Apple og Facebook borga fyrir frystingu eggja starfsmanna

Apple og Facebook, tvö af stærstu tækni­fyr­ir­tækjum ver­aldar, hafa brugðið á það ráð að bjóða kven­kyns starfs­mönnum sínum allt að 20 þús­und dali, um 2,4 millj­ónir króna, í styrk til að gera þeim kleift að frysta úr sér egg. Til­gang­ur­inn er sá að gera konum sem vilja ein­beita sér að frama innan fyr­ir­tækj­anna kleift að gera það án þess að fórna mögu­leik­anum á því að eign­ast börn síðar á lífs­leið­inni.

Facebook er þegar búið að ýta stefn­unni úr vör og Apple mun gera slíkt hið sama í jan­úar næst­kom­andi. Business Insider greinir frá.

Alls starfa um átt­unda þús­und manns hjá Facebook. Starfs­menn Apple eru tölu­vert fleiri, eða um 98 þús­und tals­ins.

Vilja laða fleiri konur í stjórnunarstöður


Umdeilt hefur verið á meðal fræði­manna á und­an­förnum árum hvort fryst­ing eggja sé góð hug­mynd og hvort hún skili þeim konum sem ákveða að fara þá leið til­ætl­uðum árangri þegar þær vilja loks frjóvg­ast. Það hefur hins vegar færst mjög í aukanna, sér­stak­lega í Banda­ríkj­unum, að konur velji að fresta barn­eignum til að ná sér í menntun, frama eða öðrum mark­miðum.

Þar sem frjó­semi kvenna minnkar með aldr­inum er talið lík­leg­ast til árang­urs að frysta egg kvenna á meðan að þær eru á besta barns­burð­ar­aldr­inum, undir þrí­tugu. Þegar þær vilja síðan ganga með barn er eggj­unum komið fyrir leg­inu sem eld­ist ekki með sama hætti og egg eða eggja­leið­arar. Með þess­ari aðferð geta konur borið börn vel fram á sex­tugs­ald­ur­inn.

Í umfjöllun Businessweek um málið kemur fram að rann­sókn sem NYU háskól­inn fram­kvæmdi í fyrra hafi leitt í ljós að þeim 183 konum sem tóku þátt og höfðu fryst egg sögð­ust 19 pró­sent að þeir hefðu lík­leg­ast átt börn fyrr en atvinnu­rek­andi þeirra hefði sýnt meiri sveigj­an­leika. Kís­ildal­ur­inn, heima­völlur helstu tækni­fyr­ir­tækja vest­ur­heims, er þekktur fyrir eft­ir­tek­ar­verðan skort á konum í áhrifa­stöðum. Ein af rök­semdum Facebook og Apple fyrir þessu óvenju­lega skrefi er að fyr­ir­tækin von­ast til að laða að fleiri konur í stjórn­un­ar­stöður. Fyr­ir­tækin eru, enn sem komið er, einu stóru atvinnu­rek­end­urnir í Banda­ríkj­unum sem brugðið hafa á það ráð að bjóða starfs­mönnum sínum upp á kostn­að­ar­þátt­töku í eggja­fryst­ingu vegna ástæðna sem eru ekki tengdar heilsu­fari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár