sem muni auð­velda honum aðgang að erlendum lána­mörk­uðum.

[quote font="0" align="right"]Eigi að síður kom fram í svar­bréfi Seðla­bank­ans að end­an­legt svar ætti að geta legið fyrir „eigi síðar en í árs­lok“.[/quote]

Þrátt fyrir þetta gat Seðla­bank­inn ekki veitt svar við beiðn­inni innan þeirra tíma­marka sem þrotabú Lands­bank­ans fór fram á, sem var fyrir 8. ágúst 2014. Upp­gefnar ástæður voru tvær: í fyrsta lagi þyrfti slík ákvörðun að byggja á ítar­legri grein­ingu á áhrifum sam­komu­lags­ins á greiðslu­jöfnuð. Í öðru lagi var stefna stjórn­valda um losun fjár­magns­hafta í end­ur­mati á þessum tíma. Eigi að síður kom fram í svar­bréfi Seðla­bank­ans að end­an­legt svar ætti að geta legið fyrir „eigi síðar en í árs­lok“.

„Kjöraðstæður“ til losunar hafta


Síðan hefur margt gerst. Vinna stjórn­valda við losun fjár­magns­hafta hefur hrokkið í gír­inn og fram­kvæmda­stjórn um það verk­efni var mönnuð. Hún hefur unnið ötul­lega að mark­mið­inu síðan. Í byrjun þessa mán­aðar, nánar til­tekið 8. októ­ber, sagði Sigríður Bene­dikts­dóttir, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­stöð­ug­leika Seðla­banka Íslands, að þær aðstæður sem nú væru uppi í efna­hags­málum Íslands séu um margt „kjörað­stæður“ fyrir losun fjár­magns­hafta. Þessi orði lét hún falla á fundi í Seðla­bank­anum þar sem nýjasta útgáfa Fjár­mála­stöð­ug­leika bank­ans var kynnt. „Það er heldur ekki víst að þessar aðstæður vari að eilífu,“ sagði Sigríður enn fremur.

[caption id="attachment_8932" align="aligncenter" width="600"] Sigíður Bene­dikts­dóttir,fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­stöð­ug­leika Seðla­banka Íslands, segir að nú séu kjörað­stæður í efna­hags­málum Íslands fyrir losun hafta.[/caption]

Það var ekki að ástæðu­lausu að Sigríður viðr­aði þessa skoðun.Verð­bólga hefur farið lækk­andi und­an­farin miss­eri og mælist nú 1,8 pró­sent á árs­grund­velli, en verð­bólgu­mark­miðið lögum sam­kvæmt er 2,5 pró­sent. Atvinnu­leysi er lágt og hag­vaxt­ar­horfur með þeim bestu í heim­inum. Þessar stöðugt betri ytri aðstæður í hag­kerf­inu hjálp­uðu til við að skapa aðstæður til að losa um höft.

Kröfuhafar búast við framvindu


Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lýsti því síðan yfir á Alþingi á mánu­dag að gjald­eyr­is­höft yrðu lík­lega afnumin í nokkrum skrefum. Kjarna­at­riði í þeirri vinnu sem rík­is­stjórnin væri með í gangi á þessum vett­vangi væri að gera allt sem hægt væri að gera fyrir hafta­af­náms­kerfið svo ný aðlögun þyrfti ekki að eiga sér stað.

[caption id="attachment_7822" align="aligncenter" width="640"] Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði á Alþingi á mánu­dag að lík­lega yrðu höft afnemin í skrefum.[/caption]

Und­an­farna daga hefur verið hávær orðrómur um að unnið sé að fyrstu skrefum í átt að afnámi fjár­magns­hafta innan Seðla­bank­ans og á vett­vangi rík­is­stjórn­ar­innar. Seðla­bank­inn hefur ekki viljað tjá sig um hvað sé í vændum þegar eftir því hefur verið leitað. Full­trúar kröfu­hafa stóru bank­anna þriggja sem Kjarninn hefur rætt við búast hins vegar við því að það dragi til tíð­inda á allra næst­unni.

[quote font="0" align="right"]Ef það ger­ist ekki þá búast þeir við því að til­kynn­ingin komi á föstu­dag, áður en full­trúar erlendu kröfu­haf­anna sem flykkj­ast nú til lands­ins, fara aftur til síns heima.[/quote]

Þeir telja afar lík­legt að til­kynnt verði um fram­vindu varð­andi mögu­legar und­an­þágur þrota­bús Lands­bank­ans vegna leng­ingar á skulda­bréfum þess sem nýi Lands­bank­inn á að greiða á næstu árum, á kröfu­hafa­fundi sem fram fer í fyrra­málið. Ef það ger­ist ekki þá búast þeir við því að til­kynn­ingin komi á föstu­dag, áður en full­trúar erlendu kröfu­haf­anna sem flykkj­ast nú til lands­ins, fara aftur til síns heima.

Hvorki Kristján Krist­jáns­son, upp­lýs­inga­full­trúi nýja Lands­bank­ans, né Kristinn Bjarna­son,sem situr í slita­stjórn Lands­bank­ans, vildu tjá sig um málið þegar Kjarninn leit­aði eftir því í dag. Það vildi Stefán Jóhann Stef­áns­son, rit­stjóri Seðla­bank­ans, ekki heldur gera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár