Alistair Darling í hættu á að missa þingsæti sitt

Ný skoð­an­anna­könnun, sem greint var frá í dag, sýnir að stuðn­ingur við Verka­manna­flokk­inn í Skotlandi er í sögu­legri lægð og að Alistair Darling, fyrrum fjár­mála­ráð­herra Bret­lands sem leiddi hreyf­ingu sam­bands­sinna í nýlegum sjálf­stæð­is­kosn­ingum í Skotlandi, sé í mik­illi hættu á að missa sæti sitt á breska þing­inu. Frá þessu er greint í Edin­burgh Evening News.

Skoskir flokkar fá alls 59 sæti á breska þing­inu, Westminster, og í dag er sitja þing­menn skoska Verka­manna­flokks­ins í 41 þeirra. Könnunin sem birt var í morgun sýnir hins vegar að fylgi við Verka­manna­flokk­inn í Skotlandi mælist nú ein­ungis 27 pró­sent. Samkvæmt þeirri nið­ur­stöðu myndi flokk­ur­inn fá 16 þing­menn, og þar með tapa 25. Einn þeirra sem er í mik­illi hættu á að tapa þing­sæti sínu er Alistair Darling, sem er í dag þing­maður suð­vestur-Edin­borgar. Kosið verður á Bret­landi á næsta ári.

Kosningabaráttan skaðaði flokkinn


Darling var í for­svari fyrir „Better Together“ fylk­ing­una, sem barð­ist hart gegn sjalfstæði Skotlands í aðdrag­anda kosn­inga um slíkt sem fram fóru 18. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Það fór svo að Skotar sögðu Nei í kosn­ing­unum.

Margir frétta­skýrendur eru þeirrar skoð­unar að lof­orð leið­toga stærstu stjórn­mála­flokka Bret­lands um aukin völd til Skotlands ef almenn­ingur myndi hafna sjálf­stæði hafi skipt sköpum í þeirri nið­ur­stöðu. Síðan þá hafa verið uppi miklar gagn­rýn­is­raddir um hvort leið­tog­arnir þrír, David Cameron, Nick Clegg og Ed Milli­band, hafi í raun haft eitt­hvað umboð til að lofa slíkri aukn­ingu á völdum. Viðræður um valda­til­færsl­una eiga að hefj­ast á morgun og verður stýrt af Smith Lávarði af Kelvin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár