Hvernig var ákveðið að veita Kaupþingi neyðarlán?

Íslenskir skatt­greið­endur hafa tapað um 35 millj­örðum króna vegna neyð­ar­láns sem Seðla­banki Íslands veitti Kaup­þingi sama dag og neyð­ar­lög voru sett á Íslandi, þann 6. októ­ber 2008. Alls var lánið upp á 500 millj­ónir evra, um 76 millj­arða króna á núver­andi gengi, og ljóst að tæpur helm­ingur þess er nú tap­aður. Ástæðan er sú að danskur banki sem var tek­inn sem veð fyrir lán­inu, FIH, reynd­ist mun verra veð en upp­haf­lega var haldið fram að bæði Seðla­banka Íslands og þáver­andi stjórn­endum Kaup­þings.

Eftir að Kjarninn greindi frá þessu tapi hefur lán­veit­ingin, og hvernig var staðið að henni, verið nokkuð í sviðs­ljós­inu. Sér­stak­lega sím­tal sem átti sér stað milli Geir H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og Davíðs Odds­sonar, þáver­andi for­manns banka­stjórnar Seðla­bank­ans, þennan saman dag þar sem þeir ræða lán­veit­ing­una. Seðla­bank­inn á upp­töku af sam­tal­inu. Hún hefur hins vegar ekki verið gerð opin­ber vegna þess að Geir hefur ekki viljað heim­ila það. Ástæðan er sú að hann vissi ekki að verið væri að taka hann upp og hann er þeirrar skoð­unar að ekki eigi að taka upp sím­töl sem for­sæt­is­ráð­herra á við aðra.

Rétt ákvörðun segir Geir


Geir var í við­tali við sjón­varps­þátt­inn Eyjuna á Stöð 2 í gær. Þar sagð­ist hann enn vera þeirrar skoð­unar að veit­ing láns­ins til Kaup­þings hefði verið rétt ákvörðun. „Sú ákvörðun var að sjálf­sögðu tekin í ljósi þeirra aðstæðna sem þá voru uppi. Það verður að meta hana í ljósi þeirra aðstæðna, ekki þess sem að menn vita núna. Það var auð­vitað til­raun til að bjarga Kaup­þingi og ef það hefði tek­ist, að Kaupþing hefði lifað þetta af, stærsti bank­inn, þá hefði þessi mynd orðið allt önnur og miklu við­ráð­an­legri,“ sagði Geir við Björn Inga Hrafns­son, þátt­ar­stjórn­anda Eyjunnar.

[quote font="0" align="right"]„Það verður að meta hana í ljósi þeirra aðstæðna, ekki þess sem að menn vita núna. Það var auð­vitað til­raun til að bjarga Kaup­þingi“[/quote]

Ekkert rætt á morgunfundi


Ljóst er að ákvörðun um veit­ingu láns­ins var tekin sam­dæg­urs, þann 6. októ­ber 2008, og að loka­á­kvörðun um það hafi legið hjá þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra Geir H. Haarde. Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis eru nokkrir vitn­is­burðir sem varpa frekara ljósi á hvernig ákvörðun um lán­veit­ing­una var tekin.

Þar kemur til að mynda fram að klukkan 8:30 að morgni þessa örlaga­ríka daga hafi verið hald­inn rík­is­stjórn­ar­fundur. Samkvæmt fund­ar­gerð lagði Björgvin G. Sig­urðs­son, þáver­andi við­skipta­ráð­herra, fram og kynnti frum­varp sem síðar varð þekkt undir heit­inu neyð­ar­lögin.

Í því frum­varpi sem var kynnt á þeim fundi var ekki ákvæði sem heim­il­aði Seðla­banka Íslands að eiga og reka fjár­mála­fyr­ir­tæki. Slíkt ákvæði var talið nauð­syn­legt til að Seðla­bank­inn gæti tekið FIH sem veð fyrir lán­inu.

Viðskiptaráðuneytið beðið um að bæta við ákvæði


Klukkan 13:34 sama dag bár­ust skila­boð frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, þar sem Geir H. Haarde sat, til Jónínu S. Lár­us­dóttur, þáver­andi ráðu­neyt­is­stjóra við­skipta­ráðu­neyt­is­ins, um að setja ætti inn ákvæði í neyð­ar­laga­frum­varpið „um að Seðla­bank­anum væri heim­ilt að eiga og reka fjár­mála­fyr­ir­tæki. Tölvu­bréf frá rit­ara for­sæt­is­ráð­herra stað­festir þetta“.

Jóninu fannst þetta ákvæði þó ekki sam­rým­ast efni neyð­ar­laga­frum­varps­ins. Í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar segir að hún hafi látið við­skipta­ráð­herra vita af því og hafi síðan haft sam­band „við ráðu­neyt­is­stjór­ann í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu sem benti mér á að tala við Seðla­bank­ann. Þá fékk ég þær skýr­ingar að þetta væri út af því að Seðla­bank­inn væri búinn að taka alls­herj­ar­veð, þarna út af FIH[...]Þetta fer sem sagt inn í þing­skjalið og það gerð­ist nú þarna um dag­inn, sem hefur aldrei gerst hvorki fyrr né síðar, að við fengum opið þing­skjal frá þing­inu. Það er alltaf læst og [...] þá var sett ákvæði til bráða­birgða að honum væri heim­ilt að eiga þetta [...] og þetta var mjög mik­ill titr­ingur út af þessu og for­maður banka­stjórnar Seðla­bank­ans [Davíð Oddsson] sem sagt [...] hann var mjög ákveð­inn og ég var að tala við Sigríði Loga [yfir­lög­fræð­ing Seðla­bank­ans] og hann fékk sím­ann og tal­aði um að þetta þyrfti að vera svona“.

[caption id="attachment_9377" align="aligncenter" width="1024"] Ráðu­neyti Björg­vins. G. Sig­urðs­sonar, þáver­andi við­skipta­ráð­herra, tók þátt í að skrifa neyð­ar­lögin. Ráðu­neyt­is­stjóri þess bætti inn ákveð­inu um heim­ild Seðla­bank­ans til að eiga FIH. Það ákvæði var síðar fellt út úr lög­unum.[/caption]

„Þetta má ekki vera inni, þetta má ekki vera inni“


Í kjöl­farið fór heim­ildin inn í frum­varpið og Jónína hélt að málið væri frá­gengið. Svo var þó ekki. Í skýrsl­unni er haft eftir Jónínu að þegar hún hafi komið niður á Alþingi síðar um dag­inn „þá kemur ráðu­neyt­is­stjór­inn í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu [Bolli Þór Bollason] til mín og segir: Er þetta inni frá FIH? Er þetta inni frá FIH? Og ég segi: Þetta er inni með FIH, það kom meld­ing frá ykkur. Það kom frá þeim upp­haf­lega að þetta ætti að fara inn í frum­varpið. Þetta má ekki vera inni, þetta má ekki vera inni“. Á þeim tíma var hins vegar búið að prenta út frum­varpið og dreifa því til þing­manna. Þar er ákvæði sem heim­ilar Seðla­bank­anum sér­stak­lega að eign­ast FIH bank­ann í Danmörku og að halda á honum í tvö ár.

Lánið ákveðið á hádegi


Sigríður Loga­dóttir, yfir­lög­fræð­ingur Seðla­bank­ans, sagði í skýrslu­töku hjá rann­sókn­ar­nefnd­inni að mánu­dags­morg­un­inn 6. októ­ber hafi „það komið upp að Kaupþing er í vand­ræðum og það endar með því að Seðla­bank­inn ákveður að lána Kaup­þingi gegn veði í öllu FIH-bank­anum og það er sem sagt ákveðið á hádegi. „Jónína Lár er að hringja í mig og spyrja nákvæm­lega út í heitið á FIH-bank­anum og ég hugsa með mér: Bíddu, af hverju er hún að spyrja að þessu? En ég lét hana samt hafa það, af hverju ætti ég ekki að gera það, ég meina þetta er ráðu­neyt­is­stjóri í ráðu­neyt­inu, nema það að eitt­hvað var svona í hausnum á mér þannig að ég geng á eftir því við hana að fá frum­varpið, þau voru mjög svona „reluctant“ að senda okkur frum­varpið. Svo kemur frum­varpið og þá stendur bara skýrum stöfum í frum­varp­inu að Seðla­banka Íslands sé heim­ilt að yfir­taka FIH-bank­ann. [...] það er ekki almenn heim­ild, það er bara nafn­greindur þessi sér­staki banki og við bara hugs­uðum: Hvað er að ráðu­neyt­inu? Eru þau ger­sam­lega gengin af göfl­unum? Þú getur ekki sett svona í frum­varp, ég meina hvað held­urðu að mark­að­ur­inn mundi...? Þú ert búinn að eyði­leggja bank­ann um leið og þú setur svona í frum­varp.“

[caption id="attachment_9379" align="aligncenter" width="624"] Davíð Oddsson, þáver­andi for­maður banka­stjórnar Seðla­banka Íslands, var eðli­lega í aðal­hut­verki í lán­veit­ing­unni til Kaup­þings.[/caption]

Davíð trompaðist


Sigríður segir við skýrslu­töku að ráðu­neyt­is­stjóri við­skipta­ráðu­neyt­is­ins hafi síðan sent sér frum­varpið og hringt í hana um leið. „Þá er Davíð akkúrat hér inni á skrif­stof­unni hjá mér og við sjáum þetta og nátt­úru­lega bara fengum „sjokk“ og Davíð nátt­úru­lega tromp­að­ist, þannig að hann hérna talar við Jónínu og bara gjöra svo vel að taka þetta út „med det samme“.

Nema það þetta er þarna seinni part­inn 6. októ­ber þegar menn eru að fara að renna út á tíma með það að koma þessu í gegn á þessum sól­ar­hring. Og Seðla­bank­inn var búinn að leggja það til að það yrði þessi almenna heim­ild í frum­varp­inu sem sagt að við gætum átt banka. Nema það, kannski brá henni svona rosa­lega, þetta bara féll gjör­sam­lega út. [...] Þetta féll gjör­sam­lega út, þetta er ekk­ert í lög­unum, fór bara algjör­lega út. [...] maður setur ekki inn nafn á bank­anum. [...]Og það komst inn á netið með þess­ari grein og þegar það upp­götv­að­ist þá nátt­úru­lega tromp­að­ist nátt­úru­lega liðið hérna uppi á 5. hæð­inni í Seðla­bank­anum. Ég fékk bara sím­tal frá Kaup­þingi sem segir: Heyrðu, við erum að lesa það hérna á net­inu að þið ætlið að taka yfir FIH-bank­ann. Þannig að það var hringt niður á Alþingi og bara snar­lega beðið um að þetta yrði tekið út og þetta er sem sagt allt að ger­ast á sama hálf­tím­anum eða klukku­tím­anum þannig að það fór aldrei inn í frum­varpið þessi almenna heim­ild, sem hefði nátt­úru­lega eig­in­lega þurft að vera“.

Óvissa um forræði


Þar sem heim­ildin var ekki til staðar í lög­unum skap­að­ist mikil óvissa um það eftir fall Kaup­þings hvort Seðla­bank­inn gæti raun­veru­lega gengið að veð­inu. Mikil átöku áttu sér stað milli hans og slita­stjórnar Kaup­þings um hvor færi með for­ræði yfir FIH sem stuð­aði dönsk stjórn­völd mikið.

Á end­anum var FIH seldur til danskra fjár­festa haustið 2010 fyrir stað­greiðslu á rúmum helm­ing þeirra upp­hæðar sem Seðla­bank­inn lán­aði Kaup­þingi. Auk þess „lán­aði“ Seðla­bank­inn nýjum eig­endum selj­enda­lán upp á nokkra tugi millj­arða króna sem átti að end­ur­greið­ast ef FIH bank­inn myndi ganga vel. Það gerði hann ekki og því end­ur­greidd­ist ein­ungis brota­brot af selj­enda­lán­inu. Fyrir vikið nemur tap íslenskra skatt­greið­enda vegna neyð­ar­láns­ins til Kaup­þings um 35 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár