Tvær vikur í niðurstöðu skuldaleiðréttingar

Yfir 95 pró­sent þeirra sem sóttu um höf­uð­stólslækkun verð­tryggðra íbúð­ar­lána mun fá að vita hvort og þá hversu mikið þau munu fá um miðjan októ­ber, að sögn Tryggva Þór Her­berts­sonar, verk­efna­stjóra leið­rétt­ing­ar­innar. Þau mál sem liggja ekki fyrir eru m.a. vegna þess að heim­il­is­saga er snú­inn, fólk hefur skilið og/eða gift sig aftur, end­ur­fjár­magnað lánin eða fært þau á milli lána­stofn­anna. Alls bár­ust um 69 þús­und umsóknir áður en frestur til að sækj­ast eftir skuld­nið­ur­fell­ingu rann út þann 1. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Á bak­við þær standa um 105 þús­und manns. Alls stendur til að leið­rétt­ingin kosti 80 millj­arða króna sem dreif­ist á fjög­urra ára tíma­bil.

Afar fá heimili fá hámarksniðurfærslu


Í minn­is­blaði sem fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið gerði um áformin, og er dag­sett 6. maí 2014, kom fram að „flest heim­ili sem skráð voru fyrir verð­tryggðum lánum vegna kaupa á fast­eignum til eigin nota á árunum 2008 og 2009 hafa notið ein­hverra úrræða á borð við sér­stakar vaxta­nið­ur­greiðslur sem greiddar voru árin 2011 og 2012. Eins og fram kemur í frum­varpi til laga um leið­rétt­ingu verð­tryggðra fast­eigna­veð­lána reikn­ast öll opin­ber úrræði sem heim­ili hafa þegar notið til frá­dráttar leið­rétt­ingar. Af þessu leiðir að afar fá heim­ili eiga rétt á hámarks­nið­ur­færslu sem er 4.m.kr.“. Í sama minn­is­blaði kemur fram að 70,1 pró­sent leið­rétt­ing­ar­innar fer til heim­ila á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, 7,2 pró­sent til heim­ila á Suð­ur­nesjum, 7,2 pró­sent til heim­ila á Norð­ur­landi eystra og 6,4 pró­sent til heim­ila á Suð­ur­landi. Þá fá heim­ili á Vest­ur­landi fjögur pró­sent hlut­deild í heild­ar­leið­rétt­ing­unni. Afgang­ur­inn, um fimm pró­sent, skipt­ist á milli heim­ila á Vest­fjörðum, Norð­ur­landi vestra og Aust­ur­landi. Samkvæmt minn­is­blað­inu mun 35 pró­sent upp­hæð­ar­innar sem deilt verður út fara til þeirra sem eru með meira en 100 pró­sent skuld­setn­ingu miðað við fast­eigna­mat. Fast­eigna­mat er í flestum til­fellum tölu­vert lægra mark­aðsvirði fast­eigna. Í eft­ir­sótt­ustu hverfum Reykja­víkur er mark­aðsvirði lít­illa og með­al­stórra íbúða allt að 25-30 pró­sent hærra en fast­eigna­mat þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Niðurfelling

FréttirNiðurfelling

Ekki búið að semja við bank­ana vegna leið­rétt­ing­ar­innar

Ekki liggur fyrir sam­komu­lag við íslensku við­skipta­bank­ana um aðferð­ar­fræð­ina sem beita á við útreikn­inga á virði þeirra hús­næð­is­lána sem á að höf­uð­stólslækka sam­kvæmt leið­rétt­inga­á­formum rík­is­stjórn­ar­innar. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans kom þetta fram á fundi í efna­hags- og við­skipta­nefnd í morgun. Kjarninn hefur auk þess fengið þetta stað­fest innan banka­kerf­is­ins. Samn­ings­við­ræður þeirra sem sjá um leið­rétt­ing­ar­á­formin við Lands­bank­ann, Íslands­banka og Arion banka...
PistillNiðurfelling

Þórður Snær Júlíusson

Pöntum pen­ing eins og pizzu

Útfærslur skulda­nið­ur­fell­inga­til­lagna voru kynntar á mið­viku­dag. Þær stað­festa á allan hátt hversu veikar, illa und­ir­byggðar, lítt úthugs­aðar og bein­leiðis skað­legar þessar pen­inga­gjafir eru. Allir sem hafa metið áhrif þeirra, utan þess aðila sem rík­is­stjórnin réð sér­stak­lega í verkið, eru sam­mála um að aðgerð­irnar muni valda verð­bólgu. Þær verða piss í skó því verð­bólga mun éta upp ávinn­ing­inn af báðum öngum...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár