Engin formleg rannsókn farið fram á neyðarláni Kaupþings

Ekkert rann­sókn­aremb­ætti hefur rann­sakað 500 millj­óna evra neyð­ar­lán sem Seðla­banki Íslands veitti Kaup­þingi 6. októ­ber 2008. Rann­sókn­ar­nefnd Alþingis skoð­aði lán­veit­ing­una ítar­lega en hún var ekki á meðal þeirra mála sem nefndin til­kynnti til rík­is­sak­sókn­ara þegar hún lauk störfum.

Samkvæmt lögum um starf­semi nefnd­ar­innar átti hún að til­kynna rík­is­sak­sókn­ara um öll mál „ef grunur vaknar við rann­sókn nefnd­ar­innar um að refsi­verð hátt­semi hafi átt sér stað og tekur hann ákvörðun um hvort rann­saka beri málið í sam­ræmi við lög um með­ferð saka­mála“.

Embætti sér­staks sak­sókn­ara hefur enn­fremur ekki form­lega rann­sakað málið, en það getur tekið mál upp að eigin frum­kvæði. Fjár­laga­nefnd Alþingis fjall­aði lengi um málið og kall­aði eftir ýmsum upp­lýs­ingum um það, en á vegum hennar fór ekki fram form­leg rann­sókn.

Kostaði skattgreiðendur 35 milljarða króna


Kjarninn greindi frá því 2. októ­ber síð­ast­lið­inn að skatt­greið­endur hafi tapað 35 millj­örðum króna á lán­veit­ing­unni. Ástæðan er sú að veðið sem var sett fyrir henni, danski FIH bank­inn, reynd­ist fjarri því jafn verð­mætur og haldið var fram við veit­ingu láns­ins.

Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrrum for­stjóri Kaup­þings, sprengdi málið síðan upp í aðsendri grein í Frétta­blað­inu í síð­ustu viku þar sem hann sagði að Seðla­bank­inn hefði ekki gengið frá veð­setn­ingu FIH bank­ans til sín og að engin lána­skjöl hafi verið und­ir­rituð vegna láns­ins fyrr en mörgum dögum eftir að lánið var lagt inn á Kaupþing. Frétta­blaðið sló grein­inni upp á for­síðu og hún vakti mikla athygli.

[caption id="attachment_9796" align="aligncenter" width="624"] Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrrum for­stjóri Kaup­þings, skrif­aði grein í Frétta­blaðið í lok síð­ustu viku sem vakti mikla athygli.[/caption]

Í kjöl­farið var sú hug­mynd viðruð víða, meðal ann­ars af hag­fræð­ingnum Ólafi Arn­ars­syni, að lán­veitn­ing Seðla­bank­ans til Kaup­þings væru alveg eins umboðs­svik eins og þau brot sem stjórn­endur við­skipta­bank­anna hafa verið ákærðir fyrir af emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara og snúa að óvar­legum lán­veit­ingum þeirra.

Seðlabankinn segir Hreiðar Má vera að ljúga


Seðla­bank­inn svar­aði grein Hreiðars Más sam­dæg­urs og sagði að hann væri að ljúga.

Í yfir­lýs­ingu sagði að starfs­menn bank­ans hefðu strax gengið í „að full­vissa sig um að veðið fyrir lán­inu til Kaup­þings stæði til reiðu og lög­maður Kaup­þings gerði hlut­hafa­skrá í Danmörku strax við­vart um að Seðla­bnak­inn væri að taka veð í öllum hlutum FIH-bank­ans. Veð­gern­ing­ur­inn var full­klár­aður fyrir lok við­skipta­dags og rétt­ar­vernd veðs­ins hafði þá verð að fullu tryggð. Stjórn­endur Kaup­þings und­ir­rit­uðu gern­ing­inn fyrir lok við­skipta­dags 6. októ­ber. Þannig að full­yrð­ingar um að ekki hafi verið gengið frá veð­setn­ingu fyrr en mörgum dögum seinna eru rangar“.

[caption id="attachment_9379" align="aligncenter" width="624"] Davíð Oddsson skrif­aði harð­ort Reykja­vík­ur­bréf í sunnu­dags­út­gáfu Morg­un­blaðs­ins þar sem hann tætir í sig grein Hreiðars Más.[/caption]

Davíð Oddsson, fyrrum for­maður banka­ráðs Seðla­banka Íslands og núver­andi rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, átti síðan síð­asta orðið þegar hann lagði Reykja­vík­ur­bréfið í síð­ustu sunnu­dags­út­gáfu blaðs­ins undir það að hafna því sem Hreiðar Már hafði sagt í grein sinni og tæta í sig Frétta­blaðið í leið­inni. Þar sagði Davíð: „Í gær var birt yfir þvera for­síðu Frétta­blaðs­ins lyga­frétt með við­eig­andi myndum um stofnun og raunar ein­stak­ling sem öll fjöl­miðla­sam­steypan hefur haft veiði­leyfi á síðan ítök núver­andi eig­enda hófust þar, þótt um hríð væri logið til um eign­ar­haldið[...]Eitt sím­tal við við­kom­andi, stofn­un­ina eða ein­stak­ling­inn hefði tryggt að blaðið yrði ekki sér til skammar með breið­síðu sinni“.

Símtalið milli Davíðs og Geirs


Símtal Geirs H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og Davíðs Oddsonar, þáver­andi for­manns banka­stjórnar Seðla­bank­ans, sem fram fór sama dag og neyð­ar­lánið til Kaup­þings var veitt hefur aldrei verið birt opin­ber­lega. Því liggur ekki fyrir hvort það geti varpað ein­hverju ljósi á atburð­ar­rás sem á end­anum kost­aði íslenska skatt­greið­endur 35 millj­arða króna.

Ástæða þess að sím­talið hefur ekki verið birt opin­ber­lega er sú að Geir hefur ekki heim­ilað það með þeim rökum að hann hafi ekki vitað að það hefði verið tekið upp og að sam­töl við for­sæt­is­ráð­herra við svona aðstæður ættu aldrei að vera tekin upp.

Ýmsir hafa hins vegar séð útskrift af sím­tal­inu. Þeirra á meðal eru þrír ein­stak­lingar sem sátu í Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál árið 2012 og ein­hverjir starfs­menn Umboðs­manns Alþingis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár