Skoðum snjallsímann okkar 221 sinni á hverjum degi

Eigendur snjall­síma athuga sím­anna sína að um 1.500 sinnum á viku, að með­al­tali. Þeir byrja dag­inn vana­lega klukkan 7:31 með því að kanna tölvu­póst­inn sinn og Facebook. Þegar með­al­talsnot­and­inn leggst til hvílu að deg­inum loknum hefur hann kannað stöð­una á öllu sem hann telur skipta mestu í gegnum sím­ann sinn 221 yfir dag­inn. Þetta kemur fram í nýlegri ran­sókn sem Tecmark gerði á um tvö þús­und eig­endum snjall­síma í Bret­landi og Daily Mail greinir frá. Hin gríð­ar­lega notkun þykir afhjúpa greini­lega hversu háður tækn­inni nútíma­mað­ur­inn er orð­inn.

[caption id="attachment_9268" align="aligncenter" width="677"] News by Design setti nið­ur­stöðu könn­un­ar­innar upp í mynd­ræna skýr­ing­ar­mynd.[/caption]

Rann­sóknin leiddi það líka í ljós að not­end­urnir athuga margir hverjir stöð­una á veðr­inu, lesa frétt­irnar og hafa sam­band við vini eða félaga í gegnum snjall­tækin sín áður en þeir fara fram úr rúm­inu á morgn­anna. Alls eyðir með­al­not­and­inn þremur klukku­stundum og sextán mín­útum í snjall­sím­anum sínum á hverjum degi.

Nið­ur­stöður rann­sóknar Tecmark sýna einnig að snjall­sím­arnir hafa tekið yfir mörg af þeim hlut­verkum sem far- og borð­tölvur höfðu áður. Nú notar meðal snjall­síma­not­and­inn þær ein­ungis til að fram­kvæma um 140 verk­efni yfir dag­inn, tæp­lega 60 pró­sent færri en hann notar snjall­sím­ann sinn til að fram­kvæma.

Íslend­ingar eru mjög fram­ar­lega í eign á snjall­símum, enda vana­lega afar fljótir að til­einka sér tækninýj­ungar. Í könnun sem MMR fram­kvæmdi snemma haustið 2013 kom í ljós að 66,4 pró­sent lands­manna ættu snjall­síma. Tveimur árum áður var hlut­fall þeirra 38 pró­sent. Til sam­an­burðar sögð­ust 68 pró­sent Breta eiga snjall­síma, 52 pró­sent Banda­ríkj­anna og 64 pró­sent Rússa. Óhætt er að álykta að snjall­síma­eign hafi vaxið enn meira á því ári sem liðið er síðan að könnun MMR var gert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár