Virði Eimskips fallið um þrjá milljarða frá Kastljósumfjöllun

Stjórn­endur Eimskipa voru upp­lýstir um það í sumar að starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins hefðu verið kærðir til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara. Eimskip, sem er skráð á markað, til­kynnti þær upp­lýs­ingar ekki sér­stak­lega til Kaup­hallar Íslands.

Ólafur William Hand, upp­lýs­inga­full­trúi Eimskips, segir að félagið hafi til­kynnt um það í sept­em­ber 2013 að það væri til rann­sóknar vegna meintra brota á 10. gg 11. grein sam­keppn­islaga og að það feli „í sér að þáttur ein­stak­linga hlýtur að koma til skoð­unar“. Félagið telur því ekki að það hafi þurft að til­kynna sér­stak­lega um rann­sókn sér­staks sak­sókn­ara á mál­inu.

Gengi bréfa í Eim­skipum hefur fallið um 6,5 pró­sent frá því að Kastljós greindi frá meintum sam­keppn­is­brotum félags­ins og Samskipa. Alls hefur mark­aðsvirði Eimskipa fallið um þrjá millj­arða króna á þremur dögum.

Verðmótandi upplýsingar


Í Morg­un­blað­inu í dag kemur fram að Sam­keppn­is­eft­ir­litið til­kynnti Eimskip og Samskip um það í sumar að að það hefði kært þau til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara. Þetta er haft eftir Páli Gunnari Pálssyni, for­stjóra Sam­keppn­is­eft­ir­lit­ins í blað­inu. Því er ljóst að aðilar innan fyr­ir­tækj­anna tveggja hafa búið yfir upp­lýs­ingum um að meint sam­keppn­islaga­brot þeirra hafi verið kærð til sér­staks sak­sókn­ara um margra mán­aða skeið.

[caption id="attachment_9533" align="aligncenter" width="960"] Sam­keppn­is­eft­ir­litið til­kynnti Eimskip um kæruna til sér­staks sak­sókn­ara í sumar.[/caption]

Eimskip er skráð á markað og upp­lýs­ingar um mögu­leg brot sem kærð hafi verið til rann­sókn­aremb­ættis geta verið mjög verð­mót­andi fyrir gengi bréfa í félag­inu. Við lokun mark­aða á þriðju­dag, nokkrum klukku­stundum áður en Kastljós sagði frá meintum brotum Eimskipa og Samskipa sem eru til rann­sóknar, var gengi bréfa 232 krónur á hlut. Í dag er gengið 217 krónur á hlut.

[quote font="0" align="right"]Gengið hefur því fallið um 6,5 pró­sent frá því að upp­lýs­ingar um rann­sókn­irnar voru opin­ber­aðar í fjöl­miðlum. Mark­aðsvirði Eimskips hefur lækkað sam­tals um þrjá millj­arða króna á síð­ustu þremur dögum[/quote]

Gengið hefur því fallið um 6,5 pró­sent frá því að upp­lýs­ingar um rann­sókn­irnar voru opin­ber­aðar í fjöl­miðlum. Mark­aðsvirði Eimskips hefur lækkað sam­tals um þrjá millj­arða króna á síð­ustu þremur dögum, eða um einn millj­arð króna á dag. Gengi bréfa í Eimskip hefur ein­ungis einu sinni áður verið jafn lágt og það er nú. Það var 12.des­em­ber 2012.

Ber að tilkynna um grun á leka á innherjaupplýsingum


Eimskip til­kynnti samt sem áður ekki um að starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins væru til rann­sóknar hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara í sumar þegar for­svars­menn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins sögðu stjórn­endum félags­ins frá því að svo væri.

Í til­kynn­ingu frá Eimskip, sem félagið sendi frá sér í gær, kemur fram að því beri laga­leg skylda til að til­kynna þar til bærum yfir­völdum ef grunur leiki á að inn­herj­a­upp­lýs­ingum hafi verið miðlað á ólög­mætan hátt. Eimskip hafi því sent Fjár­mála­eft­ir­lit­inu og Kauphöll Íslands ábend­ingu um mögu­leg lög­brot nú, í kjöl­far umfjöll­unar Kast­ljóss. Engin við­brögð hafi borist þaðan, að sögn upp­lýs­inga­full­trúa Eimskipa.

Lekar rannsakaðir


Kauphöll Íslands hefur sett hluta­bréf Eimskips á athug­un­ar­lista vegna máls­ins. Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til hennar um hvort Kaup­höllin væri að rann­saka hvort þau gögn sem Kastljós greindi frá á þriðju­dag væru inn­herj­a­upp­lýs­ingar og hvort grunur sé um að ein­hverjir aðilar á mark­aði, sem taki þátt í hluta­bréfa­við­skiptum, hafi haft upp­lýs­ing­arnar undir höndum.

Í svari Baldurs Thorlacius, for­stöðu­manns eft­ir­lits­sviðs Kaup­hall­ar­innar, segir að hún geti ekki að jafn­aði tjáð sig um ein­stök eft­ir­lits­mál sem eru í skoðun. Almennt verk­lag sé þó með þeim hætti að í hvert sinn sem áður óbirtar upp­lýs­ingar koma fram um útgef­anda í fjöl­miðlum er m.a. lagt mat á það hvort þær gætu talist verð­mót­andi fyrir þá fjár­mála­gern­inga útgef­anda sem eru í við­skiptum í Kaup­höll­inni.“

[quote font="0" align="right"]Ef grunur sé um að upp­lýs­ing­arnar sem um ræðir gætu talist inn­herj­a­upp­lýs­ingar þá ber Kaup­höll­inni að vísa slíkum málum til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins til frek­ari skoð­unar. [/quote]

Ef grunur sé um að upp­lýs­ing­arnar sem um ræðir gætu talist inn­herj­a­upp­lýs­ingar þá ber Kaup­höll­inni að vísa slíkum málum til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins til frek­ari skoð­unar. Í svari Baldurs segir: „Ef grunur vaknar um að verð­mót­andi upp­lýs­ingum eða inn­herj­a­upp­lýs­ingum hafi verið lekið áður en þær eru birtar opin­ber­lega er aflað upp­lýs­inga um aðila að við­skiptum á því tíma­bili sem lek­inn gæti náð til og við­skiptin greind með hlið­sjón af máls­að­stæðum. Fer það eftir aðstæðum og eðli mála hvort sú grein­ing fari fyrst fram innan Kaup­hall­ar­innar eða hvort Fjár­mála­eft­ir­litið fari með rann­sókn máls­ins frá upp­hafi.“

FME vill ekkert tjá sig um málið


Kjarninn beindi sömu fyr­ir­spurn og Kaup­höllin fékk til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Í svar Ólafar Aðal­steins­dóttur, aðstoð­ar­manns for­stjóra eft­ir­lits­ins, segir að það taki allar ábend­ingar til skoð­unar og auk þess sem eft­ir­litið taki mál til skoð­unar að eigin frum­kvæði ef til­efni er til. „Fjár­mála­eft­ir­litið getur hins vegar ekki veitt upp­lýs­ingar um ein­stök mál, þar með talið upp­lýs­ingar um hvort mál eru til rann­sóknar eða ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár