Búskapur hjá dönskum bændum á brauðfótum

Það drýpur ekki smjör af hverju strái allra danskra bænda um þessar mundir. Fimmtán pró­sent þeirra eru í raun gjald­þrota og stór hópur til við­bótar stendur mjög tæpt.

Fyrir nokkrum dögum kom út ný skýrsla Rann­sókna­set­urs danska land­bún­að­ar­ins og þar er dregin upp dökk mynd af efna­hags­á­standi danskra bænda. 1700 bændur (15.4 pró­sent) eru í raun gjald­þrota og eru algjör­lega upp á náð bank­ans komnir og 700 til við­bótar eru mjög illa settir og sá hópur sem þannig er ástatt um fer ört stækk­andi. Í árs­lok 2012 námu skuldir danskra bænda hjá við­skipta­bönk­unum 352 millj­örðum danskra króna (u.þ.b.7220 millj­örðum ísl) og þótt ekki liggi fyrir end­an­legar tölur vegna síð­ast­lið­ins árs er ljóst að skuld­irnar juk­ust og á þessu ári hefur enn syrt í álinn. 352 millj­arðar jafn­gilda nær fjór­földum árs­tekjum land­bún­að­ar­ins, skuld­irnar eru því langtum meiri en búrekst­ur­inn getur með nokkru móti staðið undir. Svína-og naut­gripa­bændur, korn­fram­leið­endur og minka­bændur eru verst settir.

[quote font="0" align="right"]"Klaus Kaiser höf­undur áður­nefndrar skýrslu um danskan land­búnað segir að “ástandið sé svo slæmt að veru­leg hætta sé á alvar­legri kreppu í dönskum land­bún­aði”. Stór hópur bænda megi ekki við neinum skakka­föllum, svig­rúmið ekk­ert, eins og skýrslu­höf­undur orðar það".[/quote]

Vandamálið ekki nýtt af nálinni


Fjár­hags­vand­inn í dönskum land­bún­aði er ekki nýtil­kom­inn. Á und­an­förum ára­tugum hafa bændur marg­sinnis staðið frammi fyrir miklum erf­ið­leikum í búrekstr­inum, núna er vand­inn þó meiri en nokkru sinni fyrr. Skulda­bagg­inn sem bændur burð­ast nú með má að hluta rekja til fjár­málakrepp­unnar 2008. Í kjöl­far hennar lentu margir margir bændur í erf­ið­leikum, fengu lán til að halda rekstr­inum gang­andi og skuld­irnar tóku að hrann­ast upp. Síðan hefur jafnt og þétt sigið á ógæfu­hlið­ina, fyrir einu ári var tæp­lega fimmta hvert bú rekið með halla, í dag stendur þriðja hvert bú ekki undir rekstr­inum. Klaus Kaiser höf­undur áður­nefndrar skýrslu um danskan land­búnað segir að “ástandið sé svo slæmt að veru­leg hætta sé á alvar­legri kreppu í dönskum land­bún­aði”. Stór hópur bænda megi ekki við neinum skakka­föllum, svig­rúmið ekk­ert, eins og skýrslu­höf­undur orðar það.

Kreppan er ekki eina orsökin


Þótt fjár­málakreppan 2008 hafi komið illa við bændur er hún langt í frá eina ástæða þess hvernig komið er. Sú ákvörðun Rússa að stöðva inn­flutn­ing land­bún­að­ar­vara frá löndum Evr­ópu­sam­bands­ins hefur komið mjög illa við danskan land­búnað. Kín­verjar, sem nú eiga miklar birgðir matar, hafa dregið úr inn­kaupum frá Danmörku, aukin mat­væla­fram­leiðsla víða um heim veldur verð­lækkun og minni eft­ir­spurn.

Snemma á þessu ári hættu margar sænskar versl­anir (þar á meðal ICA fyr­ir­tækið sem rekur 1350 versl­anir) að kaupa danskt svína­kjöt. Ástæður þess að Svíar hættu að miklu leyti inn­flutn­ingi á dönsku svína­kjöti má rekja til frétta um að í Danmörku séu flestir aligrísir hala­klipptir (til að koma í veg fyrir sýk­ingu) og einnig ótta við hina svo­nefndu MRSA bakt­eríu (nefnd MOSA á íslensku). Baktería þessi er nokkuð algeng í svínum í Danmörku en er í flestum til­vikum skað­laus full­hraustu fólki. Danir sjálfir virð­ast kæra sig koll­ótta um þetta bakt­er­íu­tal, stærstur hluti þeirra horfir fyrst og fremst á verð­mið­ann þegar keypt er inn.

Á næsta ári fellur úr gildi mjólk­ur­fram­leiðslu­kvóti Evr­ópu­sam­bands­ins og þá má fast­lega búast við að verð til bænda lækki, en Danir hafa haft mjög stóran kvóta og notið góðs af. Margir bændur hafa líka lagt í mik­inn kostnað vegna end­ur­nýj­unar véla-og húsa­kosts, að hluta til vegna hertra krafna stjórn­valda. Fleira mætti og nefna sem reynst hefur bændum mót­drægt.

Hvað er til ráða?


Þeirri spurn­ingu er ekki svarað í land­bún­að­ar­skýrsl­unni. Danskir fjöl­miðlar hafa hins­vegar rætt við ýmsa sér­fræð­inga og þeir eru á einu máli um að ein­hvers konar skulda­nið­ur­fell­ing eða afskriftir séu eina lausnin. Pen­inga­stofn­an­irnar hafi lánað féð og þeirra sé því ábyrgðin. Þrátt fyrir að slíkar aðgerðir kosti við­kom­andi banka stórfé sé það þó skárri kostur en að keyra bændur í þrot. Bæði fyrir banka og bændur.

Ekki allir bændur á kúpunni


Í þess­ari nýút­komnu skýrsla Rann­sókn­ar­stofn­unar danska land­bún­að­ar­ins er líka ýmis­legt jákvætt að finna. Stór hluti bænda virð­ist hafa mjög þokka­lega afkomu og horfa með bjart­sýni fram á veg­inn. Í þeim hópi eru einkum þeir sem rækta græn­meti og ávexti ásamt ali­fugla­bændum. Skýr­ing­arnar á betri afkomu í þessum greinum má, að sögn skýrslu­höf­undar, rekja til ein­fald­ari rekstrar og minni til­kostn­aðar. Líka er bent á að Danmörk sé gott land­bún­að­ar­land, danskar land­bún­að­ar­af­urðir séu und­an­tekn­inga­lítið í háum gæða­flokki og hafi á sér gott orð (þrátt fyrir MSRA bakt­er­í­una í svínum). Ýmsar þjóðir sæk­ist mjög eftir dönskum mat­vörum og þar eru Kín­verjar sér­stak­lega nefndir.

Í Kína eykst kjöt­neysla mjög hratt og danskar kjöt­vinnslur eiga nú þegar fullt í fangi með að anna eft­ir­spurn­inni eftir svína­kjöti. Í einu útbreiddasta dag­blaði Kína var fyrir skömmu löng umfjöllun um danskan land­búnað, þar var dönsku svína­kjöti hrósað í hástert. Blaða­mað­ur­inn sagði að danska beikonið bráðn­aði hrein­lega á tung­unni, “tekur öllu fram!”

Sömu sögu er að segja um mjólk­ina, Kín­verjar vilja kaupa alla þá dönsku mjólk sem þeir geta komið höndum yfir og munar um minna. “Danska mjólkin er sú lang­besta” var sam­dóma álit kín­verskra sér­fræð­inga sem próf­uðu og rann­sök­uðu mjólk frá fjöl­mörgum þjóðum á mat­væla­ráð­stefnu sem haldin var í Beijing fyrir nokkru. Hvort þessi aukni áhugi risa­þjóð­ar­innar í austri skili sér á end­anum í vasa danskra bænda er hins vegar ósögð saga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár