Seinfeld hlýtur verðlaun og jarðar auglýsingaiðnaðinn

Grín­goð­sögnin Jerry Seinfeld dró aug­lýs­inga­iðn­að­inn sundur og saman í háði í síð­ustu viku þegar iðn­að­ur­inn ákvað að veita honum verð­laun á CLIO verð­launa­há­t­ið­inni, sem er hluti af Aug­lýs­inga­vik­unni (e. Advert­is­ing Week) sem fer fram árlega í New York. Í ræðu sinni, sem vef­síða Business Insider greinir frá, segir Seinfeld meðal ann­ars að honum finn­ist það góð eyðsla á krafti og orku hjá fólk­inu í salnum að eyða ævi sinni í að plata sak­laust fólk til að eyða strit­launum sínum í að kaupa gagns­lausa, gæð­is­rýra og rangt kynnta hluti eða þjón­ustur. „Ég elska aug­lýs­ingar vegna þess að ég elska að ljúga. Í aug­lýs­ingum er allt eins og þú óskaðir þess að það væri. Mér er alveg sama þótt það verði ekki þannig þegar ég er búinn að eign­ast vör­una sem verið er að aug­lýsa, vegna þess að á milli þess sem ég sé aug­lýs­ing­una og þar til ég eign­ast hlut­inn, er ég ham­ingju­samur. Það er allt sem ég vil,“ sagði Seinfeld.

Seinfeld hlaut verð­launin meðal ann­ars vegna frammi­stöðu sinnar í aug­lýs­ingum fyrir greiðslu­korta­fyr­ir­tækið American Express. Full­trúar aug­lýs­inga­iðn­að­ar­ins, sem voru and­lag kald­hæð­innar gagn­rýni Seinfeld í þakk­ar­ræð­unni, velt­ust um af hlátri á meðan að hann lét dæl­una ganga. Þakka­ræð­una má sjá í heild sinni hér að neðan.

http://www.youtube.com/watch?v=uHWX4pG0FNY

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár