Áskrifendafjöldi Netflix undir væntingum, gengið hríðfellur

Virði hluta­bréfa í Netflix hríð­féll í lok síð­ustu viku eftir að afþrey­ing­arris­inn til­kynnti að fjölgun áskrif­enda hans hafi verið undir vænt­ingum á síð­asta árs­fjórð­ungi. Netflix stefnir á að vera með 57 milljón not­endur út um allan heim í lok þessa árs, sam­kvæmt The Verge.

Unnið er að opna fyrir þjón­ustu Netflix hér­lendis.

Áskrifendur færri en væntingar stóðu til


Áskrif­endur Netflix voru 53,1 milljón í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins. Þeim fjölg­aði um þrjár millj­ónir á þriðja árs­fjórð­ungi 2014. Þegar Reed Hastings, for­stjóri Netflix, kynnti nið­ur­stöður þriðja árs­fjórð­ungs í síð­ustu viku þá við­ur­kenndi hann að fjölgun áskrif­enda hefði verið lægri en bæði áætl­anir félags­ins og vænt­ingar fjár­festa höfðu gert ráð fyrir. Hann væntir þess að áskrif­end­urnir verði orðnir 57 millj­ónir í lok þessa árs. Tekjur Netflix voru hins vegar í takt við vænt­ingar á árs­fjórð­ungnum.

Spár grein­ing­ar­að­ila höfðu gert ráð fyrir að áskrif­endur Netflix í Banda­ríkj­unum yrðu 37,6 millj­ónir í lok sept­em­ber, en raunin varð sú að þeir voru um 400 þús­und færri. Utan Banda­ríkj­anna var búist við að fjöldi áskrif­enda myndi verða tæp­lega 16,2 millj­ónir í lok þriðja árs­fjórð­ungs, en raunin var 15,8 millj­ónir.

Eftir að til­kynnt var um þessa nið­ur­stöðu hrundu hluta­bréf í Netflix, en þau eru skráð í Nasdaq-mark­að­inn í New York. Alls féll virði bréf­anna um 26 pró­sent dag­inn eftir að til­kynnt var um nið­ur­stöð­una. Sú staða var enn uppi þegar mörk­uðum var lokað á föstu­dag.

Vinna að uppsetningu á Íslandi


Netflix vinnur nú að því að opna fyrir þjón­ustu sína hér­lendis. Nútíminn greindi frá því í síð­ustu viku. Alls eru not­endur Netflix á Íslandi nú þegar yfir 20 þús­und tals­ins, þrátt fyrir að félagið bjóði ekki upp á þjón­ust­una á íslenskum mark­aði. Ýmsar leiðir eru til þess að nálg­ast hana með því að skrá not­and­ann í öðru landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár