Ekki búið að semja við bankana vegna leiðréttingarinnar

Ekki liggur fyrir sam­komu­lag við íslensku við­skipta­bank­ana um aðferð­ar­fræð­ina sem beita á við útreikn­inga á virði þeirra hús­næð­is­lána sem á að höf­uð­stólslækka sam­kvæmt leið­rétt­inga­á­formum rík­is­stjórn­ar­innar. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans kom þetta fram á fundi í efna­hags- og við­skipta­nefnd í morgun. Kjarninn hefur auk þess fengið þetta stað­fest innan banka­kerf­is­ins.

Samn­ings­við­ræður þeirra sem sjá um leið­rétt­ing­ar­á­formin við Lands­bank­ann, Íslands­banka og Arion banka standa þó enn yfir og unnið er að útreikn­ingum með það fyrir augum að lausn náist.

Átti að liggja fyrir um miðjan október


Tryggvi Þór Her­berts­son, verk­efna­stjóri leið­rétt­ing­ar­innar, mætti á fund efna­hags- og við­skipta­nefndar og svar­aði spurn­ingum nefnd­ar­manna um fram­kvæmd hennar. Í máli hans kom meðal ann­ars fram að enn liggi ekki fyrir sam­komu­lag við íslensku við­skipta­bank­anna um aðferð­ar­fræð­ina sem beita á við útreikn­inga á virði þeirra hús­næð­is­lána sem liggja hjá bönk­unum og á að nið­ur­færa. Slíkt sam­komu­lag er for­senda þess að hægt verði að fram­kvæma nið­ur­færsl­una.

Tryggvi Þór sagði í sam­tali við Kjarnann í byrjun októ­ber að 95 pró­sent þeirra sem sóttu um höf­uð­stólslækkun verð­tryggðra lána muni fá að vita hvort og þá hversu mikið þeir fá um miðjan októ­ber. Í dag er 15. októ­ber.

Allt að 80 milljarða kostnaður


Leið­rétt­ing verð­tryggðra hús­næð­is­lána snýst um að rík­is­sjóður greiðir allt að 80 millj­arða króna í nið­ur­færslur á verð­tryggðum hús­næð­is­lánum á fjög­urra ára tíma­bili. Til þess að eiga mögu­leika á leið­rétt­ingu þurfti fólk að sækja um og rann umsókn­ar­frestur út 1. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Alls bár­ust um 69 þús­und umsóknir áður en frest­ur­inn rann út. Á bak­við þær standa um 105 þús­und manns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Niðurfelling

FréttirNiðurfelling

Tvær vikur í nið­ur­stöðu skulda­leið­rétt­ingar

Yfir 95 pró­sent þeirra sem sóttu um höf­uð­stólslækkun verð­tryggðra íbúð­ar­lána mun fá að vita hvort og þá hversu mikið þau munu fá um miðjan októ­ber, að sögn Tryggva Þór Her­berts­sonar, verk­efna­stjóra leið­rétt­ing­ar­innar. Þau mál sem liggja ekki fyrir eru m.a. vegna þess að heim­il­is­saga er snú­inn, fólk hefur skilið og/eða gift sig aftur, end­ur­fjár­magnað lánin eða fært þau á milli...
PistillNiðurfelling

Þórður Snær Júlíusson

Pöntum pen­ing eins og pizzu

Útfærslur skulda­nið­ur­fell­inga­til­lagna voru kynntar á mið­viku­dag. Þær stað­festa á allan hátt hversu veikar, illa und­ir­byggðar, lítt úthugs­aðar og bein­leiðis skað­legar þessar pen­inga­gjafir eru. Allir sem hafa metið áhrif þeirra, utan þess aðila sem rík­is­stjórnin réð sér­stak­lega í verkið, eru sam­mála um að aðgerð­irnar muni valda verð­bólgu. Þær verða piss í skó því verð­bólga mun éta upp ávinn­ing­inn af báðum öngum...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár