Ríkasta eitt prósent mannkyns á helming alls auðs í heiminum

Ríkasta eitt pró­sent jarð­ar­búa á um 48 pró­sent alls auðs í heim­inum. Þessi litli hópur er auk þess að verða rík­ari með hverju árinu. Fátækari helm­ingur jarð­ar­búa á hins vegar minna en eitt pró­sent alls auðs. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu sviss­neska bank­ans Credit Suisse um auð heims­ins.

Samkvæmt skýrsl­unni er sam­an­lagður auður heims­byggð­ar­innar 263 trilljónir dala, um 28,6 millj­ónir millj­arða íslenskra króna. Hann hefur tvö­fald­ast síðan árið 2000. Til að telj­ast með rík­ari helm­ing heims­ins þarf hins vegar ekki að eiga mikið, alls um 3.650 dali, um 442 þús­und krónur, og er þá með­talið virði fast­eigna. Til að kom­ast í efstu tíu pró­sentin þarf ein­stak­lingur hins vegar að eiga meira en 77 pró­sent og yfir 798 þús­und dali, um 97 millj­ónir króna, til að til­heyra auð­ug­asta efsta pró­sent­inu. Flestir sem til­heyra rík­ustu tíu pró­sent­unum koma frá Banda­ríkj­unum. Japanir eru í öðru sæti og Kín­verjar í því þriðja, á undan löndum eins og Frakk­landi, Þýska­landi, Ítalíu og Bret­landi.

Auður heimsins orðin meiri en fyrir bankakreppu


Alls óx auður heims­byggð­ar­innar um 20,1 trilljón dala á milli ára, um 2,4 millj­ónir millj­arða króna, og er það mesti vöxtur sem mælst hefur síðan árið 2007. Auðurinn er nú um 20 pró­sent meiri en hann var þegar best lét fyrir alþjóð­legu banka­krepp­una.

Ójöfn­uður eykst hratt í flestur van­þró­aðri ríkjum en innan G-7 ríkj­anna, sam­starfs­vett­vangs þró­uð­ustu ríkja ver­aldar, jókst ójöfn­uður ein­ungis í Bret­landi á tíma­bil­inu 2000 til 2014, sam­kvæmt skýrslu Credit Suisse.

Það eru hins vegar ekki allir sam­mála þessum stað­hæf­ingum. The Guardian sagði til dæmis frá því nýverið að Oxfam-sam­tökin, sem berj­ast gegn fátækt í heim­inum, hafi birt nið­ur­stöður rann­sókna sinna í byrjun þessa árs sem sýndu að 85 auð­ug­ustu ein­tak­lingar heims eigi sam­tals um eina trilljón dala. Það er jafn mikið og fátæk­ast 3,5 millj­arður jarð­ar­búa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár